Frjáls verslun - 01.03.1998, Qupperneq 14
Tvö börn af fjórum börnum Rakelar og Ágústs Sigurðs-
sonar starfa með henni við fyrirtækið. Hér stilla þau sér
upp fyrir framan málverk Baltasars af Sigurði Ágústssyni,
stofhanda fyrirtækisins. Þau standa sitthvorum megin
Sigurður Ágústsson yngri og Ingibjörg Helga, elsta dóttir-
in. Rakel heldur á nokkurra vikna gamalli óskírðri dótt-
ur Sigurðar og Erlu.
Innskrift var verslunarformið og peningar sjaldséðari en
nú.
TEHÚS OG BÍÓ
Ágúst, eiginmaður Rakelar, vildi standa á eigin fótum í sín-
um atvinnurekstri þótt hann væri sjálfsagður arftaki föður
síns. Hann fór til náms og starfa í Bandaríkjunum um tíma,
skömmu eftir tvítugt, og þegar hann kom heim 1958 setti
hann á stofn veitingastað og kvikmyndahús í Stykkishólmi og
flutti þannig andblæ rokks og brilljantíns með sér inn í sam-
félagið í Hólminum þar sem stundum var sagt fyrr á öldinni
að íbúarnir töluðu dönsku á sunnudögum.
Veitingastaðurinn hétTehúsið og þótti ekki lítil nýlunda að
því. Þar var hægt að fá tebolla en líka kaffi, hamborgara og
sælgæti. Fyrstu árin eftir að Rakel flutti vestur starfaði hún,
ásamt Ágústi við þennan rekstur, seldi miða í bíóið og reif af
og afgreiddi í Tehúsinu. Á þessum árum var verið að sýna
bæði leikrit og kvikmynd eftir Somerset Maugham sem hét
Tehús ágústmánans og menn voru fljótir að sjá ákveðna sam-
líkingu.
Agúst og Rakel bjuggu, ásamtforeldrum hans, í svonefndu
Clausenshúsi. Það er kaupmannsbústaður í hjarta bæjarins,
reistur árið 1874 þegar íslendingar eignuðust stjórnarskrá og
héldu fyrstu þjóðhátíðina. Húsið hafði fylgt með í kaupunum á
Tang&Riis og hefur því næstum alla öldina hýst fleiri en einn
ættlið þessarar stórhuga fjölskyldu. Öll fjögur börn Ágústs og
Rakelar eru fædd þar og alin upp í nánu sambýli við afa og
ömmu þar sem uppeldi foreldranna sleppti.
Til gamans má geta þess að vitað er að þegar Clausenshús
var byggt 1874 var það reist að hluta úr viði enn eldra kaup-
mannshúss sem var byggt 1764. Mikið af rúmlega 230 ára
gömlu burðarvirki er enn að finna í húsinu og gerir það, und-
ir ytra borðinu, elsta húsið í Stykkishólmi.
ÁGÚST 0G RAKEL
Þegar Sigurður, faðir Ágústs, fór að reskjast tóku Ágúst og
Rakel í auknum mæli við stjórnartaumunum í fyrirtækinu,
öxluðu ábyrgðina sem því fylgdi og tóku alfarið við rekstrin-
um 1968. Kvíarnar voru færðar út strax árið 1969 þegar sölt-
unarstöð í Rifi var keypt og hafin saltfisksverkun þar. Fyrir-
tækið jók síðar við umsvif sín í Rifi þegar frystihús var keypt
þar árið 1975 sem síðar hýsti rækju- og bolfisksvinnslu í
nokkur ár. í dag er engin starfsemi á vegum SigurðarÁgústs-
sonar ehf. í Rifi en saltfiskverkunarhúsið þar er enn í eigu fyr-
irtækisins.
Merkasta nýjungin sem Ágúst hrinti í framkvæmd, var þó
tvímælalaust sú að heija vinnslu hörpudisks hjá Sigurði
Ágústssyni ehf. árið 1970. Allar götur síðan hefur hörpudisk-
ur veiddur í Breiðafirði verið aðalframleiðsla fyrirtækisins og
það jafnframt stærsta fyrirtæki
landsins á þvi sviði. Með þessu
vann Ágúst mikið brautryðjenda-
starf sem segja má að flestir íbúar
Stykkishólms og víðar á Snæfells-
nesi hafi notið góðs af.
Ágúst og Rakel voru ólík að því
leyti að hann var iðulega ótrauðari við að taka þátt í nýjung-
um og gera tilraunir með nýjungar á ýmsum sviðum meðan
hún var varkárari. Það er mat flestra sem til þekkja að þau
hafi verið samhent við rekstur fyrirtækisins og deilt með sér
þeim þáttum í stjórn þess sem hvoru fyrir sig hentaði betur.
Þó segja sumir að Rakel hafi alltaf ráðið því sem hún vildi ráða
og fylgst með rekstrinum af sama áhuga og Ágúst. Þessu til
staðfestingar segja gárungarnir að hún hafi verið með labb-
rabb tæki með sér á fæðingardeildinni þegar yngri börnin
Það var einnig rekið kaupfélag í Stykkishólmi og í byijun
sjötta áratugarins, þegar Rakel flutti vestur, var mikil sam-
keppni milli þessara tveggja fylkinga bæði um viðskipti og
vinnuafl. Þarna mátti auðveldlega einnig greina línur sem
skiptu mönnum í pólitískar fylkingar eins og víðar á lands-
byggðinni. Framsóknarmenn fylgdu kaupfélaginu en sjálf-
stæðismenn hölluðu sér að Sigurði.
Það er því óhætt að fullyrða að Sigurður Ágústsson ehf. í
Stykkishólmi sé ekki alveg dæmi-
gert fjölskyldufyrirtæki í sjávar-
plássi á Islandi. Sá öflugi atvinnu-
rekstur, sem þar er stundaður í
dag, teygir sig aftur fyrir aldamótin
í fjórar kynslóðir. Við að byggja á
grunni hins forna verslunarveldis
við Breiðafjörð má segja að þræðirnir liggi óslitnir aftur til
miðalda, til tíma selstöðukaupmanna og einokunarverslunar.
Þess vegna er saga fyrirtækisins og þar með saga fjölskyld-
unnar í raun ofin saman við íslandssöguna á þessari öld og
þótt lengra væri horft.
AVALLT VIÐBUIN
Þegar hún er spurö út í stjórnunarstíl eða
stjórnunaraðferðir brosir hún góðiátlega og segir
að það sem hún kunni í slíku hafi hún lært í
skátunum í gamla daga.
NÆRMYND
14