Frjáls verslun - 01.10.1995, Blaðsíða 24
MAÐUR ARSINS
á stúfinn og smíða stoðgrind utan um
það. Þetta leiddi til byltingar í gerð
hulsa og kom af stað miklu j)róunar-
starfi í Bandaríkjunum. „Eg sýndi
þessa lausn fyrst á ráðstefnu í Hous-
ton í Texas árið 1983 og skömmu
seinna á ISPO ráðstefnu (Intemation-
al Society for Prosthetics and Ortho-
tics) í Svíþjóð en þaðan flaug hug-
myndin um allan heim á skömmum
tíma. ISPO em þverfagleg samtök
sem halda ráðstefnur á þriggja ára
fresti og þangað koma stoðtækja-
fræðingar, læknar, verkfræðingar,
sjúkraþjálfarar og stjórnsýslufólk alls
staðar að úr heiminum. Með því að
kynna vöru á þessum vettvangi nær
maður til mjög margra sem máli
skipta. Ég var búinn að vinna mér
traust á alþjóðlegum ráðstefnum og
hafði jákvæða ímynd. Ég var vanur að
sýna fólki hvað ég var að fást við, þótt
ég sýndi þeim kannski ekki nákvæm-
lega hvernig það var gert, og var op-
inskár við kollega mína. Það var
nokkuð óvenjulegt á þeim tíma en
skapaði áhuga og forvitni um það sem
ég var að fást við og greiddi götuna
þegar silikonhulsan kom fram.“
Össur segir að margir hafi glímt við
að fmna lausn á þessu vandmáli, t.d.
hafi nokkrir verkfræðingar tekið sig
saman fyrir 25 árum og ætlað að leysa
vandamálið með þróuðu kerfi sem er
enn langt í frá nógu gott.
í fremstu röð á sínu sviði. Össur er eftirsóttur fyrirlesari á alþjóðlegum
þingum og ráðstefnum. Fyrirlestrar hans hafa reynst einhver besta söluað-
ferð fyrirtækisins. I september sl. hélt hann fyrirlestur í Melbourne í Astra-
líu og sést í fremstu röð á meðal ráðstefnugesta. Nýlega hlaut hann hin virtu
The Brian Blatchford verðlaun.
BYLTINGARKENND NÝJUNG
Eftir að Össur kynnti ICEROSS
hulsuna hafa menn reynt að kópíera
hugmyndina en þeir hafa ekki getað
komist að því hvernig silikonblandan
er búin til. Það er leyndarmál Össurar
og efnisframleiðanda í Kalifomíu.
„Efnið var þróað í samvinnu okkar
á milli um 1980 en þá hafði ég reynt
ótal efni. Blandan er vernduð með
einkaleyfi og „know how“ og er ein-
stök að mýkt, teygjanleika og rifhaldi,
þ.e. efnið slitnar ekki í sundur þegar
togað er í það.
í markaðssetningu silikonhulsunn-
ar leggjum við mesta áherslu á að
kenna fólki rétta notkun hennar. Rétt
notkun er gríðarlega mikilvæg því öllu
er hægt að snúa upp í andhverfu sína
ef ekki er rétt að farið. Við höfum
skipulagt námskeið í Bandaríkjunum,
Evrópu og Asíu. Samkeppnin er mjög
mikil á þessu sviði og því vegur þjón-
ustan mjög þungt. Við verðum að
leggja alla áherslu á að standa okkur á
því sviði og erum nú að skipuleggja
enn víðtækari kennsluprógramm
þegar við markaðssetjum nýju vöruna
sem á eftir að valda enn meiri bylt-
ingu,“ segir Össur og verður dular-
fullur á svipinn.
Hvaða vara er það?
„Það er afrakstur þrotlausrar vinnu
þróunardeildar fyrirtækisins. Hún
var stofnuð fyrir tveimur árum og þar
vinna efnafræðingar, verkfræðingar
og fleira tæknifólk. Við höfum lagt
10% af veltu fyrirtækisins í þróunar-
og rannsóknavinnuna. Ein af söluvör-
um okkar er „Icecast" en það er tæki
sem notað er við gifsmótatöku. Þeir
sem nota það gera yfirleitt mun betri
hulsur en þeir sem taka mót með öðr-
um aðferðum. Gervifótur fyrir neðan
hné samanstendur af hulsu eða hylki,
sem stúfurinn fer ofan í, og framleista
eða ökklalið. Álrör tengir svo þessa
hluti saman. Silikonhulsan er til þess
að vernda stúfinn og tengja hann við
gervifótinn. Hulsugerð er afar vanda-
samt verk og er það m.a. ástæðan
fyrir því að við höfum lagt svo mikla
áherslu á kennslu. Þessi nýja tækni
leysir þann vanda. Hulsan er gerð
beint á stúfinn, yfir silikonhulsuna.
Beinhnútur eru verndaðar með púð-
um úr silikonhlaupi, hulsuefnið er sett
þar yfir og síðan er þrýst með
„Icecast" tækinu,“ segir Össur og er
að vonum stoltur yfir þessum árangri.
24