Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1998, Blaðsíða 19

Frjáls verslun - 01.03.1998, Blaðsíða 19
I ) ÞRIGGJA DAGA VINNUVIKA | Olafur hefur samið við Advanta um i aðeins þriggja daga vinnuviku til að j geta einnig sinnt skriftum. Hvernig fór hann að því? I „Ég verð þrjá daga í viku í höfuð- i stöðvum fyrirtækisins í Pennsylvaníu i en verð líka með skrifstofu á Manhatt- an. Þessa þrjá daga er ég nú þegar að j frá morgni til miðnættis og auðvitað verð ég í tölvu- og símasambandi við Advanta aðra daga, þótt ég hyggist ) veija bróðurparti hinna fjögurra daga , vikunnar til skrifta og til að sinna fjöl- j skyldunni.“ Olafur Jóhann kveðst aldrei myndu hafa sest í forstjórastól á öðrum for- sendum en þeim að geta sinnt skrift- um. Forsvarsmenn Advanta hafi sýnt því skilning. Þriggja daga viðvera sé samningsbundin. 1 ÚTGEFANDINN ÁHYGGJULAUS Ólafur Ragnarsson, framkvæmda- ( stjóri Vöku-Helgafells og útgefandi Ólafs Jóhanns, hefur ekki áhyggjur af því að nýja starfið spilli fyrir ritstörf- um Ólafs Jóhanns. Þvert á móti hafi Ólafur Jóhann alltaf lagt áherslu á að honum sem rithöfundi sé þarft að vera í tengslum við lífið; með þeim hætti verði góðar hugmyndir í bækur hans til. Ólafur Ragnarsson segir tengsl sín við nafna sinn Jóhann nán- ) ari en almennt gerist milli rithöfundar , og útgefanda. Hann virðist hafa veðjað á réttan hest þegar hann ákvað að gefa út verk Ólafs Jóhanns. Vaninn er 1 að forlög taki sér um viku umhugsun- arfrest þegar nýir höfundar knýja j dyra. Þegar Ólafúr Jóhann kom fyrst með smásögur til útgefandans í von um að þær yrðu birtar liðu aðeins nokkrar klukkustundir uns Ólafur ) Ragnarsson hringdi til hans og sagð- ist birta þær. Þetta var áður en Ólafur Jóhann varð þekktur í viðskiptaheim- inum, þá var hann rétt að ljúka námi ytra. j DAGUR í LÍFI FORSTJÓRA j Hvernig er hefðbundinn dagur á forstjórastóli Advanta? „Ég hef þá reglu að vinna mjög náið með þeim sem stjórna dótturfýrirtækjum okkar j og með yfirmönnum í yfirstjórn fyrir- i tækisins. Einnig vill svo vel til að yfir- menn dótturfyrirtækjanna eru allir mjög sterkir á sínu sviði. Hins vegar Ólafur Jóhann Ólafsson, nýráðinn forstjóri fiármálafyrirtækisins Advanta í Bandaríkjunum. Hann hafði áður verið ráðgjafi fyrirtækisins í um eitt ár og í desember sl. tók hann sæti í stjórn fyrirtækisins. HVERS KONAR FYRIRTÆKI ER ADVANTA? Advanta er fjármálafyrirtæki meö höfuöstöövar í Pennsylvaníu. Þaö er 886. stærsta fyrirtæki Bandaríkjanna og með yfir 4 þúsund manns í vinnu. Það sinnir einstaklingum og smærri fyrirtækjum á sviði krítarkorta, húsnæðislána, kaupleigu, trygginga og innlána. Auk þess rekur Advanta fyrirtæki sem sinnir áhættufjármögnun. FRÁ MORGNITIL MIÐNÆTTIS „Þessa þrjá daga vinn ég frá morgni til miðnættis. En auðvitað verð ég í tölvu- og símasambandi við Advanta aðra daga þótt ég hyggist verja bróðurparti þeirra til að skrifa og sinna fjölskyldunni,” segir Ólafur Jóhann. 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.