Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1995, Side 73

Frjáls verslun - 01.10.1995, Side 73
FOLK ÚLFAR STEINDÓRSSON, STÖÐ 3 Úlfar var fjármálastjóri hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum þegar honum bauðst starf sjónvarpsstjóra og sló til. V stotnun btoðvar J og söfnun áskrifenda hefur far- ið fram úr björtustu vonum. Við leggjum áherslu á að áskriftarverð sé lágt til þess að allir hafi möguleika á að vera með. Með áskrift að Stöð 3 fær fólk hefðbundna dagskrárrás og aðgang að þórum gervihnattastöðvum að auki, — segir Úlfar Steindórsson, sjónvarps- stjóri Stöðvar 3. Úlfar er 39 ára. Hann lauk stúdentsprófi frá Verslunar- skóla íslands 1976. í þrjú ár vann hann hjá Skrifstofuvél- um hf. en árið 1979 flutti hann til Vestmannaeyja þar sem hann kenndi við barna- skólann og þjálfaði hand- bolta í tvo vetur. Árið 1982 settist hann í viðskiptadeild Háskóla íslands og lauk prófi 1986. Þá fór hann til Bandaríkjanna og lauk MBA prófi fi"á V.C.U. í Richmond í Virginíu 1988. „Fljótlega eftir að ég kom heim gerðist ég fjármála- stjóri hjá P. Samúelssyni - Toyota umboðinu og var þar þangað til í apríl 1992 þegar ég tók við starfi fjármála- stjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum og gegndi því þangað til í september sl.,“ segir Úlfar. EFNIFRÁ ÍSLENSKUM FRAMLEIÐENDUM Undirbúningur að stofnun Stöðvar 3 hófst í desember 1994 en það var ekki fyrr en í ágúst 1995 sem Úlfari var boðið starf sjónvarpsstjóra. Hann kom til starfa í sept- ember og hefur tekið þátt í því með starfsfólki stöðvar- innar að vinna hörðum höndum að uppbyggingu tæknibúnaðar og dagskrár- efnis. „í upphafi var staðan sú að um leið og eitt vandamál var leyst komu tvö í staðinn en nú er það ekki lengur svo. Nú er allt að verða klárt fyrir opnun stöðvarinnar," segir Úlfar þegar viðtalið er tekið nokkrum dögum áður en útsendingar hófust. „Á dagskrárrásinni verður er- lent efni eins og framhalds- myndir, sápur, spennu- myndir, bamaefni og kvik- myndir. í stað þess að stofna nýja deild til fram- leiðslu á innlendu efni ætlum við að kaupa efni af hinum fjölmörgu framleiðendum myndefnis hér á landi. Þannig munum við leggja okkar af mörkum við að byggja upp þau fyrirtæki sem standast kröfur okkar. Aðgangur að gervihnatta- stöðvunum, CNN, Euro- sport, Discovery og MTV, á tvímælalaust stóran þátt í þeim góðu viðbrögðum sem íslenskir áhorfendur hafa sýnt stöðinni," segir Úlfar. GAMALL ÍR-INGUR Úlfar er kvæntur Jónu Ósk Pétursdóttur og eiga þau 3 ára og 1 árs syni. Auk þess á Úlfar tvo syni frá fyrra hjónabandi, þeir eru 17 og 11 ára gamlir. Þegar talið berst að áhugamálum og tómstunda- störfum segist Úlfar ekki hafa tíma fyrir neitt annað en vinnuna um þessar mundir. íþróttir eru hans helsta áhugamál og æfði hann bæði fótbolta og hand- bolta með ÍR til tvítugsald- urs. „Um tvítugt komst ég að því að ég ætti ekki mikla möguleika í keppnisíþrótt- um og ákvað að viðurkenna það,“ segir hann en bætir við að hann hafi þó spilað átta leiki með meistaraflokki ÍR í handbolta. „Ég segi stundum að mig hafi bara vantað 92 leiki í hundraðið," segir hann stoltur og hlær. „Ég var byijaður að þjálfa yngri flokka þegar ég var 16 ára en undanfarin ár hef ég látið mér nægja að fylgjast með íþróttunum úr fjar- lægð. Frítímann nota ég að mestu til að vera með fjöl- skyldunni og ferðast,“ segir Úlfar. 73

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.