Frjáls verslun - 01.10.1995, Blaðsíða 71
FOLK
I ölusamband ís-
lenskra fiskframleið-
I enda er stærsti sölu-
aðili á saltfiski, með um 60%
af framleiðslu íslensks salt-
fisks. Einnig kaupum við
saltfisk af Norðmönnum og
öðrum þjóðum. Að með-
töldum dótturfyrirtækjum
okkar er SÍF orðinn einn
stærsti kaupandi á saltfiski í
heiminum í dag, — segir
Brynjar Þórsson, fjármála-
stjóri SÍF.
Brynjar varð stúdent frá
Verslunarskóla íslands 1979
og lauk viðskiptafræði frá
Háskóla íslands 1985. Hann
vann við bókhald hjá Eim-
skip í eitt ár og gerðist síðan
framkvæmdastjóri Bílrúð-
unnar en það fyrirtæki fram-
leiddi framrúður í flestar
gerðir bifreiða.
„í lok árs 1987 ákvað ég
að hætta hjá Bílrúðunni þar
sem fyrirtækið er fremur
lítið og ekki lengur þörf á
sérstökum framkvæmda-
stjóra. Þá tók við erfitt tíma-
bil hjá mér. Ég vann hjá
Bókabúð Braga í nokkra
mánuði og réðst því næst til
Allt-hugbúnaðar. Eftir ítar-
lega yfirferð yfir fjármál
fyrirtækisins lagði ég til að
það yrði lýst gjaldþrota. í
lok desember 1988 gerðist
ég aðalbókari hjá SÍF og
varð síðan fjármálastjóri
1992,“ segir Brynjar.
Brynjar Þórsson hefur unnið hjá SÍF síðan 1988 og sér
um samskipti fyrirtækisins við erlendar lánastofnanir.
1. mars 1993 var SÍF gert
að almenningshlutafélagi og
var þá séreignasjóðum þess
breytt í hlutafé. Gengi
hlutabréfa félagsins hefur
tvöfaldast á einu ári og
rekstur dótturfyrirtækis
þess í Frakklandi gengur
vel. Yfir 40% af heildar-
þorskafla íslendinga í dag
fer í salt og hefur saltfisk-
framleiðslan aukist hlutfalls-
lega miðað við frystar fiskaf-
urðir. Hefðbundnir markað-
ir okkar eru Ítalía,
Grikkland og Spánn en
vegna samkeppni frá Norð-
mönnum hefur sala til Port-
úgal minnkað mikið. Port-
úgalir kaupa mest Port-fisk
en á SPIG-mörkuðum, þar
sem gæðafiskur er seldur,
stöndum við vel að vígi“
segir Brynjar.
INNRÉTTAR EIGIÐ HÚS
Eiginkona Brynjars er
Herdís Jónasdóttir hjúkrun-
arfræðingur. Þau eiga þrjú
börn, 9 ára son og tvær
dætur, 3 ára og 7 mánaða.
„Húsasmíði hefur tekið
mikinn hluta af frítíma mín-
um í gegnum árin en fyrir
um tíu árum byggði ég tví-
býlishús ásamt föður mínum
sem er smiður. í ágúst 1994
stækkuðum við svo við okk-
ur og keyptum nýtt hús sem
ég hef lagt mikla vinnu í að
innrétta. Sumarfríið og
helgamar hafa því mikið far-
BRYNJAR ÞÓRSSON, SÍF
SAMSKIPTIVIÐ
ERLENDA BANKA
Starf Brynjars felst að
hluta til í samskiptum við er-
lenda banka, auk uppjörs og
áætlanagerðar. „Arið 1989
gaf Seðlabankinn fyrirtæk-
inu leyfi til gjaldeyrisvið-
skipta við erlendar lána-
stofnanir en íslenskir bank-
ar vom ekki samkeppnis-
hæfir í vaxtakjörum á þeim
tíma. Eftir að við tókum upp
erlendu viðskiptin höfum
við getað greitt framleið-
endum innan við tveimur
vikum eftir útflutningsdag
en áður liðu allt upp í þrír
mánuðir þar til við gátum
greitt þeim.
ið í smíðavinnu en við flutt-
um inn í febrúar 1995. Mér
finnst þessi vinna gott mót-
vægi við skrifstofuvinnuna
en ég hef líka stundað golf á
sumrin til að fá líkamlega
hreyfingu,“ segir Brynjar.
71