Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1995, Page 65

Frjáls verslun - 01.10.1995, Page 65
NÆRMYND saman akandi til fjalla. Þá eru konur fáar í för þegar slíkar ferðir eru fam- ar. Ein þeirra var farin kringum þorrablót sem var haldið í kofa inn undir Sigölduvirkjun og þótti mikil og góð skemmtan. Meðal þeirra, sem slíkar ferðir fara, má nefna Halldór Guðbjamason bankastjóra, Hrólf Ölvisson blaðstjóra, Þórð Yngva Guðmundsson, fyrrum Lindarstjóra, Margeir Daníelsson, Baldur Erlings- son og Öm Gústafsson en þeir síðast- nefndu eru allir mishátt settir hjá tryggingafélögum en ýmsir forystu- menn Framsóknarflokksins, eins og Guðmundur Bjamason og Steingrím- ur Hermannsson hafa slæðst með í slíkar reisur sem þykja á köflum slarksamar og eru ekki skilgreindar sem fjölskylduferðir. í þessum ferð- um er gripið í silungsveiði með fyrir- drætti og hefur verið sullað í Kvíslar- veitum og einnig á fáfömum slóðum norðan við Jökuldali á Fjallabaksleið nyrðri, þar sem heita Faxasund. Finnur hefur einnig gaman af gönguferðum um íslenska náttúru og fór meðal annars í gönguferð yfir Fimmvörðuháls í fyrra ásamt ýmsum þungaviktarmönnum úr Framsókn eins og Halldóri Ásgrímssyni. Hann hefur ásamt Sæmundi, frænda sín- um, Sigurði AðalsteinssjmiJökuldals- jarli og fleirum farið á hreindýraveiðar í Jökuldal og hann og kunningjamir renndu oft í Rangámar síðasta sumar en kunnugir segja að Finnur hafi ekki verið mikill stangveiðimaður fyrr en á seinustu ámm þótt hann hafi einatt flotið með í ýmsar laxveiðiferðir með ráðherrum úr sínum flokki. f sínum vinahópi er Finnur orðlagð- ur sögumaður og þegar menn lyfta glasi á góðum stundum segir hann iðulega skemmtisögur af einkenni- legu fólki og sérstæðum uppákom- um. Finnur heldur sterkum tengslum við Mýrdalinn þaðan sem hann er upp mnninn og á marga vini og kunningja sem hann kynntist þar á sínum upp- vaxtar- og skólaárum. Það er orðlagt hve vel Mýrdælingarnir og Sunnlend- ingamir héldu hópinn þegar þeir fjöl- menntu til Reykjavíkur í nám á árun- um milli 1970 og 1980 en Finnur var þar á meðal partur af stómm árgangi. Hann ræktar einnig tengslin við Mýrdalinn með því að fara á fýlaveið- ar og lundaveiðar með heimamönnum í sínum vinahópi. Fýlaveiði og fýlaát er gömul hefð í Mýrdal og mikil og góð kúnst að veiða feitan fýl, reyta hann og svíða og salta síðan eftir kúnstarinnar reglum en Finnur þykir nokkuð slyngur í því og kann vel að veiða og verka fýl en þykir slakur þegar kemur að því borða hann svo hann fær venjulega sérsoðið saltkjöt því harðsnúnar fýlaætur segja að ein- ungis þeir, sem elski fýl, megi borða hann en Finnur segist einhvem tím- ann hafa borðað yfir sig af þessum daunilla fogli. Ert þú með lánshæfa hugmynd til eflingar atvinnulífi ? Við veitum góðri hugmynd brautargengi! Við veitum fúslega nánari upplýsingar um lán til atvinnuskapandi verkefna í öllum greinum. LANASJOÐUR VESTUR -NORÐURLANDA ENGJATEIG 3 • PÓSTHÓLF 5410 • 125 REYKJAVÍK SÍMI: 560 5400 ■ FAX: 588 2904 65

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.