Frjáls verslun - 01.03.1998, Blaðsíða 31
Fyrstu tveir mánudirnir
FORSÍÐUGREIN
ir Helgi um fyrstu tvær vikurnar eftir
ferðakynninguna í febrúar. Hörður hef-
ur sömu sögu að segja: „Það hefur
aldrei verið bókað jafh mikið og fyrsta
hálfan mánuðinn eftir að við kynntum
ferðabæklinginn okkar. Þetta hefur ver-
ið ævintýri líkast.”
KANNTU ANNAN?!
A ferðaskrifstofunum hafa dunið
spurningar um viðbótarsæti, þ.e. hvers
vegna þær bæti ekki við ferðum á vin-
sælustu staðina á besta tímanum. Þeir
segja það hins vegar ekki hægt. „Sólar-
landaferðir eru ekki bara vinsælar hér á
landi heldur í Evrópu líka,” segir Helgi.
„Það er mikil ásókn suður á bóginn - alls
staðar að úr Evrópu. Ef ég hríngdi og
bæði um viðbót á vinsælustu staðina
væri svarið: „Kanntu annan?!””
Ferðaskrifstofurnr gera ávallt skoð-
anakannanir í byrjun desember um
komandi ferðaár. Fyrir tveimur árum
sýndu þessar kannanir skyndilega
aukningu um 100%, þ.e. tvöfalt fleiri
hugðu þá á sólarlandaferð en árið áður.
Afram hafa kannanirnar merkt aukn-
ingu. Þótt allir hafi gert ráð fyrir góðu
ferðaári óraði engan fyrir þeirri hol-
skeflu sem dunið hefur yfir.
Mikil eftirspurn eftir sólarlandaferð-
um snemma á sumrin stafar af því að
margir vilja eiga kost á að ferðast innan-
lands í júlí en þá eru mestu ferðahelg-
arnar hérlendis. Þess vegna er einnig
mikil ásókn í sólarlandaferðir í ágúst -
eftir verslunarmannahelgina. Margir
líta svo á að sumarið hér heima sé þá
búið og að fínt sé að fara til útlanda.
Vinna unglinga kemur einnig inn í þetta
dæmi. Þeir missa minna úr vinnu sé far-
ið út í ágúst - en unglingavinnan svo-
nefnda er í júní og júlí.
Þótt sólarlandaferðir séu núna í há-
punkti er það að aukast að hjón fari einn-
ig í helgarferðir til útlanda. Slíkar ferðir
tengjast oft vinnustaðaferðum. Þótt það
sé vissulega ekki orðin regla að hjón fari
út tvisvar á ári - þ.e. í sólarlandaferð með
allri ijölskyldunni og tvö ein í helgarferð
- er niðurstaðan einföld; ferðalögum Is-
lendinga til útlanda er að fjölga. Það er
skollið á metferðaár! Það er góðæri!
í KULDA 0G TREKK FYRIR UTAN ELKO
Þótt sól góðæris hafi skinið skært á
ferðaskrifstofurnar um miðjan febrúar
var það á margan hátt bara forsmekkur-
inn að hinum ótrúlegu atburðum í Kópa-
Það er góðæri hjá ferðaskrifstofunum.
Vinsælustu sólarlandaferðirnar seldust upp á viku
um miðjan febrúar sl. Aldrei hefur verið önnur
eins eftirspurn eftír ferðum.
Þessi mynd segir allt sem segja þarf. Barist um GSM-síma í BT við opnun
verslunarinnar. „Eg á hann.” „Nei, ég á hann.”
Fyrstu tveir mánuðirnir líta vel út í
innflutningi nýrra bíla og gefa tilefiii
tíl að ætla að um 12 þúsund fólksbíl-
ar verði fluttir inn á árinu.
vogi hinn 28. febrúar þegar raftækja- og
tölvuverslunin Elko var opnuð með
pomp og prakt - lúðraþyt og látum.
Þrátt fyrir hörkukulda úti, eitthvað
um fimmtán stiga frost og einn kaldasta
dag vetrarins, beið fólk í löngum röðum
eftir að verslunin opnaði - og það bók-
staflega reif út tækin. I frétt sjónvarps-
stöðvar frá opnun Elko var meðal
annars rætt við heimilsföður
sem stoltur keypti 8 út-
varpstæki fyrir heim-
ilið þennan laugardag! „Eitt á mann,”
sagði hann sigri hrósandi.
En það var skollið á stríð þennan
napra laugardag í febrúar. Raftækja-
verslun Islands svaraði fyrir sig daginn
eftir og bauð tæki á samkeppnisfæru
verði við Elko. Þrátt fyrir hörkunepju úti
beið fólk í langri röð fyrir utan Raftækja-
verslun Islands þennan dag - en hleypt
var þar inn í hollum. Það var ekkert lát á
keppninni. Næstu daga á eftir brugðust
harðir keppinautar, eins og Heimilis-
tæki, Japis og Sjónvarpsmiðstöðin, við á
ýmsan hátt.
Eftir hið mikla tækjaæði, sem dundi
yfir markaðinn með opnun Elko - og það
stríð sem þá skall á - hvarflaði að fáum
að það væru hreinlega til kaupendur að
fleiri tækjum í
bili. En það
var öðru
nær. Múg-
æsingin í
31