Frjáls verslun - 01.05.1990, Side 68
704 STARFSMENN VEGA
MEIRA EN 60.000.000 KG AF
TÆKJUM OG BÚNAÐI
STERKIR HLEKKIRI
STÓRRIFLUTNINGAKEÐIU
Flutningaþjónusta EIMSKIPS byggist
að miklu leyti á öflugum tækjum og
búnaði.
Sérhæfð gámaskip, sérsniðnir gámar,
vöruskálar, lyftarar og )akinn sterki ásamt
sívakandi upplýsingakerfi eru nauðsynleg
forsenda þess að fyrirtækið fái sinnt marg-
breytilegum þörfunt viðskiptavina sinna.
En öll tæki kæmu fyrir lítið ef ekki nyti
við hæfra starfsmanna.
Þeir gæða tækin lífi með hugviti sínu og
frumkvæði og tengja þannig saman fiutn-
ingakeðju fyrirtækisins.
Þess vegna má líta svo á að hinir 704
starfsmenn EIMSKIPS séu þyngri á
metunum en 60.000 tonn af fullkomnum
tækjabúnaði félagsins.
ÞEKKING Á ÞEKKINGU OFAN
Hjá EIMSKIP myndar sérþekking
hundruða einstaklinga sterka heild.
Þar gildir einu hvort um er að ræða sjó-
rnenn, bílstjóra, hafnarstarfsmenn, skrif-
stofufólk, stjómendur eða aðrar starfs-
stéttir.
Það er í krafti þessarar kunnáttu sem
EIMSKIP hefur meðal annars bætt fiutn-
ingaráðgjöf við þjónustu sína.
Þannig getur félagið tekið þátt í upp-
byggingu á fiutningakerfum fyrirtækja frá
grunni.
VILJINN TIL AÐ GERA
ENN BETUR
Flutningar eru margslungnir en starfs-
menn EIMSKIPS einfalda flókið mál.
Alúð og samstilling stuðla að réttri vöru-
meðferð og starfsfólkið leggur metnað sinn
í að áætlanir standist, hvort sem leiðin ligg-
ur um strendur (slands, helstu viðskipta-
hafnir Evrópu eða til fjarlægari heims-
hluta.
Eftirspum eftir þjónustu EIMSKIPS
sýnir að viðskiptamenn treysta fagiegum
tökum fyrirtækisins.
Það er starfsmönnum EIMSKIPS
kappsmál að gera enn betur.
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ