Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1995, Side 52

Frjáls verslun - 01.10.1995, Side 52
HUGURINN KOMINN í NÝJA STARFIÐ Mörgum starfsmönnum, sem segja upp og ráða sig annað, finnst oft óeðliíegt að þeir séu látnir vinna uppsagnarfrestinn, til dæmis 3 mánuði. Þeir vilja komast strax í burtu og færa þau rök að þeir séu komnir með hugann annað. Þetta eru mjög verðmæt rök. En á móti má spyrja hvort þeir séu ekki að nota amerísku aðferðina á fyrirtækið með því að óska eftir að hætta svo til á stundinni. Samningar eru jú gagnkvæmir. Starfslokasamningar verða æ al- gengari, sérstaklega þegar um stórar stjórnunarstöður er að ræða. En slík- ir samningar eru ekki eins algengir né af sömu stærðargráðu þegar um lægra setta starfsmenn er að ræða. En það fer hins vegar alveg eftir því hver leitar eftir samvinnu við hvern í upphafi, starfsmaðurinn eða vinnu- veitandinn. En komum að því á eftir. MJÚKfl LÍNAN Það er samdóma álit þeirra sem Frjáls verslun ræddi við að hin svo- kallaða mjúka aðferð ræður almennt ríkjum við starfslok í dag. Reyndar eru aðstæður við starfslok jafn mis- munandi og fyrirtækin og stjómend- urnir eru margir en meginlínan er mjúk. Þykir ekki gott afspurnar fyrir fyrirtæki að starfsmenn séu reknir með látum, allra síst ef þeir eru ofar- lega eða efst í píramídanum. Sé um starfslok háttsettra stjórnenda að ræða er yfirleitt samið um þau þannig að hvor aðili um sig ljúki samstarfinu í sátt, eins langt og það nú nær. Yfir- leitt er það svo að hvorugur aðili kær- ir sig um neikvæða umfjöllun fjölmiðla eða sögusagnir. Mikil fjölmiðlaum- fjöllun vegna uppsagnar starfsmanns getur verið mjög skaðleg fyrir fyrir- tækið enda kastljósinu þá stundum beint að hlutum sem forráðamenn eru kannski ekki mikið fyrir að flíka. Viðmælandi Frjálsrar verslunar sem rekur ráðninga- og ráðgjafafyrir- tæki segir að þó aðdragandi uppsagn- ar geti verið ágreiningur og missætti sé alltaf reynt að leysa málin. Og þótt menn hætti snögglega séu þeir á laun- um í 3-6 mánuði á eftir. „Þótt sjóði upp úr, setjist menn niður og semji þannig að báðir aðilar komi jákvæðir út úr því ferli, sem yfirleitt er frekar neikvætt, haldi reisn eftir uppsögn. “ FJÖLDAUPPSAGNIR ERFIÐAR Meðan starfslok eins manns virðist tiltölulega einfalt mál að leysa eru fjöldauppsagnir erfiðar og þá skiptir gífurlegu máli hvemig að þeim er staðið af hálfu fyrirtækisins. Nægir að minna á þöldauppsagnir Flugleiða fyrir hálfum öðrum áratug en í kjölfar þeirra urðu langvinnar deilur sem kristölluðust meðal annars í skrifum greina og bóka. Frjáls verslun ræddi við einn milli- stjórnanda sem þá var sagt upp störf- um eftir langan og farsælan starfsfer- il. Var hann fyrirvaralaust boðaður á fund síns yfirmanns einn eftirmiðdag. Sá skýrði hvernig í pottinn var búið. Viðmælandi vor var að vonum óhress með að vera í hópi „hinna reknu“ en sagðist hafa fullan skilning á ráðstöf- ununum sem slíkum. En honum var hins vegar nóg boðið þegar stjómand- inn rétti honum tilbúið uppsagnarbréf í hans eigin nafni sem hann átti bara að skrifa undir. „Ég var fullfær um að skrifa mitt eigið uppsagnarbréf. Þessi framkoma var engan veginn við hæfi gagnvart starfsmanni sem hafði unnið hjá fyrirtækinu í mörg ár. Þeir klikk- uðu alveg á aðferðinni." í dag kappkosta menn yfirleitt að fara eins mjúka leið í fjöldauppsögnum og ffekast er unnt. En undantekning- arnar em hins vegar nokkrar og um- fjöllun fjölmiðla þá í samræmi við það. Til dæmis þegar fréttist af uppsögn- um áður en þær hafa borist viðkom- andi starfsmönnum, sem heyra þá um þær í fjölmiðlum. HÖFÐAÐ TIL SANNGIRNI Samkvæmt lögum er uppsagna- frestur minst þrír mánuðir en getur verið allt að sex mánuðir, þó ekki lengri. Misjafnt er hvort menn vinna uppsagnarfrestinn eða hætta strax og fá hann greiddann, það getur farið eft- ir ýmsu. í viðtölum við menn sem starfa við ráðgjöf og ráðningar kemur fram að það fer almennt mikið eftir eðli starfanna hvort viðkomandi vinn- ur út uppsagnarfrestinn eða ekki. Sé viðkomandi í toppstöðu eða sjái hann um fjármál fyrirtækis hættir hann nær undantekningalaust strax og fær uppsagnarfrestinn greiddann. Annars ræður samkomulag um hvemig mál- um er háttað hverju sinni. Á stundum getur það beinlínis verið til skaða ef starfsmaðurinn starfar í fyrirtækinu eftir uppsögn. Bæði eiga sér stað hlutir sem fyrirtækið kærir sig ekki um að starfsmaður á förum komi ná- lægt og eins er starfsmaðurinn oft kominn með hugann annað og beitir sér því ekki til fulls við störf sín. Þótt hagsmunum beggja ætti að vera fullnægt, sé farið eftir laga- bókstafiium varðandi starfslok, þarf oft að fara út fyrir ramma laganna og taka tillit til annarra atriða. Þá er það fullkomlega undir stjómandanum komið hverjar lyktir mála verða. f slíkum tilfellum er mjög höfðað til sanngimi þar sem veginn er starfsald- ur viðkomandi, staða og möguleikar á að fá annað starf. Gott dæmi er þegar starfsmönnum á miðjum aldri er sagt upp störfum. Þeir eiga síður mögu- leika á að fá aftur vinnu og því mikil- vægt að þeir komi vel út úr uppsögn- inni, fái mjúka lendingu inn í eftir- launaárin. Mörg dæmi em um farsælan endi á slíkum starfslokamál- um en einnig um hið gagnstæða. FYRIRTÆKISETJA UPP GIRÐINGAR En era sérstakir starfslokasamn- ingar orðnir algengari? Já, en kannski ekki af því tagi sem tryggja stöðu starfsmannsins. „Menn geta gert kröfur ef þeir fara úr góðu starfi í annað starf, eru keypt-

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.