Frjáls verslun - 01.10.1995, Page 31
WARREN
BEFFETT
WAV
Investment
Strategies
of tbe
WorUVs Greatest
lnvestor
VIÐSKIPTABÓK ÁRSINS1995
Viðskiptabók ársins 1995 er
The Warren Buffett Way eftir
Robert G. Hagstrom.
Umfjöllun Frjálsrar verslunar um bókina í 3. tölublaði
þessa árs. Ótrúlega margir eru sammála um að hér sé
um framúrskarandi viðskiptabók að ræða.
Gagnleg bók fyrir alla stjórnendur
meðalstórra fyrirtækja hér á landi.
Það er eðli viðskiptaheimsins að
breytast. Það, sem einkennt hefur
undanfarin ár, er hversu hratt breyt-
ingamar eiga sér stað. Þetta hefur
alvarlegar afleiðingar hjá fyrirtækjum
sem fylgjast ekki með og em óvið-
búin.
5. tbl. The Pursuit of WOW! - höf-
undur: Tom Peters
Tilvalin bók til að grípa niður í og
sem má lesa bæði aftur á bak og
áfram!
Rauði þráður bókarinnar er orðið
„WOW“ (VÁ!) sem snýst um það að
standa upp úr eða kljúfa sig út úr því
hefðbundna og gera eitthvað öðruvísi
í viðskiptaheiminum sem höfundi
finnst að sé allt of litlaus eða orðinn
einlitur.
Viðskiptapistlar - höfundur: Þor-
kell Sigurlaugsson
Góð afþreyingarbók um viðskipta-
legt efni fyrir almenning og stjómend-
ur.
Hér er um að ræða greinasafn höf-
undar sem birst hafa í Viðskiptablað-
inu frá því að það hóf göngu sína.
Þetta er fjölbreytt og athyglisvert
safn greina, en flestir pistlamir fjalla
um efni sem er viðskiptalegs eðlis.
6. tbl. Marketing Myths - höfund-
ar: K J. Clancy og R.S. Shulman
Góð gagnrýni á hefðbundnar leiðir
og aðferðir markaðsfræðinnar. Hér
er farið yfir allt markaðssviðið gagn-
rýnum augum og bent á þau boð og
bönn sem stunduð eru í markaðsmál-
um. Þar kemur í ljós að sumar kenn-
ingar eru kannski ekki meira en hug-
arburður þegar grannt er skoðað.
7. tbl. Virgin King - Inside Richard
Branson’s Empire - höfundur: Tim
Jackson
Skemmtileg og upplýsandi bók um
ævintýramanninn og goðsögnina í
breska viðskiptaheiminum í dag
Richard Branson er mesta goð-
sögnin í breska viðskiptaheiminum. í
bókinni eru raktar allar hans hugdett-
ur, bæði þær, sem hleypt hefur verið
af stokkunum, og ekki síst frá hinar
sem aldrei urðu að veruleika.
8. tbl. The Way to WIN - höfundar:
W. Carling og R. Heller
Athyglisverður og skemmtilegur
samanburður á sameiginlegum hug-
arheimi viðskipta og íþrótta.
Árangur í stjórnun og fyrirtækja-
rekstri og árangur í íþróttum eiga
rætur sínar að rekja til sömu grund-
vallaratriða. Þau eru að komast yfir
eða fram hjá öllum hindrunum sem
verða á vegi manns að settu marki.
9. tbl. 30 ÁHRIFARÍK RÁÐ sem
bæta TÍMASTJÓRNUN og marg-
falda AFKÖSTIN Höfundur: Thomas
Möller
Læsilega skrifuð og sannarlega
tímabær bók. Hér eru á ferðinni 30
ráð sem bætt geta tímastjómun les-
enda og aukið afköst þeirra. Þessi 30
ráð spanna flest svið daglegs lífs okk-
ar og fara yfir það hvemig við eyðum
tímanum og hvernig við gætum eytt
honum með öðrum hætti.
ÞESSAR VORU MEÐAL ANNARS KYNNTAR:
The Pursuit of WOW
eftir metsöluhöfun-
dinn Tom Peters var
kynnt í 5. tölublaði.
Virgin King - Inside
Richard Branson’s
empire eftir Tim Jack-
son.
HNANCIAL mirs
Lyklar
stjómandans
Tímasparandi aóferðir
í daglcgri stjómun
________TOM LAMBERT___
Lyklar stjórnandans
eftir Tom Lambert var
kynnt í 4. tölublaði.
31