Frjáls verslun - 01.04.1992, Blaðsíða 65
Lítil bjartsýni ríkir hjá sænskum
byggingaverktökum
ÖRYGGISGÆSLA
MINNA BYGGT VÍÐAR EN HÉR
í Svíþjóð er útlitið ekki bjart hvað
snertir byggingariðnaðinn. Ríkis-
stjómin hefur það m.a. á stefnuskrá
sinni að draga úr opinberum stuðningi
við íbúðarkaup almennings og hefur
það ekki aukið á bjartsýni meðal
sænskra byggingamanna sem óttast
stóraukið atvinnuleysi. Samband
sænskra byggingaverktaka (Byggen-
treprenörerna) telur að stuðningur
ríkisins við byggingu íbúðarhúsnæðis
hafi minnkað um 6% á síðasta ári og
muni minnka um 10% til viðbótar á
þessu ári.
Verktakar telja að samdráttur í
íbúðarbyggingum hafi ekki síður áhrif
á öðrum sviðum byggingariðnaðar-
ins, svo sem í byggingu atvinnuhús-
næðis, þegar rekstrarafkoma verk-
taka á aðalmarkaðnum versnar svo
snögglega en þeir reikna með að
heildarmarkaðurinn muni dragast
saman um 14% á þessu ári og hafi
dregist saman um 9% á árinu 1991.
Þeir reikna með að samdráttur í
byggingu iðnaðarhúsnæðis verði 21%
á þessu ári og 8% árið 1993 og kemur
það í kjölfar 12% samdráttar sem varð
1990.
í fyrra varð um 2% samdráttur í
byggingu nýrra íbúða í Svíþjóð en þá
var lokið við 51 þúsund nýjar íbúðir.
VASKAR ÚR GERVIEFNI
- ER OKKAR FAG
ÖRYGGISVERÐIR
Staðbundin gæsla cða farandgæsla til lcngri eða skemmri tíma.
Pcningaflutningar og önnur sérvcrkcfni.
I fyrrum kommúnistalöndum Evrópu hafa safnast saman
gríðarleg fjöll af alls konar úrgangsefnum frá þungaiðnaði.
Hreinsun slílcra efna er miklum erfiðleikum háð, sérstaklega
þar sem mörg og mikil verkefni bíða en fé er af skornum
skammti. Tækniaðstoð frá þróðari ríkjum beinist m.a. að því
að kanna hvort unnt sé að nýta úrgangsefnafjöllin sem hráefni í
einhverja seljanlega framleiðslu. Áratugum saman hafa V-
Þjóðverjar unnið að þróun framleiðslu úr affallsefnum og kann
sú tækniþekking að koma að notum við að hreinsa upp sóða-
skapinn í Austur-Evrópu.
Fyrirtækið Schock & Co GmbH í Schorndorf (P.O. Box
1540, Schorndorf, D-7060 Germany) hefur þróað efni og að-
ferð til þess að framleiða alls konar hluti úr efni sem það nefnir
„Silgranit" en það er akrýlsteypa blönduð sílíkatkvartsi. Eld-
húsvaskurinn á myndinni er steyptur úr „Silgranit". Hann þolir
240 stiga hita og hefur mjög mikla yfirborðshörku, eða 6 á sk.
Mohs-skala sem mun vera ámóta harka og emaléring hefur.
Efnið lítur út eins og granít. Það fylgir sögunni að vaskar úr
þessu efni séu eftirsóttir um þessar mundir.
ÖRYGGISKERFI
Gcra aðvart um innbrot, cld, flæðandi vatn, vclabilanir, afbrigðilcgt
hitastig o.fl.
ÖRYGGISMIÐSTÖÐ
Tckur við boðum frá aðvörunarkcrfum um hvað sem cr, hvaðan sem er af
landinu, hvenær sem er sólarhringsins og gerir strax viðcigandi
ráðstafanir.
ÖRYGGISÞJÓNUSTA
Ódýr, vönduð og viðurkcnnd af tryggingarfélögum og
dómsmálaráðuncytinu.
65