Frjáls verslun - 01.10.1995, Side 67
Þessa mynd frá Bláa lóninu birtir Fortune með eftirfarandi myndatexta: íslendingar eru á meðal ánægðustu þjóða í
heimi.
verða. Á íslandi eru vandamálin engu
minni en hjá okkur hinum en þeir eru
samt ánægðir. Jafnvel þótt þeir búi á
þessari vindblásnu eyju úti í hafi þar
sem sólar nýtur aðeins örfáar klukku-
stundir á dag yfir vetrartímann.
Ég hef nokkra hugmynd um það af
hverju íslendingar eru svo ánægðir
með hlutskipti sitt. Undanfarin nítján
ár hef ég dvalið á íslandi við laxveiðar
yfir sumartímann og á þessum tíma
hef ég kynnst nokkrum íslendingum
vel.
ÞÓRIR HLYNUR ÞÓRSSON
Ég ætla að byija á því að kynna Þóri
Hlyn Þórisson en hann er 28 ára
gamall. Síðastliðið sumar dvaldi Hlyn-
ur í einn mánuð við Norðurá þar sem
hann vann sextán klukkustundir á sól-
arhring, sjö daga vikunnar, sem leið-
beinandi við fljótið. Hann setti lax í
poka, ók jeppum á milli veiðistaða og
þvoði leirtau í heilan mánuð án þess
að hvílast nema yfir blánóttina. Nei,
hann var ekki að þessu puði fyrir pen-
inga. Þetta var sumarfríið hans.
Svona kaus hann að eyða frítíma sín-
um. í augum Hlyns jafnaðist dvölin
við Norðurá á við paradís á jörðu.
Síðla í júk', eftir einnar nætur hvfld í
Reykjavík, hélt Hlynur til vinnu sinn-
ar sem var starf um borð í stóru fiski-
skipi. Næstu 24 sólarhringana vann
hann í sex stundir og átti frí í sex
stundir allan sólarhringinn. Ég geri
ráð fyrir að Hlynur sé einn af þeim
mönnum sem kallast vinnualkar en
það sama má segja um landa hans
almennt. Þessi mikla vinna gefur að
vonum góðar tekjur. Meðallaun í
landinu sýna að íslendingar eru meðal
auðugustu þjóða jarðarinnar. Skatta-
peninga sína hafa þeir nýtt m.a. til að
byggja upp mjög gott mennta- og heil-
brigðiskerfi.
Á íslandi er lægsta dánartíðni
nýbura í heiminum og auk þess eru
íslendingar meðal þeirra sem lifa
lengst. Hjá þungbúnum Svisslending-
um er velmegunin líka mikil en engum
dettur í hug að saka þá um yfirdrifna
kátínu yfir því.
HAMINGJA LEYNIST í ÓÞÆGINDUM
Þórólfur Þórlindsson, prófessor í
þjóðfélagsfræði við Háskóla íslands,
er þeirrar skoðunar að skýringar á
hamingju íslendinga sé ekki að leita í
k'fsþægindum þeirra heldur óþægind-
um. Þau hafi kennt þeim að vera
þakklátir fyrir það sem þeir hafa. Ein-
angraðir í Norður-Atlantshafinu,
löðrungaðir af fjandsamlegum sænum
hafa íslendingar þurft að búa við
hverful fiskimið. „Harðneskja náttúr-
unnar mótar menningu okkar,“ segir
Þórólfur. „Það er ástæðan fyrir því að
íslendingar hafa meira umburðarlyndi
gagnvart vandamálum sem kunna að
koma upp á lífsleiðinni. Þeir hafa lært
að búast ekki við stöðugleika kkt og
aðrar þjóðir hafa átt að venjast.
í Bandaríkjunum er fólk almennt
mun betur statt efnalega en forfeður
þeirra. Meiri fjármunum er eytt í
menntun, eftirlaun, heilbrigðismál og
atvinnulausa en áður var gert. En við
virðumst óhamingjusamari en áður.
Staðreyndin er sú að við erum
óánægðari með okkar hlut en forfeð-
ur okkar voru.
Bandaríkjamenn eru, eins og ís-
lendingar, einstaklingshyggjumenn.
67