Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1995, Blaðsíða 30

Frjáls verslun - 01.10.1995, Blaðsíða 30
BÆKUR Frjáls verslun velur viðskiptabók ársins: WARREN BUFFETT Bókin The Warren Buffett Way er viðskiptabók ársins, að mati Frjálsrar verslunar. Hún segir ævisögu fjármálasnillings og er afar gagnleg og fræðandi við kaup á hlutabréfum Jón Snorri Snorrason hagfræd- ingur, sem fjallar um viðskipta- bækur Jyrir Frjálsa verslun, hefur valið bókin The Warren Buffett Way sem viðskiþtabók ársins 1995. Bókin segir ævisögu Warren Buffett, frægasta fjár- festis Bandaríkjanna. Hún er afar gagnleg og fræðandi við kauþ á hlutabréfum. Bókin var kynnt í 3. tölublaði Frjálsrar verslunar á þessu ári. BÓKAANNÁLL ÁRINS1995 □ þessu ári voru kynntar til sög- unnar 10 bækur. Það er óhætt að segja að þær hafi verið fjöl- breyttar. Þó má skipta þeim í 5 pör: 2 eru eftir Tom Peters, sem er einn afkastamesti höfundur á sviði við- skiptabóka í dag. Anægjulegt var að geta kynnt 2 bækur eftir innlenda höf- unda; Þorkel Sigurlaugsson og Thomas Möller. Síðan eru 2 um markaðsmál og 2 um forsendur fyrir árangri í stjómun og loks 2 um goð- sagnir í viðskiptaheiminum, Richard Branson og Warren Buffet. Það má segja að það sé sameigin- legt þessum bókum að þær fjalla um breyttan viðskiptaheim. Þessi heim- ur einkennist af sífellt meiri hraða og kröfum um hagsýni og aukinn árangur í vaxandi samkeppni. Vonandi geta þau ráð og sú reynsla, sem fram kem- ur í bókunum, reynst mönnum ómet- anleg hjálp við að ná markmiðum sín- um með betri stjórnun og tímaskipu- lagningu sem skilar margföldum árangri. Það er nauðsynlegt öllum starfsstéttum að fylgjast vel með og lesa það nýjasta sem er verið að fjalla um í heimi viðskipta. Lestur góðrar bókar hefur alltaf verið afslappandi og gefandi og sama á við um góða við- skiptabók. Þó ég hafi haft mjög gaman af öllum þeim bókum, sem kynntar voru, er engu að síður auðvelt að velja bók ársins á meðal þeirra. Eftir að ég kynnti bókina snemma á þessu ári hef ég marga hitt sem eru sam- mála mér um að hún sé einhver besta bók sem menn hafi lesið um þetta efni. Hún fjallar um Warren Buffett sem er mesta goðsögn fjármála- heimsins. Viðskiptabók ársins: The Warren Buffett Way - eftir Robert G. Hagstrom jr. Hér er á ferðinni ekki aðeins ævi- saga frægasta fjárfestis Bandaríkj- anna heldur nánast leiðbeininga- og kennslubók um hvernig hann hugsar og hvemig hann hegðar sér þegar kemur að fjárfestingum. Bókin gefur lesendum mjög glögga mynd af því sem hann leggur til grundvallar ákvörðunum og er því öllum lesend- um gagnleg og sérstaklega fræðandi. Bókin er skemmtilegt sambland af ævi- og reynslusögum Warren Buff- ett; skiptist í umfjöllun um manninn Jón Snorri Snorra- son hagfræðingur skrifar reglulega um viðskiþtabækur í Frjálsa verslun. sjálfan og hugsunina að baki fjárfest- ingunum og síðan er fjallað í smáatrið- um um einstaka fjárfestingar og farið gaumgæfílega í fjárfestingakosti á verðbréfamarkaði og hvað eigi að forðast í þeim efnum. Bókin er einstaklega aðgengileg. Það er með mjög skemmtilegum hætti sem höfundur setur fram for- múluna um velgengni Warren Buffett og síðan er hvert fjárfestingadæmið tekið af öðru og sýnt hvemig kenn- ingum er beitt í raunveruleikanum á þau fyrirtæki sem hann hefur keypt. Aðrar bækur, sem kynntar voru, eru eftirfarandi í tímaröð: 1. tbl. The Tom Peters Seminar - höfundur: Tom Peters Holl og góð lesning um byltingar- kenndar hugmyndir í stjórnun fyrir- tækja. Breytingar í viðskiptaheiminum gerast mun hraðar en áður og því þurfa stjómendur að vera opnir fyrir nýjungum og ef nauðsyn krefur að vera tilbúnir að gera það miklar breyt- ingar hjá sér í vinnubrögðum að jaðri við byltingu. 2. tbl. Beyond 2000 - The Future of Direct Marketing - ritstjóri: Jerry I. Reitman Efnismikið og fjölbreytt greinasafn um áhugavert viðfangsefni. A undanfömum 15 árum hefur bein markaðssetning (direct marketing) verið notuð í æ ríkari mæli ár frá ári. Aðferðin hefur sýnt það og sannað að hún er góð leið og gagnleg til að koma á og viðhalda viðskiptasamböndum. 4. tbl. Lyklar stjómandans - höf- undur: Tom Lambert 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.