Frjáls verslun - 01.02.1998, Blaðsíða 16
FRÉTTIR
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstöðumaður verðbréfasviðs K.N., Sveinn
Torfi Pálsson, forstöðumaður stjórnunarsviðs K.N., Jóhann Ivarsson, starjs-
maður Kaupþings í Reykjavík, Tryggvi Tryggvasonjramkvœmdastjóri K.N. og
Þorsteinn Hjaltason lögfrœðingur.
KAUPÞING NORDURLANDS10 ARA
Qaupþing Norðurlands varð 10 ára í apríl 1997. Fyrirtækið hefur
fagnað afmæli sínu með margvíslegum hætti á árinu, boðið
vinum og viðskiptamönnum í helgarferð til Grímseyjar, látið
hanna nýtt merki og haft opið hús fyrir gesti og gangandi á aðventunni.
í lok febrúar s.l. var efnt til veislu í tengslum við aðalfund Kaupþings
Norðurlands og boðið í teiti í nýjum og glæsilegum húsakynnum við
Skipagötu 9 á Akureyri.
SigurðurJ. Sigurðsson, bœjarfulltrúi á
Akureyri og Karl Eskild Pálsson, frétta-
ritari RÚV.
M U R A R A R
GÓLF
SLÍPIVÉLAR
- þar sem mest á reynir
SKEIFUNNI 3E-F
SÍMI581 2333 FAX 568 0215
CMVmapat:
í ELDLÍNUNNI
NÝR STJÓRI
Eiríkur S. Jóhannsson,
nýráðinn kaupfélags-
stjóri KEA.
Eiríkur S. Jóhannsson hefur verið ráðinn
kaupfélagsstjóri Kaupfélags Eyfirðinga á Ak-
ureyri. Kaupfélagið hefur löngum borið höfuð
og herðaryfir atvinnulífið við Eyjafjörð og er
meðyfir 11 milljarða veltu.
iríkur er aðeins 30 ára gamall og er þvi
ótvírætt með yngstu stjórnendum stórfyr-
irtækja á íslandi. Hann tekur við starfinu
af Magnúsi Gauta Gautasyni sem tekur við starfi
framkvæmdastjóra Snæfells en það fyrirtæki mun
sjá um allan sjávarútvegsrekstur KEA og dótturfyr-
irtækja þess. Þannig mun Eiríkur ekki stýra eins
fjölþættum rekstri og fyrirrennarar hans. Mörgum
þykir Eiríkur vera ungur en nærtækt fordæmi í
sögu KEA er Magnús Gauti sem var aðeins 38 ára
þegar hann tók við starfi kaupfélagsstjóra.
Eiríkur er heimamaður á Akureyri fæddur og al-
inn upp í höfuðstað Norðurlands. Foreldrar hans
eru Jóhann Helgason, deildarstjóri ríkisskattstjóra
á Akureyri, ættaður tfá Þórustöðum í Eyjafirði, og
Sigríður Árnadóttír hústfeyja, ættuð frá Finnsstöð-
um í Eiðaþinghá.
Eiríkur varð stúdent tfá MA1988, lauk BS í hag-
fræði frá HÍ1991 og lærði síðan hagfræði við Vand-
erbilt University í Nashville, Tennessee í Bandaríkj-
unum.
Hann starfaði í hagdeild Landsbanka Islands að
loknu námi en tók síðar við starfi útíbússtjóra bank-
ans á Akureyri og hefur gegnt því síðan og verið
svæðisstjóri á Norðurlandi. Eiríkur hefur kennt við
Háskóla íslands, Vanderbilt University og Háskól-
ann á Akureyri. Hann hefur setið í stjórnum
súkkulaðiverksmiðjunnar Lindu, slippstöðvarinnar
Odda og skinnaverksmiðjunnar Foldu og verið
gjaldkeri KA.
Eiríkur er í sambúð með Friðriku Tómasdóttur,
leikskólakennara lfá Akureyri. Friðrika er dóttír
Rannveigar Jónsdóttur og Tómasar Arnar Agnars-
sonar. Þau eiga saman tvö börn, Marínu f. 1994 og
nýfæddan son. SO
16