Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1995, Side 41

Frjáls verslun - 01.10.1995, Side 41
Jóhannes Jónsson, Bónus: „Harðn- andi samkeppni á matvörumarkaði einkenndi árið 1995.“ niður á við. Neytendur eru orðnir mun meira meðvitaðir um verð en þeir voru fyrir sjö árum þegar Bónus hóf starfsemi. 2. Ég sé ekki annað en að sam- keppnin verði áfram hörð á næsta ári. Með þessari miklu samkeppni höfum við náð sambærilegu matvælaverði og í nágrannalöndunum og jafnvel lægra verði, þrátt fyrir flutnings- kostnað til landsins. Við getum haldið því áfram ef verðlag helst stöðugt en ef kaupgjaldsmál fara úr böndum og verðbólga eykst er hætta á ferðum. Þá fara útflutningsatvinnuvegirnir úr skorðum og hætta á gengisfellingu vofir yfir,“ sagði Jóhannes í Bónus. Bifreiðar: JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON, INVGVARI HELGASYNI 1. Vonir stóðu til að árið 1995 yrði betra í bílasölu en undanfarin ár, eftir einhveija mestu kreppu sem gengið hefur yfir þjóðina á þessari öld. Arið stóð ekki nema að hluta undir þessum væntingum þó að fréttir um álver hafi haft í för með sér nokkurn sölukipp. Það var þó alls ekki nóg til þess að endumýja bflaflotann sem er farinn að eldast mjög mikið og ganga úr sér. Breytingar voru gerðar á reglum um innflutning notaðra bfla þar sem verð á tollum verður reiknað sam- kvæmt reikningum. Mér finnst þetta uggvænleg þróun en þama er um að Júlíus Vífill Ingvarsson, Ingvari Helgasyni: „Bjartsýnn á árið 1996 og tel að bílasala haldi áfram að auk- ast.“ ræða sömu reglur og giltu fyrir nokkrum árum. Árið 1987 var 25% af bflainnflutningi notaðir bflar en var 5% á sl. ári. Ég óttast að ekki verði alltaf farið að settum reglum í þessum inn- flutningi á notuðum bflum. Tollar á bflum eru allt of háir og gætu því margir freistast til að misnota þessar reglur. 2. Ég er frekar bjartsýnn á árið 1996 og tel að bflasala komi til með að aukast. Ég vona að efnahagslífið batni, kaupmáttur aukist og að friður haldist á vinnumarkaðnum. Notkun á bflum hér á landi er mjög mikil og það er ekki þjóðhagslega hagkvæmt að bflaflotinn eldist eins og hann hefur gert undanfarin ár. 1995 seldust um sjö þúsund nýir bflar og ég vona að sú tala verði um átta þúsund til átta þús- und og fimm hundruð á næsta ári. Sígandi lukka er best og ekki gott að stökkið verði allt of mikið því bflaum- boðin eiga mikið af notuðum bflum sem myndu hrapa í verði ef nýir bflar tækju of stóran kipp. Til þess að halda við eðlilegri endurnýjun þyrfti hins vegar að selja tíu- til ellefu þúsund bfla á landinu,“ sagði Júlíus Vífill hjá Ingv- ari Helgasyni. Fiskvinnsla og útgerð: BRYNJÓLFUR BJARNfl- SON, FORSTJÓRI GRflNDA 1. „Gífurlegar breytingar hafa átt sér stað í sjávarútvegi á undanförnum árum, aðallega vegna minnkandi afla- Brynjólfur Bjarnason, Granda: „Nokkrar vonir eru um að þorsk- stofninn sé að ná sér á strik.“ heimilda. Á yfirstandandi ári fóru að koma skýrar fram áhrif þessara breytinga, m.a. með lögum um fisk- veiðistjómun og ekki síður að mikil breyting hefur orðið á þeim fyrirtækj- um sem enn starfa í sjávarútvegi. Hagræðing sú, sem átt hefur sér stað á undanfömum árum, m.a. með sam- einingu félaga, skilar vonandi traust- ari fyrirtækjum í atvinnugreininni. 2. Nokkrar vonir em um að þorsk- stofn sé að ná sér á strik en meiri óvissa er um aðrar fisktegundir. Horfur á mörkuðum eru ágætar. Ef- laust verður sótt meira út fyrir 200 mflur sem fyrr,“ sagði Brynjólfur, forstjóri Granda. Hótel og veitingahús: JÓNAS HVANNBERG, HÓTEL SÖGU Jónas Hvannberg, Hótel Sögu: „Ég spái því að tekjulínuritið í ferða- þjónustu verði ekki strik upp á við árið 1996 heldur í besta falli lárétt lína.“ 41

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.