Frjáls verslun - 01.04.1992, Qupperneq 48
VERKTAKAR
Tvöföldun Reykjanesbrautar er ein þeirra framkvæmda sem Verktakasambandið hefur bent á til að glæða atvinnu-
lífið og auka hagkvæmar fjárfestingar.
miðað við það sem aðrir þyrftu að
greiða. Slíkt fyrirkomulag gengur ein-
faldlega ekki og hefur verið lagt af
Raynor
bílskúrshurðir
FRABÆRT VERÐ
AMERÍSKAR HÁGÆÐA
STÁLHURÐIR, FALLEG ÁFERÐ,
EINANGRAÐAR, 5 CM ÞYKKAR.
BlLSKÚRSOPNARAR.
VERKVER
Skúlagötu 62a
S. 621244/fax 629560
Opið 16.00-18.00
víða um lönd. Það leiðir af sér mis-
munun og óeðlilega viðskiptahætti.
Er þetta sérstaklega óheilbrigt hér á
landi þar sem húsnæðismarkaðurinn
veltir milljörðum króna á ári hverju,“
sagði Öm ennfremur.
METTUR MARKAÐUR
Örn Kjæmested sagði ljóst að
fleira en óvissa um framgang kjara-
samninga orsakaði þá kreppu sem nú
ríkir á byggingarmarkaði á höfuð-
borgarsvæðinu.
„Á síðustu árum hefur verið mikið
um það að fólk, sem er búsett úti á
landi, hafi fjárfest í íbúðarhúsnæði á
höfuðborgarsvæðinu. Þessar íbúðir
hafa svo verið á leigumarkaði, nýttar
af börnum eigendanna sem eru í skól-
um hér o.s.frv. Vegna minnkandi
tekna landsbyggðarfólks hefur dregið
stórlega úr slíkum íjárfestingum. Þá
skulum við ekki gleyma því að íslend-
ingar hafa byggt gífurlega á síðustu
áratugum og að því hlaut að koma að
markaðurinn kæmist í jafnvægi. í dag
eru um það bil þrír um hverja íbúð í
landinu og þegar litið er til þess að við
erum búin að útrýma heilsuspillandi
húsnæði og þröngbýli af ýmsu tagi, þá
hlýtur að draga úr byggingarþörfinni.
Byggingarfyrirtæki hafa orðið vör við
þessa staðreynd og því hlýtur mark-
aðurinn að taka mjög mið af þessu á
næstu árum. Verkefnin munu því í æ
meira mæli færast yfir í viðhaldsverk-
efni af ýmsu tagi.“
Örn sagði að af öðrum verkefnum
byggingarfyrirtækjanna væri svipaða
sögu að segja. Mikið framboð væri af
ónýttu atvinnuhúsnæði víða um land
en þó mætti greina aukinn áhuga
nokkurra fyrirtækja að láta byggja
fyrir sig sérhannað húsnæði. „Inn í
það spila einnig ákvæði í lögum um
virðisaukaskatt, en hann er endur-
greiddur af aðföngum vegna nýbygg-
inga en ekki vegna kaupa á eldra hús-
næði.“
Mesta áfallið á þessu ári er þó sam-
drátturinn í byggingum virkjana, en
sá þáttur mun dragast saman um 60%
frá síðasta ári, að því að talið er.
Landsvirkjun mun t.d. einungis fram-
kvæma fyrir 720 milljónir króna í ár
en fyrri áform voru um 6,750 milljóna
króna fjárfestingar vegna undirbún-
ings virkjana í tengslum við byggingu
álvers. Eru þá ótalin þau verkefni
sem ekki verður að sinni ráðist í
vegna sjálfs álversins.
„Við hjá Verktakasambandinu höf-
48