Frjáls verslun - 01.05.1990, Page 61
út. Ég held að þið séuð komin niður á botn
öldudalsins og séuð núna á leiðinni upp úr
honum. Besta lýsingin á ástandinu hérna,
sem ég hef á reiðum höndum, er sú að líkja
efnahagsástandinu við Boeingþotu í lend-
ingu — nefið á henni vísar alltaf upp. Og
það er mjög mikilvægt þegar aðstæðumar
eru svona. Bjartsýni fólks í viðskiptaheim-
inum héma er stórkostleg. Það hefur
aldrei glatað voninni um betri tíma, sem
núna em í sjónmáli."
Þegar þið ákváðuð að koma hingað og
stofnsetja útibú þá voru hér fyrir mjög
sterkir keppinautar sem áttu markaðinn.
Island, sem er mjög lítill markaður ef mað-
ur miðar við önnur lönd, getur varla verið
mjög mikilvægur fyrir ykkur. Tókuð þið
ekki töluverða áhættu með því að byggja
upp útibú hér?
,Jú, en markaður þar sem sterkir
keppinautar berjast er alltaf áhugaverðari
en algjörlega nýr og óplægður markaður.
HP þekkir tölvur, þær eru okkar sérgrein
og þess vegna er mjög auðvelt fyrir okkur
að brjóta okkur leið inn á markaði þar sem
samkeppnin er hörð. Við byggjum á frá-
bærri framleiðslu og frábæm fólki sem
markaðssetur hana og það gerir okkur
mögulegt að framkvæma hluti eins og við
gerðum héma.“
OPIN KERFI í STAÐINN FYRIR LOKUÐ
Herlevsen sagði að HP væri fyrsta
tölvufyrirtækið, sem berðist fyrir sam-
ræmingu í framleiðslu á tölvum, þannig að
hægt væri að tengja gömul kerfi nýjum og
nota það besta frá hverjum framleiðanda.
Hann sagði að HP berðist nú fyrir því að
framleiðsla yrði hafin á opnum stöðluðum
tölvukerfum í staðinn fyrir gömlu lokuðu
eignarkerfin. „Viðskiptavinurinn vill fá op-
ið kerfi svo að hann geti keypt það besta
sem til er í dag. Og við emm reiðubúnir að
veita honum þessa þjónustu vegna þess að
við vitum að möguleikamir í framtíðinni
munu felast í því að tölvur geti talað sam-
an. Tölvuheimurinn í dag er feitur og ham-
ingjusamur. Ogafhverju stafarþað? Svar-
ið er: Vegna lokaðra kerfa. Ef maður ætti
Volvo, Chevrolet eða Toyota bifreið og
gæti aðeins ekið á vegum sem væm sér-
staklega hannaðir fyrir þessa bfla þá myndi
ríkja algjör ringulreið. Maður yrði brjálað-
ur yfir því. Það væri mjög erfitt fyrir mann
að ákveða hvaða bfl maður ætti að fá sér
vegna þess að maður yrði að taka með í
reikninginn hvar vegimir liggja. Ef enginn
Volvo vegur væri nálægt heimili manns þá
yrði maður einfaldlega að kaupa Toyotu
vegna þess að Toyota fyrirtækið lagði veg
þangað, jafnvel þótt maður væri ekki mjög
hrifinn af Toyota. Tölvuheimurinn er
svona í dag. Ef þú kaupir tölvukerfi af mér
þá verður þú að fjárfesta í töluvert miklum
hugbúnaði og ert þess vegna bundinn
þessu kerfi. En viðskiptavinir tölvufyrir-
tækja hugsa ekki svona lengur. Þeir vilja
keyra á þægilegum og beinum vegum,
sem þeir velja sjálfir. Þeir vilja vera frjálsir
og eiga frábæra bfla. Og heimspeki HP
byggir einmitt á þessu. Við höfum verið
talsmenn fýrir opin kerfi. Við tökum þátt í
alþjóðlegum samtökum er kafla sig „Open
Software Foundation“ og við gerum mikið
til þess að samræma búnaðinn, sem við
framleiðum, þannig að tölvumar geti talað
við aðrar tölvur.
„Við höfum uppgötvað að við getum
ekki gert allt sjálfir. Þess vegna höfum við
verið mjög ötulir við að hafa uppi á góðu
fólki til að vinna með; hugbúnaðarfyrir-
tækjum, dreifingar- og söluaðilum. Þetta
fólk þekkir vandamál viðskiptavina sinna
miklu betur en við og ef við gefum þeim
tækifæri og opnum tölvukerfi okkar fyrir
þeim þá finna þeir upp betri lausnir en
nokkur annar getur fundið upp. Við viljum
bjóða opnum viðskiptavinum opin kerfi.
Við verðum að hafa tölvuumhverfið opið
svo að tölvurnar geti skipst á upplýsing-
um. Ég lít á HP sem áskoranda í tölvu-
heiminum. Við erum fyrirtæki sem þorir
að bjóða hinum bjTginn.“
MÆTTI FRAMSÝNU FÓLKIÁ ÍSLANDI
Hvemig er viðskiptaumhverfið hér á
íslandi að þínu mati?
„ísland er ekki ólíkt öðmm löndum í
V-Evrópu. Það er í rauninni afar líkt hinum
Norðurlöndunum. Það, sem kom mér
mest á óvart, er dugnaðurinn í fólkinu sem
vinnur að viðskiptum héma. Ég er mjög
ánægður með það hvemig tölvukerfin,
sem við höfum selt viðskiptavinum okkar,
era nýtt á íslandi. Hér nota menn tölvum-
ar meira en ég hef séð gert í mörgum
öðram ríkjum. Kannski er það vegna þess
að íslendingar eru einangrað þjóð sem
hefur búið við frekar óáreiðanlegt efna-
hagskerfi. Menn era viðbúnir dýfum í
efnahagslífinu. Þegar ég kom hingað fyrst
þá hélt ég að ég myndi hitta fyrir grjóthart
fólk. En ég mætti aðeins opnu og fram-
sýnu fólki — fólki sem vinnur mikið og
hefur smekk fyrir gæðum.“
Reyndist ykkur auðvelt að fá leyfi til að
stofna útibú hér á landi og þar með fjár-
festa í íslensku atvinnulífi?
, Já, það leyfi var auðfengið. Ég held að
íslensk stjómvöld hafi áhuga á að laða að
erlend fyrirtæki og fá þau til að fjárfesta í
íslensku atvinnulífi. Frá þeim sjónarhóli
séð voram við mjög velkomnir. Ég er
þeirrar skoðunar að ríkisstofnanir og stór-
fyrirtæki á íslandi ættu að meta þessa
viðleitni okkar að verðleikum. Það er mjög
gott fyrir viðskiptaumhverfið hér að hafa
þrjú eða fjögur fyrirtæki sem keppa á
markaðinum. Það heldur verðinu niðri.
Þessar stofnanir ættu að hjálpa nýjum,
traustum fyrirtækjum inn á markaðinn
með því að gefa þeim dálítinn hluta af íjár-
magninu sem þau ráða yfir. Og ég hef það
á tilfinningunni að í þessum hluta við-
skiptaumhverfisins á íslandi hafi HP orðið
dálítið útundan. Okkur hefur reynst erfitt
að komast inn á þennan sérstaka hluta
markaðarins — þ.e. gagnakerfi ríkisstofn-
ana á íslandi. Við ættum að hafa stærri
hluta af þessum markaði þegar tillit er
tekið til stærðar okkar og gæða búnaðar-
ins sem við bjóðum uppá. Það kæmi sér
einnig vel fyrir ríkisstjómina og fyrir sam-
61