Frjáls verslun - 01.05.1990, Qupperneq 47
Jóhann J. Ólafsson, formaður Versl-
unarráðs og Stöðvar 2, kom mjög við
sögu á fundinum og deildi við Gísla
V. Einarsson.
Haraldur Haraldsson og Einar Sveinsson voru kjörnir í stjórn Eignarhalds-
félags Verslunarbankans. Með þeim á myndinni eru Pétur Guðmundarson
og Sigurjón Pétursson.
Gísli V. Einarsson í ræðustól á aðalfundi Verslunarbankans. Aðrir á mynd-
inni eru Orri Vigfússon, Guðmundur H. Garðarsson, Þorvarður Elíasson og
Þorvaldur Guðmundsson. Þessir fimm menn áttu sæti í bankaráðinu.
borð, því heildarhluthafafiöldinn er
um 1400 og dreifingin því talsverð.
Það hleypti nokkurri spennu í fund-
inn að óskað var eftir margfeldiskosn-
ingu og fyrir lá að stjóm bankans ætl-
aði að leggja til að samþykktum hans
yrði breytt á þann veg að formaður
yrði ekki kosinn sérstaklega á aðal-
fundi en þess í stað skipti fimm manna
stjórnin með sér verkum. Samþykkt
þessarar breytingatillögu, með bráð-
abirgðaákvæðum um að hún tæki
strax gildi, hefði mjög styrkt stöðu
Gísla V. Einarssonar og aukið mögu-
leika hans á að ná kjöri í margfeldis-
kosningu og þá er ekki að vita hvern
bankaráðið hefði valið sem formann.
En á fundinum ákvað meirihluti
bankaráðs að draga tillögu sína um
bráðabirgðaákvæðin til baka þannig
að kjósa varð sérstaklega um for-
mann og að því búnu tvo meðstjóm-
endur. Haraldur hlaut um 2/3 hluta
atkvæða en Gísli V. um 1/3 hluta. í
kosningu um meðstjórnendur laut
Gísli svo í lægra haldi fyrir Einari
Sveinssyni, sem fékk 36.1% og Þor-
valdi Guðmundssyni, sem hlaut
33.3% atkvæða, en Gísli V. Einars-
son fékk 30.5%.
Eftir fundinn lýsti Gísli því yfir að
hér hefði verið um opinbera aftöku að
ræða og að annarleg sjónarmið hefðu
ráðið ferðinni. Hann hélt því einnig
fram að ákveðin öfl hefðu sett í gang
rógs- og ófrægingarherferð gegn sér
í þeim tilgangi að koma sér frá völd-
um.
Valdabaráttan á síðasta reglulega
aðalfundi Verslunarbankans skyggði
að mestu á umfjöllun um málefni
bankans sjálfs, en afkoma hans var
mjög góð á árinu og staða hans hefur
aldrei verið betri en í árslok 1989.
Hagnaður nam 142 milljónum króna
og fram kom í ræðu fráfarandi for-
manns að hagnaður síðustu tveggja
ára, á meðan Gísli V. Einarsson
gegndi formennskunni, hafi verið um
250 milljónir króna á verðlagi ársins
1989 sem er meira en samanlagður
hagnaður bankans hafði verið í 12 ár
þar á undan!
47