Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1995, Blaðsíða 27

Frjáls verslun - 01.10.1995, Blaðsíða 27
„Ég var ekki ánægður með það sem ég gat boðið viðskiptavinum mínum upp á, þó að það væri í sjálfu sér ekki verra en það sem í boði var annars staðar.“ því að setja fé í rannsókna- og þróun- arstarf því þar liggur vaxtarbroddur- inn. Til þess að ná verulegum árangri þarf upphafsfé. Jarðvegur slíkra fram- fara er fjármagnið og það er ekki hægt að sá í jarðveg sem ekki er til. Japanir hafa verið duglegir við að setja saman hópa til að þróa áfram hugmyndir sem þeir fá annars staðar frá. Á því byggðist japanska efna- hagsundrið. Ég sé fyrir mér uppfinningahótel fyrir hugmyndaríkt fólk þar sem væru þjálfaðir sérfræðingar og aðstaða til að vinna úr hugmyndum. Gallinn er bara sá að allt er svo smátt í sniðum hér á þessu litla landi. Það eru kannski ekki frumlegheitin sem allan vanda leysa, þótt vissulega skaði ekki að vera frumlegur. Helstu iðnaðar- þjóðir heims eru allar að framleiða sömu hlutina í mismunandi útfærsl- um. Það er ef til vill aðeins spurning um að veita eða safna nægjanlegu fé til þess að hægt sé að byggja sam- keppnishæfan iðnað og markaðskerfi á hvaða sviði sem er. Það er hins vegar nauðsynlegt að móta traust- vekjandi stefnu í þessum málum svo að innlendir og erlendir þárfestar fái áhuga. Ertu alltaf að brjóta heilann um eitt- hvað nýtt? Össur hlær og neitar því en svarar svo: „Þegar ég var unglingur pældi ég mikið í jóga og las allt sem ég komst yfir um það. Ég hélt því áfram þegar ég kom til Svíþjóðar og fiktaði þá dálít- ið við hugleiðslu. Svo óx ég frá því en ég hef alltaf lesið mjög mikið. Ég hef t.d. lesið Scientific American og New Scientist í tuttugu og fimm ár. Á tíma- bili sökkti ég mér niður í occultisma, sem íjallar um yfirnátttúruleg fyrir- bæri, en óx frá því líka. Nú má segja að allar mínar biblíur standi föstum fótum í raunvísindum og ég er löngu orðinn sannfærður Darwinisti. Höf- undar eins og Richard Dawkins, sem skrifaði m.a. The Selfish Gene, The Extended Phenotype og The Blind Watchmaker; Roger Penrose og margir fleiri hafa haft djúp áhrif á mig. Douglas R. Hofstader, sem skrifaði Gödel, Escer, Bach, er einnig í sér- stöku uppáhaldi,“ segir Össur. Að lokum er Össur spurður hvernig hann sjái fyrir sér framtíð fyrirtækisins og hvað það sé sem dríf- ur hann áfram. „Við þurfum að vera með klæmar út um allt og fleyta okkur áfram á þeirri öldu sem hefur borið okkur uppi. Ég sé fyrir mér stöðugan vöxt og fjárfestingar næstu ár. Síðan tekur við eðlileg markaðsþróun með mögu- leikum á lækkuðu vömverði. Hvað drifkraftinn áhrærir þá er það svo að þegar maður er kominn af stað með vinnu af þessu tagi verður hún pískur á mann. Maður er kominn í einhvem farveg og verður að halda áfram og kanna alla litlu stígana sem koma í ljós. Þetta verður eins og net sem togar mann áfram. Ég er sérfræðing- ur með mikla reynslu og hef sem bet- ur fer getað miðlað af þeirri reynslu. Eins og ég sagði í upphafi var það þörfin fyrir að finna betri lausnir fyrir viðaskiptavini mína sem dró mig áfram en síðan tekur athafnaþráin við. Nú verð ég að fylgja þráðunum og sjá hvað úr þessu verður. Það er ekki hægt að láta staðar numið að svo komnu máli,“ sagði Össur að lokum. VW Æ W ÆMÆ MM Wf/W ÆW.ÆWÆ, Þú nærð forskoti 'á ---------.rmmF- j þegar tæknin vinnur meo þer CS - PRO tæknin í Ijósritunarvélum er framtíöarlausn fyrir þá sem vilja bætt afköst í betra umhverfi. Umhverfisvæn Ijósritun Hljóölát framleiösla Endurnýtanleg prenthylki Orkusparnaðarrofi Lífrænn myndvals MINOLTA CS-PfíO Ijósritunarvélar Skrefi á undan inn í framtíðina KJARAN SKRIFSTOFUBÚNAÐUR SlÐUMÚL114, 108 REVKJAVlK, SlMI 5813022 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.