Frjáls verslun - 01.10.1995, Qupperneq 13
Fyrir skömmu hlaut
Prentsmiðjan Oddi eina
mestu viðurkenningu
sem íslensku fyrirtæki
hefur hlotnast erlendis,
hin svonefndu Mission
Impssible verðlaun. Þau
standa fyrir að takast hið
ómögulega. Samtökin
Scitex Graphic Arts Us-
ers Association, SGAUA,
veita verðlaunin.
Oddi hlaut verðlaunin
fyrir einstök gæði við
prentun bókarinnar
Ströndin í náttúru ís-
lands eftir Guðmund P.
Ólafsson. Mál og menn-
ing gefur bókina út og er
hún tilnefnd til bók-
menntaverðlaunanna í
ár.
Verðlaunin voru veitt á
mikilli verðlaunahátíð í
Kaliforníu að viðstöddum
um eitt þúsund manns,
aðallega fólki úr faginu.
Scitex notendur eru um
550 um allan heim og
hafa með sér alþjóðleg
samtök. Scitex er leið-
andi í heiminum á sviði
tölvuvinnslu í myndum
. og texta fyrir prentun.
Árlega eru veitt verð-
laun fyrir framúrskar-
andi gæði, svo sem aug-
lýsingar, ársskýrslur,
bæklinga, plaköt, tímarit
ÞorgeirBaldursson, forstjóri Odda, afhendirhérFinni Ingólfs-
syni iðnaðarráðherra eintak af bókinni Ströndin í náttúru
fslands, bókinni sem skilaði Odda einhverri mestu viðurkenn-
ingu sem íslensku fyrirtæki hefur hlotnast erlendis.
og fleira - og svo einnig
þann flokk sem erfiðastur
þykir, og í er fólgin mesta
viðurkenningin - Mission
Impossible. Verðlaun
þessi eru einungis veitt
þegar ástæða þykir til
fyrir einstök afrek og
voru til að mynda ekki
veitt á síðasta ári.
í tilefni af viðurkenn-
ingunni gaf Oddi Finni
Ingólfssyni iðnaðarráð-
herra eintak af bókinni
Ströndin í náttúru Is-
lands.
W «l
HIÐ OMOGULEGA
nashuatei
★ Mest seldu
Ijósrilunarvélar á Islandi!
★ Faxtæki ★ Fjölritar ★ Kjölbinditæki
í
Vá Innimi ! áV
Verib velkomin i vinningslibib!
» faginu! K
Umboð: Hljómvei) Akureyri
Póllinn, Isafirði
Geisli, Vestmannaeyjum
OPTÍMA
ÁRMULA 8 - SIMI588-9000
13