Frjáls verslun - 01.10.1995, Qupperneq 64
MJÖGÍ
SVIÐSUÓSINU
Finnur er sá ráðherra þessarar ríkisstjómar
sem hvað mest hefur verið í sviðsljósi fjöl-
miðla. Hér er hann að skrifa undir álsamn-
inginn við Alusuisse-Lonza á dögunum.
aður fótbolti af mikilli hörku. í fasta
kjamanum í þeim hópi voru óvægnir
íþróttakappar eins og Kristján Sig-
mundsson handknattleiksmaður,
Bjami Bjamason sem nú vinnur hjá
Sindrastál, Kristján Skarphéðinsson
sem vann hjá sjávarútvegsráðu-
neytinu en er nú kominn út til Brussel
og Jón Grímsson, löggiltur endur-
skoðandi. Þessir höfðu allir kynnst
Finni í Háskólanum en hinn bálkurinn í
kunningjahópnum er að austan, úr
Vík. Þar má nefna Sæmund Runólfs-
son, framkvæmdastjóra hjá Ung-
mennafélagi Islands og Hrólf Ölvis-
son framkvæmdastjóra Tímans, Ólaf
Andrésson hagfræðing og Rafn
Guðmundsson sendibflstjóra.
Núorðið fer Finnur einkum á völl-
inn sem áhorfandi og starfar með
íþróttafélaginu Fjölni í Grafarvogi að
foreldrastarfi en eldri börnin tvö eru í
íþróttum hjá Fjölni, sérlega þykir son-
ur hans, Ingi Þór, efnilegur í knatt-
spyrnu. Góðan árangur Framsóknar-
flokksins í Reykjavík í síðustu kosn-
ingum, þann besta í áratugi, má ekki
síst þakka miklu og öflugu starfí vina
og kunningja Finns úr Fjölnisstarfinu.
Hann fer sjálfur oft í líkamsræktar-
stöðvar, eins og Mátt, og hamast þar
á þrekhjóli og lyftir lóðum, stundum í
kompaníi með Eggert Skúlasyni,
fréttamanni og vini sínum, sem er
skólaður á Tímanum og gegn fram-
sóknarmaður. Eggert er reyndar ná-
skyldur Finni þar sem Hulda Magnús-
dóttir, móðursystir Finns, er amma
Eggerts. Eggert ólst upp með Finni
fyrstu æskuárin og sagt er að Finnur
hlusti grannt á hans ráð.
í sumar hefur Finnur reyndar tekið
upp gamlan þráð og skokkað með
reglulegum hætti með Sæmundi, vini
sínum og frænda, og þeir renna sér
allt að 10 kflómetra í einu og þykir ekki
mikið.
„Finnur er í fyrsta lagi duglegur, í
öðru lagi vinur vina sinna og í þriðja
lagi mjög skemmtilegur félagi og mik-
ill grallari,“ segir Sæmundur Runólfs-
son.
„Finnur er duglegur og fljótur að
taka ákvarðanir. Það er mikill kostur
en getur einnig verið galli,“ sagði
Gissur Pétursson, starfsmaður í sjáv-
arútvegsráðuneytinu, sem mikið hef-
ur unnið með Finni.
Þegar frístundir gefast er Finnur
farinn út úr bænum á vit sveitalífsins
og kyrrðarinnar. Ekki austur í Vík
eins og einhver gæti haldið heldur
vestur á Snæfellsnes, nánar tiltekið
að Innri-Kóngsbakka en þá jörð eign-
aðist hann ásamt nokkru öðrum í
kringum 1990. Þar hafa eigendumir
komið fyrir sameiginlegu sumarhúsi,
dyttað að húsum á jörðinni og nytja
smávægileg hlunnindi sem fylgja jörð-
inni en það eru einkum dúnn, lunda-
veiði og reki. Jörðinni fylgir 30% eign-
arhlutur í þremur smáeyjum þar sem
verpa samtals 50 til 60 æðarkollur.
Finnur og áðurnefndir félagar hans,
þeir Sæmundur Runólfsson, Kristján
Skarphéðinsson, Ólafur Andrésson,
Hrólfur Ölvisson og Rafn Guðmunds-
son, eiga saman 80% í hlutafélaginu
Innri-Kóngsbakka hf. Til fróðleiks má
geta þess að Tryggvi Pálsson, banka-
stjóri íslandsbanka, af grónum íhald-
sættum, á 20% af Innri-Kóngsbakka
og er þar í nokkurskonar félagsbúi
með Framsókn.
Finnur hefur mikinn áhuga á ferða-
lögum og hann og Sæmundur, frændi
hans, fóru mikla ævintýraferð saman
um Evrópu eitt sinn á breskum bfla-
leigubfl og lentu í ýmsum ævintýrum.
Þeir ferðuðust einnig talsvert saman
um hálendi íslands og hafa komið
saman á marga þekkta og lítt þekkta
staði þar, s.s. Víti, Kverkfjöll,
Hvannalindir og Marteinsflæður.
Þeir eru báðir félagar í laustengd-
um hópi Framsóknarmanna sem fer
HELSTU RÁÐGJAFAR FINNS
Hans helstu ráðgjafar eru Jón Sveinsson, lögfræðingur og fyrrverandi
aðstoðarmaður Steingríms Hermannssonar, Baldur P. Erlingsson og Helgi S.
Guðmundsson, báðir hjá VÍS, og dr. Arnar Bjarnason, svili hans. Þá eru ótaldir vinir
hans úr Kóngsbakka-hópnum, þeir Sæmundur Runólfsson, Kristján
Skarphéðinsson, fiskimálafulltrúi í Brussel, og Hrólfur Ölvinsson,
framkvæmdastjóri Tímans. Einnig mun hann leita ráða hjá Lárusi Finnbogasyni,
löggiltum endurskoðanda, og dr. Eyjólfi Árna Rafnssyni verkfræðingi
sem hann skipaði stjórnarformann Orkustofnunar.
64