Frjáls verslun - 01.10.1995, Qupperneq 16
MAÐUR ARSINS
Hrjáls verslun og Stöð 2 hafa út-
nefnt Össur Kristinsson,
stoðtækjafræðing og aðaleig-
anda Össurar hf., mann ársins 1995 í
íslensku viðskiptalífi. Hann hlýtur
þennan heiður fyrir að flytja út ís-
lenskt hugvit með framúrskarandi ár-
angri. Frjáls verslun óskar honum,
konu hans, Björgu Rafnar, fjölskyldu
og starfsmönnum fyrirtækisins hjart-
anlega til hamingju með titilinn.
Össur hf. er orðið alþjóðlegt fyrir-
tæki. Það á dótturfyrirtæki á þremur
stöðum erlendis sem stofnuð hafa
verið á tveimur árum; í Bandaríkjun-
um, Bretlandi og Lúxemborg. Fyrir
sex árum, árið 1989, flutti fyrirtækið
út fyrir um 5 milljónir á ári. A þessu
ári nemur útflutningurinn um 420
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON
MYNDIR: BRAGI Þ.JÓSEFSSON
milljónum. Það er hátt í hundraðföld
aukning á aðeins sex árum. Ljóst er
að veruleg aukning verður áfram í út-
flutningi fyrirtækisins með frekari
sókn þess víða um heim.
Tölur um hagnað fyrirtækisins eru
ekki opinberar, aðeins að fyrirtækið
hafi skilað hagnaði og góðum árangri á
undanförnum árum. Öllum hagnaði er
haldið eftir inni í fyrirtækinu til að
byggja það upp til frekari umsvifa og
árangurs. Fyrir vikið hefur eiginfjár-
hlutfallið rokið upp og er nú um 45%.
Það segir þó fremur lítið. Söluverð
fyrirtækisins væri himinhá upphæð
væri það selt í heilu lagi erlendis en
það stendur að sjálfsögðu ekki til.
ÖSSUR HEFUR HAFNAÐ VIÐTÖLUM
0G FORÐAST SVIÐSUÓSIÐ
Fyrirtækið Össur hf. hefur mjög
verið í sviðsljósinu á undanfömum ár-
um. Það er þekkt í viðskiptalífinu sem
og á meðal þjóðarinnar almennt. Hið
sama verður hins vegar ekki sagt um
manninn á bak við fyrirtækið, sjálfan
eigandann og frumkvöðulinn, Össur
Kristinsson. Hann hefur hafnað við-
tölum og forðast sviðsljós íslenskra
fjölmiðla eins og heitan eldinn - og
hefur tekist það. Langt er síðan að
hann gerði þetta að sérstöku prin-
sippi. Þess vegna er nafnið þekkt en
sárafáir þekkja manninn í sjón.
/ # #
Utnefning Frjálsrar verslunar og Stöðvar 2:
Össur Kristinsson, stoðtækjafræðingur og aðaleigandi
mynd er frá árinu 1992 þegar Össur hf. fékk útflutningsverðlaun
forseta íslands. Með frú Vigdísi Finnbogadóttur á myndinni eru frá vinstri;
móðir Össurar, Lilja Thoroddsen, Jónas heitinn Rafnar, þáverandi stjórnar-
formaður fyrirtækisins, Tryggvi Sveinbjörnsson framkvæmdastjóri, Berg-
lind Rafnar, tengdamóðir Össurar, og dóttir hennar Kristín Rafnar, þáver-
andi stjórnarmaður í fyrirtækinu. Þess má geta að tengdafaðir Össurar er
Bjarni Rafnar læknir, bróðir Jónasar.
ÖSSUR KRISTINSSON
„Sú staðreynd að einfættur maður geti leikið
knattspyrnu án þess að þjáifari liðsins viti um
örkumlin fyrr en það óhapp vill til að fóturinn, sem
sparkað var með, flýgur á eftir knettinum í markið
segir meira en öll orð um eiginleika vara Össurar hf.“
— Brynjólfur Sigurðsson, þrófessor í markaðsfræðum.
Það er því með mikilli ánægju sem
Frjáls verslun kynnir manns ársins í
íslensku viðskiptalífi, Össur Kristins-
son, sem og langt viðtal við hann í
þessu blaði. Það hljómar vissulega
svolítið öfugsnúið en maður ársins í
viðskiptalífinu segist alls ekki líta á sig
sem bisnessmann heldur sérfræðing.
16