Frjáls verslun - 01.04.1992, Blaðsíða 50
VERKTAKAR
Stórhýsi fyrir Mosfellsbæ og fjölmarga aðra aðila eru að rísa af grunni í miðbæ kaupstaðarins og er Álftárós
byggingaraðilinn.
kjörorðunum: Rjúfum kyrrstöðuna!
Að sögn Arnar vildi stjórn Verktaka-
sambandsins með því leggja sitt af
mörkum til að snúa neikvæðri um-
ræðu í samfélaginu upp í þjóðarátak til
að sigrast á erfiðleikunum. Þar komu
fram ýmsar athyglisverðar hugmynd-
ir.
GEGN ATVINNULEYSI
í hugmyndum Verktakasambands-
ins er bent á fjölmörg verkefni sem
talið er þjóðhagslega hagkvæmt að
ráðast í, m.a. til að forða mikilli aukn-
ingu atvinnuleysis. í ályktun síðasta
aðalfundar sambandsins 14. mars sl.
um þetta efni segir m.a.:
„Verktakasamband íslands telur
hins vegar engan vafa leika á því að
skynsamlegt sé að auka framkvæmd-
ir og draga úr atvinnuleysi með því að
fela einkaaðilum að annast ijármögn-
un, framkvæmdir og rekstur fjöl-
margra opinberra verkefna. Slík til-
högun samrýmist einnig þeirri einka-
væðingarstefnu sem ríkisstjórnin
sjálf hefur boðað. Sé skynsamlega
staðið að einkavæðingu, má ná fram
verulegum sparnaði í ríkisútgjöldum
og færa ríkissjóði skatttekjur sem
hann annars yrði af, auk þess sem
slíkt myndi fjölga störfum í atvinnu-
lífinu. Tillaga Undirbúningsfélags um
tvöföldun Reykjanesbrautar er eitt
dæmi um slíka tilhögun sem ríkis-
stjórnin hlýtur að skoða með jákvæð-
um huga, eins og göngum undir Hval-
Qörð.“
„Stjórnvöld hafa mjög verið gagn-
rýnd fyrir bein afskipti af atvinnumál-
um á síðustu árum enda gífurleg fjár-
festingarmistök verið gerð fyrir at-
beina stjómmálamanna. Ég er
sammála því að pólitíkusar eiga ekki
að vasast í framkvæmdum og ríki og
sveitarfélög eiga sem allra minnst að
standa í beinum framkvæmdum ef
hægt er að sýna fram á að einkaaðilar
geti annast þau verkefni. Það þýðir
hins vegar ekki að stjórnvöld eigi ekki
að skipta sér af atvinnulífinu. Þau af-
skipti eiga hins vegar að vera almenns
eðlis og einkum fólgin í því að jafna
verkefnum út þannig að það dragi úr
þessum séríslensku sveiflum sem hér
koma inn með reglulegu millibili.
Hlutverk stjómvalda á fyrst og
fremst að vera að skapa almenn skil-
yrði fyrir atvinnulífið svo það geti vax-
ið og dafnað en jafnframt verða þau að
sýna fordæmi og hvatningu í auknum
mæli, ætli þau að ná fram sínum
markmiðum í efnahagsmálum."
Örn benti á að á vegum opinberra
aðila væri fjöldi rannsóknarstofnana
af ýmsu tagi auk þess sem Háskólinn
ynni þörf verkefni sem atvinnulífið
ætti að geta nýtt sér. Hann taldi
skynsamlegt að slík verkefni héldu
áfram að vera aðstoð hins opinbera
við atvinnulífið en síðan yrðu einstak-
lingar og fyrirtæki að láta á það reyna
hvort hægt væri að nýta sér þær hug-
myndir sem þar kviknuðu.
ÞOKKALEG VERKEFNASTAÐA
Eins og áður sagði er fyrirtækið
Álftárós 10 ára á þessu ári, en það
hefur einkum fengist við byggingu
iðnaðar- og íbúðarhúsnæðis af hvers
konar tagi. Upphaflega störfuðu að
jafnaði 15-20 manns hjá fyrirtækinu
en nú eru starfsmenn á bilinu 70-100
talsins.
„Verkefnastaðan hjá okkur hefur
verið ágæt á síðustu árum og um
þessar mundir myndi ég telja að hún
væri þokkaleg. Við erum nú að ljúka
við 70 húsa byggð í Skógarnesi í Mos-
fellsbæ og eru örfáar íbúðir þar óseld-
ar. Nú er meginverkefnið bygging
50