Frjáls verslun - 01.10.1995, Síða 69
FOLK
SIGRÚN TRAUSTADÓTTIR, FLUGMÁLASTJÓRN
Sigrún Traustadóttir, framkvæmdastjóri fjármála- og
stjórnsýsludeildar Flugmálastjórnar.
□ lþjóðasamvinna og
hátækni eru orð sem
koma einna fyrst upp
í hugann þegar landsmenn
heyra nafnið Flugmálastjórn
nefnt. Einmitt þessi tvö orð
lýsa mjög vel umfangsmikilli
starfsemi Flugmálastjórnar
en stofnunin veltir um 1.6
miljarði króna á ári og hefur
230 starfsmenn í sinni þjón-
ustu. Nú, á 50 ára afmæli
Flugmálastjórnar, hefur
fyrsta konan skipað sér í
raðir æðstu stjórnenda í
höfuðstöðvunum á Reykja-
víkurflugvelli. Sú sem braut
þetta blað í flugsögu íslands
er 33 ára að aldri, Sigrún
Traustadóttir viðskipta-
fræðingur. Sigrún er fram-
kvæmdastjóri fjármála- og
stjórnsýsludeildar Flug-
málastjórnar en deildin fer
með fjármál og annast
starfsmannahald. Undir
stjórn Sigrúnar starfa tíu
manns.
Sigrún lauk stúdentsprófi
frá Verslunarskóla íslands
fyrir þrettán árum og út-
skrifaðist síðan frá við-
skiptafræðideild Háskóla ís-
lands árið 1989. Að loknu
stúdentsprófi starfaði Sig-
rún í þrjú ár hjá Sláturfélagi
Suðurlands, m.a. sem inn-
heimtustjóri. Með við-
skiptafræðiprófið í fartesk-
inu lá leiðin í stól íjármála-
stjóra hjá Vélum og
þjónustu hf. Árin 1991-1994
var Sigrún fjármálastjóri hjá
Hagvirki-Kletti.
HLYNNT AUKNU SJÁLFSTÆÐI
STOFNUNARINNAR
„Rekstur Flugmála-
stjórnar skiptist í sjö aðal-
deildir með jafn marga fram-
kvæmdastjóra en í grófum
dráttum skiptist allur þessi
TEXTI: ELÍSABET ÞORGEIRSDÓTTIR
rekstur í þrjá þætti, þ.e.
þjónustu, eftirlit og fram-
kvæmdir. Meginmarkmið
Flugmálastjórnar eru skýr
og þeim má einnig skipta í
þrennt. í fyrsta lagi, að
stuðla að greiðum og hag-
kvæmum samgöngum inn-
anlands og milli landa í sam-
ræmi við lög og reglugerðir
um loftferðir. í öðru lagi, að
treysta innviði flugsam-
göngukerfisins og loks að
stuðla að hagstæðu ytra
umhverfi fyrir flugstarf-
semi,“ segir Sigrún. Hún
bætir því við að þeir fjár-
munir, sem Flugmálastjórn-
ar hafi úr að spila, séu tak-
markaðir en þrátt fyrir það
sé sífellt verið að gera meiri
og meiri kröfur til stofnun-
arinnar.
Sigrún segir að það hafi
verið viðbrigði að koma úr
MYNDIR: BRAGI P. JÓSEFSSON
einkageiranum til hins opin-
bera. „Mér finnst mikil
ábyrgð fylgja því að fara
með fé skattborgaranna og
mín hugmyndafræði er er sú
að ef við náum að minnka
útgjöldin í ríkisrekstrinum
séu möguleikar á að lækka
skatta," segir Sigrún. Hún
segir tilraunir Friðriks
Sophussonar fjármálaráð-
herra um samningsstjómun
mjög áhugaverðar. í þeim
felst að ríkisstofnanir á borð
við Flugmálastjórn geri
samning við ráðuneyti um
að skila ákveðnum verkefn-
um og fá til þess tiltekið fjár-
magn. „Þessar nýju hug-
myndir ganga út á aukið
sjálfstæði og ábyrgð okkar
stjórnendanna og það er
mjög í mínum anda. Núver-
andi rekstrarfyrirkomulag
finnst mér þungt í vöfum og
ekki í samræmi við nútíma-
stjórnunarhætti. “
FERÐALÖG 0G ÚTIVERA
Þegar Sigrún er spurð um
líf sitt fyrir utan vinnuna
sagði hún að útivera og
ferðalög væru efst á blaði.
„Heilbrigð sál í hraustum
kkama og að njóta lífsins eru
eftirsóknarverð gæði fyrir
hverja manneskju. Þannig
reyni ég að komast í a.m.k.
þrjár gönguferðir í viku árið
um kring og á vetuma tek
ég fram skíðin mín góðu.
Andlega næringu fæ ég af
ferðalögum til framandi
landa og samveru með
skemmtilegu fólki,“ segir
hún. Félagsmál hafa togað í
Sigrúnu. Á háskólaárum
sínum tók hún virkan þátt í
stúdentapólitíkinni, satm.a.
í stúdentaráði fyrir Vöku og
var varaformaður Sam-
bands ungra sjálfstæðis-
manna. Sem áhugamann-
eskja um ferðalög á fjarlæg-
ar slóðir hefur Sigrún unnið
fyrir ASSE-skiptinemasam-
tökin.
Sigrún Traustadóttir seg-
ir spennandi viðfangsefni
framundan hjá Flugmála-
stjórn og stofnunin eigi
mikla framtíðarmöguleika.
„Flugmálastjóm hefur kom-
ið mér á óvart enda fmnst
mér þar innanbúðar ekki
ríkja þessi dæmigerði ríkis-
stofnanabragur. Flugmála-
stjóri, Þorgeir Pálsson, er
öruggur og traustur stjórn-
andi, framkvæmdastjóra-
hópurinn samhentur og í
rauninni valinn maður í
hverju starfi. Stjómendur
og starfsfólk hafa opnar og
nútímalegar hugmyndir um
stofnunina og framtíð henn-
ar,“ segir Sigrún Trausta-
dóttir að lokum.
69