Frjáls verslun - 01.03.1998, Blaðsíða 50
auk þróunarfyrirtækisins NaviPlus. Ný-
lega fékk verslunarkerfi NaviPlus vottun
sem staðalkerfi frá Navision Software
A/S, framleiðanda Navision Financials.
Verslunarkerfið er því komið í alþjóðlega
dreifingu og er selt sem viðbótarkerfi,
eða Add-on hluti af Navision Financials
upplýsingakerfinu.
Meðal annarra nýjunga frá Navís-Land-
steinum eru tollkerfi og útflutningskerfi í
Navision Financials fyrir íslenskan mark-
að. Þessi kerfi sjá um allan útreikning og
útprentun tollskjala og halda að auki utan
um inn- og útflutning fyrirtækja.
Bæði kerfin bjóða auk þess upp á
möguleikann á rafrænum skjala-
sendingum til Tollstjóraembætt-
isins
Starfsmenn Navís-Landsteina á íslandi
eru 30 og framkvæmdastjóri er Þorsteinn
Guðbrandsson. Alls vinna um 70 manns
hjá Landsteina samstæðunni.
Framkvæmdastjóri Landsteina Inter-
national er Aðalsteinn Valdimarsson.
ÞROUN www. throun.is
Þróun starfar einkum á tveimur sviðum.
Fyrirtækið selur og þjónustar staðlaðan
viðskiptahugbúnað og vinnur við sérverk-
efni. I deild fyrir viðskiptalausnir er
Concorde XAL viðskiptahugbúnaðurinn
gangsettur og aðlagaður, ásamt því að
smíða sérlausnir og veita þjónustu. Meðal
viðskiptavina eru Fálkinn hf., Lyljaverslun
íslands hf., RARIK, KEA og ísaga ehf. Sem
dæmi um sérlausn sem fyrirtækið hefur
þróað má nefiia kerfi fyrir lotur og fyrning-
ar í birgðahaldi fyrir lyfjageirann. Þar er
komið tíl móts við strangar kröfur
varðandi birgðahald lyija. Einnig hef-
ur verið þróuð sérlausn fyrir apótek,
sem byggir á Concorde XAL. Hana er
verið að taka í notkun í nokkrum apótekum
þessa dagana. Framleiðslustýring er svið
sem Þróun leggur einnig áherslu á. Nú er
unnið að uppsetningu á nýjustu útgáfu
Concorde hjá Luxo lampaframleiðandan-
um í Bandaríkjunum. Þar er lögð sérstök
áhersla á gangsetningu ffamleiðslustýring-
ar. Sérverkefnadeild er hugbúnaðardeild
sem vinnur sérlausnir og þróunarverkefni
fyrir ýmis fyrirtæki svo sem Islandspóst
hf., sjúkrahús, banka, opinberar stofhanir
o.íl. Hjá Þróun er unnið samkvæmt gæða-
handbók sem byggir á TicklT staðli og
steftit er að vottun á næsta ári. Starfsmenn
hjá Þróun eru um 30 og framkvæmdastjóri
er Halldór Friðgeirsson.
KERFI www.kerfi.is
Kerfi hf. var stofnað 1954 en hefur starf-
að í núverandi mynd frá 1972.
Fyrirtækið framleiðir og selur sinn eig-
in viðskiptahugbúnað undir nafninu Alvís.
Einnig hefur Kerfi hf. sett á markað Sea-
Scape, sérlausnir fyrir sjávarútvegsfyrir-
tæki. Lausnir frá Kerfi hf. eru í notkun hjá
fjölmörgum fyrirtækjum bæði stórum og
smáum. Meðal viðskiptavina Kerfis hf. má
telja Vífilfell, Heklu, Samheija hf. og fleiri.
Fold 3.0 qefur eFtirFarandi möquleika:
• Reiknar núvirði út frá ávöxtunarkröfu
• Finnur afföll eða yfirgengi
• Reiknar gengi
• Finnur skattaverð greiðsiurunu
• Finnur næsta gjalddaga skuidabréfa
• Finnur næsta útdráttardag húsbréfa
• Finnur eftirstöðvar
• Reiknar áfallna vexti og verðbætur
• Prentar út yfirlit greiðslurunu
TölvuMyndir
TölvuMyndir • Mörkin 4 • 108 Reykjavík • Sími 569 9010 • e-mail: fold@tolvumyndir.is
Lausnin er Fundin!
Fold 3.0 er ny oq endurbætt utqáFa aF
vinsæla skuldabréFaForriti Fold 1.0 oq Fold 2.0
*
50