Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1990, Page 42

Frjáls verslun - 01.05.1990, Page 42
FORSIÐUGREIN góða kynningu út á heimsókn hennar. Það þarf ekki alltaf að beita hefð- bundnum aðferðum við vörukynning- ar og þegar völ er á að fá Ungfrú heim í lið með sér getur árangurinn orðið mikill, að ég tali nú ekki um þegar um er að ræða svo glæsilegan fulltrúa sem Linda er. Sama er að segja um opinbera heimsókn Spánarkonungs til Islands. Hún vakti mikla athygli hér á landi, fékk víðtæka umfjöllun fjölmiðla og kom okkur að góðu haldi við að minna á íslenskan saltfisk. Það getur enginn metið til fulls þá auglýsingu sem það er þegar sjálfur Spánarkonungur sést á skjáum allra helstu sjónvarpsstöðva landsins að handleika íslenskan salt- fisk í íslenskri fiskverkunarstöð! “ Hvemig hafið þið skynjað áhrifin af þessum markaðsaðgerðum? „Við finnum að eftirspumin hefur aukist og við skynjum þetta einnig í gegnum markaðsrannsóknir okkar. Við gerðum t.d. skoðanakannanir vorið 1989, áður en markaðsátakið fór af stað, og svo aftur í desember sl. Niðurstöður skoðanakönnunarinnar í desember sýndu á öllum sviðum betri útkomu fyrir íslenskan saltfisk en fram hafði komið um vorið. Tvöfalt fleiri vissu að sá saltfiskur, sem þeir vom að kaupa, var frá íslandi, neysl- an hafði aukist til muna, svo og áhugi fyrir þessari vörutegund. Könnunin sýndi einnig að yfirgnæfandi meiri- hluti aðspurðra mundi eftir auglýsing- um og kynningum okkar. SALTFISKVIKA En á árinu 1990 er engin konungs- heimsókn og Linda Pétursdóttir er ekki lengur Ungfrú heimur. Þannig að við ákváðum að grípa til annarra ráða til að vekja athygli á íslenskum salt- fiski með myndarlegum hætti. Því var haldin hér saltfiskvika 14.til 20. maí þar sem staðið var fýrir ljölbreyttri dagskrá öllum viðskiptavinum okkar til hvatningar. Hér halda menn ótrauðir áfram því starfi að festa Bacalo Islandia enn frekar í sessi til þess að geta staðið undir þeim miklu kröfum sem íslenskir fiskframleið- endur gera um verð fyrir afurðir sín- ar.“ Að lokum er Jose Solemou spurður að því hvort hann óttist ekki að tollar Efnahagsbandalagsins geri sam- keppnisstöðu íslendinga erfiða. „Tollur á saltfisk inn í EB er 13% en Spánn og Portúgal hafa aðlögunar- tíma til ársins 1992. Þetta er allt spuming um samninga við EB og í fyrra greiddu íslendingar frá 2.2% og upp í 6% toll af saltfiski. Nú er tollur- innhærri, þ.e. 10.7% til l.apríl og7% núna eftir að lokið er við ákveðinn kvóta. Þessi tollamál eru öll mjög flókin og víst er að íslendingar verða að gá mjög vel að sér til að skaða ekki samkeppnisstöðu sína. En vægi ís- lands á heildarsaltfisksmarkaðnum á Spáni er mikið. Árið 1989 virðist mér að heildarmagnið hafi numið um 25-26 þúsund tonnum. Þar af flutti ísland inn um 10 þúsund tonn, spænski flot- inn lagði til um 9 þúsund tonn, tæp 5 þúsund tonn vom flutt inn frá EB löndum og 1-2 þúsund tonn komu ann- ars staðar frá. Hlutur íslendinga hef- ur því verið um 40% á öllum Spánar- markaðinum.“ Gtgerðarmenn! Fóðrum kraftblakkir og þríplexkefli fyrir loðnu- og sfldarbáta. Fóðrum einnig netaspil fyrir línubáta. Gúmmísteypa P. Lárusson Hamarshöfða 9,112 Reykjavík, sími 91-674467 42

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.