Frjáls verslun - 01.05.1990, Qupperneq 55
BWI: FLUGVÖLLUR í STÖÐUGRISÓKN
Baltimore-Washington Intemational
flugvöllurinn hélt upp á fjörutíu ára afmæli
sitt núna í júní. Og það er engin ellimerki
að sjá á þessum tiltölulega gamla flugvelli.
Mannvirkin hafa verið endumýjuð og nýj-
um flugbrautum hefur verið bætt við
hann. Flugvöllurinn er í stöðugri sókn. A
árinu 1989 fóm meira en tíu milljónir far-
þega í gegnum flugvöllinn og var það met-
ár í sögu vallarins. Flugvöllurinn er í eigu
Marylandríkis og er hann einn sá nýtísku-
legasti í gjörvöllum Bandaríkjunum. Sam-
göngur til hans frá nærliggjandi borgum,
Washington DC, Baltimore og Annapolis
em gífurlega auðveldar og var flugvöllur-
inn einn af þeim fyrstu í Bandaríkjunum til
að tengjast borgunum með lestarsam-
göngum.
Á síðasta ári fjárfestu flugvallaryfirvöld í
bílageymslum, sem munu verða teknar f
notkun árið 1991. Þessi fjárfesting kostar
29 milljónir dollara. Þá var ráðist í lengingu
stystu flugbrautarinnar til að geta þjónað
innanlandsflugi betur. Yfirvöld í Maryland
fagna því mjög að utanlandsflug er að fær-
ast í vöxt á flugvellinum. Melvyn Stein-
berg, annar ríkisstjóri Marylandfylkis, var
viðstaddur móttökuathöfn, sem flugvall-
aryfirvöld stóðu fyrir 7. maí síðastliðinn, í
tilefni af því að Flugleiðir hafa nú hafið flug
til Baltimore á ný eftir nokkurt hlé. í ræðu
ríkisstjórans kom fram að hann væri mjög
ánægður með endurkomu Flugleiða á
BWI. „Mér líður eins og ég sé í sam-
kvæmi,“ sagði hann kotroskinn. „Og
þetta er eins og fjölskyldusamkvæmi.
Þegar gamlir fjölskyldumeðlimir koma aft-
ur þá er maður hamingjusamur," sagði
Steinberg. „Við erum mjög hreyknir af
þessum flugvelli því að hann er í eigu fylk-
isins,“ bætti hann við. Hann sagði það ekki
spilla fyrir ánægju yfirvalda að flugvöllur-
inn gæfi árlega af sér 250 milljónir dollara í
tekjur.
Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða,
sagði í ræðu sem hann hélt við þetta tæki-
færi að honum þætti mikið til flugvallarins
koma og að flugvallaryfirvöld hefðu veitt
Flugleiðum mikinn stuðning. Hann sagði
ennfremur að hann vonaðist til að í fram-
tíðinni myndu Flugleiðir fljúga á hveijum
degi til BWI. Steingrímur J. Sigfússon,
samgönguráðherra sagði í stuttri ræðu að
hann væri ánægður með þessa nýju flug-
leið Flugleiða. „Mér skilst að þetta sé í
þriðja sinn sem Flugleiðir hefja flug til
Baltimore en það verður einnig í síðasta
sinn, því núna ætla þeir að vera héma til
frambúðar," sagði samgönguráðherra og
fékk dynjandi lófaklapp.
Önnur erlend flugfélög, sem fljúga til
BWI, eru TWA og KLM. Flugvöllurinn er
búinn fjórum flugbrautum. Hann hefur 47
þotuhlið og 18 minni. Flugstöðin sjálf tekur
yfir 850.000 fet og á flugvellinum vinna
10.000 manns. BWI er notaður af 32 flug-
félögum og dagleg umferð hljóðar upp á
660 mismunandi flug til hinna ýmsu staða í
Bandaríkjunum og erlendis. Öll aðstaða er
eins og hún gerist best og auðvelt er að
komast leiðar sinnar um nýtískulega flug-
stöðvarbygginguna.
Av&óum
SÍMAR^SÍMSVARAR^SÍMKERFI
Öll heimsbyggðin
treysti á
GoldStar
í Seoul 1988.
Þér er óhætt!!
GoldStqr
... einfaldlega betri kostur.
KRISTALL HF.
SÍMI 685750 FAX 685159 SKEIFAN 11B 108 REYKJAVÍK
55