Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1995, Blaðsíða 5

Frjáls verslun - 01.10.1995, Blaðsíða 5
RITSTJORNARGREIN AR ARANGURS Ársins 1995 verður minnst sem árs árangurs í ís- lensku viðskiptalífi. Það er ekki aðeins að rekstur margra fyrirtækja hafi batnað heldur er hitt ekki síðra að hugur sóknar og djörfungar hefur stóreflst. Sífellt fleiri fyrirtæki blása til dæmis til sóknar á erlendum vettvangi - og gengur bara vel. Hugur stjórnenda hvarflar nú út um allar jarðir. Þeir hugsa stórt í við- skiptum. Það er samdóma álit nokkurra kunnra stjórn- enda í viðskiptalífinu, sem Frjáls verslun ræðir við á öðrum stað hér í blaðinu, að árið 1995 hafi einkennst af aukinni samkeppni og sviptingum. Þess vegna er hin táknræna mynd ársins af neytendum að njóta góðs af samkeppninni í formi aukins vöruúrvals og lægra vöru- verðs. Neytendur eiga fleiri kosti en áður, enda hefur verðskyn fólks stórlega aukist. Það er í raun sama hvert litið er á atvinnulífið, grósk- an blasir alls staðar við. Sérstaklega er áberandi hvað mörgum smáum íslenskum fyrirtækjum hefur gengið vel að flytja út þekkingu og hugvit. Það blása sterkir vindar frelsis og áræðnis, litlir sprotar eru orðnir að sterkum stofnum sem teygja anga sína víða um heim. Enn og aftur sannast að einkaframtakið er besti kost- urinn. Það er krafturinn sem lyftir grettistaki þegar á reynir. I ljósi þessa þarf vart að koma á óvart að dómnefnd Frjálsrar verslunar og Stöðvar 2 útnefnir Össur Krist- insson, hugvitsmann og aðaleiganda Össurar hf., mann ársins 1995 í íslensku viðskiptalífi. Hann hlýtur þann heiður fyrir að fjytja út íslenskt hugvit ineð fram- úrskarandi árangri. Össur er feikilega gott dæmi um lofsvert einkaframtak og hann er góður samnefnari fyrir útrás íslenskrar þekkingar í viðskiptalífinu. Fyrirtæki hans hefur opnað dótturfyrirtæki í Banda- ríkjunum, Englandi og Lúxemborg til að geta stóraukið viðskipti sín á heimsvísu. Við blasir að opna dótturfyr- irtæki í Asíu á næstu misserum. Og takið eftir, þetta eru ekki einhverjir dagdraumar. Vörur Össurar hafa burði til að sigra heiminn og þess vegna sækir þetta Iitla fyrirtæki við Hverfisgötuna fram á öllum vígstöðv- um með stofnun dótturfyrirtækja erlendis. Það ríkir alþjóðahyggja við Hverfisgötuna. Það ríkir alþjóðahyggja hjá ótrúlega mörgum fyrir- tækjum. Stjórnendur íslenskra fyrirtækja eru herská- ari en áður og hika ekki við að leggjast í víking, líkt og fornar hetjur, og herja á markaði. Landamæri eru eng- in fyrirstaða. Gott dæmi um þetta eru nýleg kaup Sam- herja á Akureyri á helmingshlut í þýska fyrirtækinu DFFU í Cuxhaven í Þýskalandi. Einnig gerðu íslenskar sjávarafurðir mjög athyglisverðan samning við Rússa í Kamtjaka nýlega. Áfram er hægt að telja. Fyrirtækið Oz, sem er í eigu kornungra manna, gerði samning við bandaríska ris- ann Microsoft. Friðrik Skúlason, sem hannað hefur forrit til að verjast og vinna á tölvuvírusum, hefur vakið athygli á alþjóðlegum vettvangi og selur forrit sín um allan heim. Hið smáa fyrirtæki Silfurtún í Garðabæ selur vélar, sem framleiða eggjabakka, víða um heim - og af auknum þunga. Marel hefur í nokkur ár staðið sig afskaplega vel í sölu hátæknivara á erlendri grund og á lof skilið. Það er af nógu að taka um útrás íslenskra fyrirtækja á árinu 1995, ári árangurs í viðskiptalífinu. Megi árið 1996 ekki aðeins vera gott og farsælt heldur ár enn meiri árangurs. rJhllVm ISSN 1017-3544 Stofnuð 1939 Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál — 56. árgangur RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson — AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir — LJÓSMYNDARI: Bragi Þ. Jósefsson - ÚTGEFANDI: Fróði hf.-SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Seljavegur 2,101 Reykjavík, sími 515-5500 - RITSTJÓRN: Sími 515-5616. - AUGLÝSINGAR: Sími 515-5618 - STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson - AÐALRITSTJÓRI: Steinar J. Lúðvíksson — FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra Viktorsdóttir — ÁSKRIFTARVERÐ: 3.315 kr. fyrir 6.-10. tbl. eða 521 kr. á blað nema bókin 100 stærstu er á 999 kr. — 10% lægra áskriftarverð, 2.984 kr. ef greitt er með greiðslukorti. LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. - SETNING, GRAFÍK, TÖLVUUMBROT, PRENTUN OG BÓKBAND: G. Ben. - Edda prentstofa hf. - LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf. — ÖU réttindi áskilin varðandi efni og myndir. 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.