Frjáls verslun - 01.03.1998, Blaðsíða 52
iKs«
llÍfW
Upphaflega sinnti Kerfi hf. eingöngu
forritun á IBM AS/400 og S/36 en þeim
forritum, sem Kerfi hf. býður fyrir PC,
fjölgar sífellt. A allra síðustu árum hefur
Kerfi hf hannað og forritað launakerfið
Kaupmátt, ProQM, sem er gæðakerfi fyrir
matvælafyrirtæki og frystitogarakerfið Atl-
antis. Kerfi hefur sinnt stórum verkefhum
á erlendri grund, m.a. fyrir Coldwater
Seafood í Bandaríkjunum og Bretlandi.
Hjá Kerfi vinna 19 manns og fram-
kvæmdastjóri er Björn Z. Ásgrímsson. S3
HVAÐ ERU RISARNIR AÐ GERA?
Qimm fyrirtæki bera höfuð og herð-
ar yfir öll önnur þegar kemur að
sölu innflutts hugbúnaðar, þjón-
ustu við hann, sölu á tölvum og tölvubún-
aði ásamt viðeigandi þjónustu. Þetta eru
Nýherji, Tæknival, Opin kerfi, EJS og
Skýrr. Vegna þess að hér er verið að fjalla
um hugbúnað og hugbúnaðariðnaðinn
fyrst og fremst verður aðeins litið á þann
þátt í starfsemi þessara fimm risa.
TÆKNIVAL www.taeknival.is
„Við lítum á það sem framtíðarverkefni
að hasla okkur völl í hugbúnaðarfram-
leiðslu. Þar eru einkum tvö svið sem
við beinum sjón-
um okkar að.
Annars vegar er
það sérhæfður
hugbúnaður fyrir
sjávarútveginn og
hins vegar við-
skiptahugbúnaður.
Við teljum að ýmis
tækifæri felist í sam-
einingu þessara
tveggja þátta og
stefnum á útflutn-
ing,“ segir Sigríður
Olgeirsdóttir, for-
stöðumaður hugbún-
aðarsviðs Tæknivals.
Tæknival hefur í
nokkur ár þróað Haf-
dísi, sem er sérhæft
upplýsingakerfi fyrir
frystihús, rækjuverk-
smiðjur og frystitogara.
Talsvert hefur verið selt
af Hafdísi á innanlandsmarkaði. Sigriður
segir að Hafdís sé skilgreind sem kerfi fyr-
ir allan matvælaiðnað og væri stefht með
hugbúnaðinn á erlendan markað.
Tæknival hefur látið til sín taka í við-
skiptahugbúnaði með lausnir byggðar á
Concorde XAL. Tæknival selur og þjónust-
ar Concorde XAL auk þess að smiða ýms-
ar sérlausnir fyrir viðskiptavini. Ein slík
sérsmíði er verslunarkerfi sem er byggt
ofan á Concorde XAL og hefur fengið
nafhið Retail Manager. Retail
Manager er hugbúnaður fyrir
verslanir sem tengist kassakerfum
og er stjórntæki fyrir verslunar-
stjóra. Góð reynsla er komin á þetta
kerfi hérlendis og er það m.a. í notkun hjá
fyrirtækjum eins og Skeljungi, Skífunni,
Máli og menningu, Samkaupum og fleir-
um. Retail Manager kerfið hefur verið
kynnt á sýningum eriendis, t.d. Cebit í
Hannover f mars sl. Gengið hefur verið frá
samningum við end-
ursöluaðila í Noregi
og Svíþjóð og eru
fyrstu sölurnar þar
að ganga í gegn.
Tæknival vinnur
að aðlögun og upp-
setningu á við-
skiptaupplýsinga-
kerfi (VUK) fyrir
Rafmagnsveitur
Reykjavikur og
RARIK Þetta er
sænskt kerfi frá
WM-Data Ellips
sem Tæknival
tekur að sér að
þýða, staðfæra
og bæta við ein-
ingum sem ís-
lensku orku-
veitufyrirtæk-
in óska eftir.
Öðrum orku-
fyrirtækjum á íslandi verður boðið þetta
kerfi þegar uppsetningu er lokið hjá RR og
RARIK. Fyrirspurnir hafa borist erlendis
frá vegna þeirrar sérsmíði sem Tæknival
hefur annast
Albatross er hugbúnaðarkerfi fyrir flug-
félög sem er hannað frá grunni í Tæknivali
Olgeirsdóttir
forstöðu-
í samvinnu við Flugfélagið Atlanta. Atlanta
notar Albatros á aðalskrifstofunni í Mos-
fellsbæ og á svæðisskrifstofum erlendis.
Einnig er verið að setja kerfið upp hjá
Flugfélagi íslands. Sigríður segir að vonir
séu bundnar við þetta kerfi á alþjóðamark-
aði.
Síðast en ekki síst má nefna að Tækni-
val er aðili að nokkrum alþjóðlegum þró-
unarverkefnum sem styrkt eru af Evrópu-
sambandinu. Sem dæmi má nefna hug-
búnað sem tengist skynmati á sjávarfangi
og veldur byltingu í gæðastarfi í fiskiðnaði.
SamstarfsaðilarTæknivals í þessu verkefni
eru Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
ásamt hollenskum og íslenskum fiskmörk-
uðum.
I hugbúnaðardeild Tæknivals eru
65 starfsmenn og hefur deildin vax-
ið um 130% milli ára. Þar munar
mestu um 20 starfsmenn sem fluttust
yfir þegar Tæknival og TOK sameinuð-
ust. TOKvareittafelstuhugbúnaðarfyrir-
tækjum á íslandi með sérhæfingu í gerð
viðskiptahugbúnaðar.
TOK viðskiptahugbúnaðurinn er sam-
hæfður með mjög mörgum séríausnum
fyrir einstaka viðskiptavini. Notendur
TOK hugbúnaðar eru á þriðja þúsund.
Tæknival hefur ákveðið að viðhalda TOK
kerfinu, en einnig er hafin vinna við gerð
Windows útgáfu hugbúnaðarins.
Tæknival hefur fjárfest töluvert í hug-
búnaðarfyrirtækjum að undanförnu.
Tæknival keypti 69% hlut í Kerfi hf, sem er
hugbúnaðarfyrirtæki með 20 starfsmenn
og hefur einkum unnið á sviði viðskipta og
sjávarútvegs. Einnig keypti Tæknival Raf-
hönnun-VBH, sem var lítil verkfræðistofa
sem sérhæfði sig í lausnum tengdum sjálf-
virkum skráningum gagna, og ennfremur
keypti Tæknival 50% hlut í Intraneti sem
sérhæfir sig í vefsmíði.
OPIN KERFI www.hp.is
Opin kerfi eru með stærstu tölvufyrir-
tækjum hérlendis en fyrirtækið framleiðir
ekki hugbúnað sjálft. Það tekur hinsvegar
þátt í hugbúnaðarframleiðslu með óbein-
um hætti gegnum eignaraðild sína í öðrum
fyrirtækjum.
Þar ber hæst 51% hlut sem Opin kerfi
eiga í Skýrr en einnig á fyrirtækið rúmlega
9% hlut í Hug-Forritaþróun, rúm 24% í Þró-
un, 32% í Teymi, 23% í Skímu-Miðheimum
og 33% í Upplýsingu sem er síma- og tölvu-
fyrirtæki.
MMHHHHHHHHRHHHHRHBttMHHHHOBKHflBBHHBSIS
52