Frjáls verslun - 01.03.1998, Side 16
NÆRMYND
viðskiptafræðingur, f. 1971. Hún býr í Reykjavík, gift Pétri
Einarssyni, framkvæmdastjóra Icecon, dótturfyrirtækis Sölu-
miðstöðvar hraðfrystíhúsanna hf. Þau eiga eitt barn.
Yngsta dóttírin er svo Ragnhildur Þóra, f. 1976. Hún er í
námi í Bandaríkjunum og býr með Júlíusi Kemp kvikmynda-
gerðarmanni.
Þau Ingibjörg og Sigurður búa sitt á hvorri hæðinni í ætt-
aróðalinu, Clausenshúsi, sem er steinsnar frá skrifstofun-
um.
Hér er kannski rétt að nefna til sögunnar enn einn sem
stundum er kallaður skrifstofústjóri en er áreiðanlega með-
limur fjölskyldunnar. Það er tíkin Tófa af Labradorkyni sem
fylgir sínu fólki í vinnuna og tekur á mótí gestum. Þótt trýnið
sé grátt er kjarkurinn óbilaður og hún ver lóðina fyrir öðrum
hundum af mikilli hörku ef hún sleppur út og sagt er að hún
eigi það til að urra að rukkurum.
bundnum skilningi þess orðs. Hún barðist ekki með kjafti og
klóm fyrir því starfi sem hún gegnir heldur varð þetta eðlileg-
ur hluti af hennar starfi. Hún er ósammála þeirri skoðun að
konur í stjórnunarstöðum eigi að láta bera á sér tíl að vera
kynsystrum sínum fyrirmynd.
Að hennar mati skal dæma og meta stjórnanda af verkum
hans og velgengni fyrirtækisins en ekki af því hvors kyns
viðkomandi er.
Þegar samstarfsmenn og félagar Rakelar úr sjávarútvegi
eru spurðir álits á henni og rekstrinum í Sfykkishólmi koma
fljótt upp á yfirborðið lýsingarorð eins og stefnuföst., einbeitt,
ákveðin, fylgin sér og áfram yfir skalann yfir í stjórnsöm og
ráðrík. Menn nefna einnig eiginleika eins og varkárni, trygg-
lyndi, feimni og hæfileika til þess að gleðjast í góðra vina
hópi.
KVÓTIOG ATVINNA
STJORNUN OG VOLD
Rakel er stjórnarformaður fyrirtækisins. Þegar hún er
spurð út í stjórnunarstíl eða stjórnunaraðferðir brosir hún
góðlátlega og segir að það sem hún kunni í slíku hafi hún
lært í skátunum í gamla daga. Hún segist hafa mjög gjarnan
samráð við sína nánustu samstarfsmenn um hvaðeina sem
lýtur að stjórn fyrirtækisins. Hún segir að það sé mikilvægt
að hlusta á skoðanir annarra og gera sér grein fyrir því að
fleiri en maður sjálfur getí haft rétt fyrir sér. Þetta læri stjórn-
endur af reynslunni og geri þess vegna færri mistök eftir því
sem þeir séu lengur í starfi. Ungum aldri fylgi oft óþolinmæði
og vissa um hvað sé það rétta sem leiði stundum til fljótfærn-
islegra ákvarðana.
Rakel er settleg kona í framkomu og liggur lágt rómur
þegar hún talar. Framkoma henn-
ar er síður er svo valdsmannsleg,
miklu frekar lágstemmd og góð-
leg. Manni verður þó fljótlega ljóst
að hún hefur skýrar og mótaðar
skoðanir og er stefnuföst. Þetta er
áreiðanlega kona sem er vön að
fólk hlýði henni.
Hennar álit er að sígandi lukka
sé best í rekstri fyrirtækja. Það sé
best að fara gætilega og hafa íhaldssemi að leiðarljósi í stað
þess að taka mikla áhættu. Það telur hún að hafi verið ein-
kenni á stjórn Sigurðar Agústssonar ehf. í gegnum árin og
eigi ríkan þátt í farsælum rekstri.
Einnig tekur hún fram að ekki megi gleyma að fyrirtækið
hafi ávallt haft á að skipa góðu starfsfólki sem margt hafi unn-
ið hjá fyrirtækinu um áratuga skeið.
HÓGVÆR OG ÁKVEÐIN
A þeim vettvangi sem Rakel starfar, í sjávarútvegi og fisk-
vinnslu, eru konur sjaldséðir stjórnendur. Það væri hægt að
nefna nöfn eins og Sæunni Axels á Olafsfirði og Guðrúnu Lár-
usdóttir í Hafnarfirði en það er ekki alveg sambærilegt. Rakel
var fyrsta konan sem settíst í stjórn Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna. Það var árið 1988 og hún situr þar enn, var
kjörin aftur í stjórn á síðasta aðalfundi eftir að hafa verið utan
stjórnar um ti'ma.
Rakel segist sjálf ekki vera mikil kvenréttíndakona í hefð-
Sigurður Agústsson ehf. er lokað einkafyrirtæki sem veltir
um 1.200 milljónum árlega. Þrátt fyrir að mörg sjávarútvegs-
fyrirtæki hafi látíð skrá sig á hlutabréfamarkaði og gróin fjöl-
skyldufyrirtæki hafi sótt sér aukið ijármagn í formi hlutafjár,
stendur það ekki til vestur í Sfykkishólmi. Það er afdráttarlaus
skoðun Rakelar að fyrirtækið hafi ákveðnum skyldum að
gegna við samfélagið í Stykkishólmi og fólkið sem þar býr. At-
vinnuöryggi er tengt þeim kvóta sem á staðnum er og tíl að
tiyggja að engar breytingar verði á þessu verður fyrirtækið
ekki sett á hlutafjármarkað.
Það er yfirlýst stefna Rakelar að láta lítið á sér bera per-
sónulega og hún hefur árum saman ekki veitt viðtöl og frekar
vikið sér undan umijöllun um fyrirtækið en þó sérstaklega sig
og sina persónu. Kannski er þetta að breytast, eins og reynd-
ar þessi grein ber vott um en marg-
ir sem þekkja Rakel lyftu brúnum
þegar hún kom fram í auglýsingu
fyrir Eimskip í vetur.
Árið 1979 létu Rakel og Ágúst af
búsetu í Clausenshúsi og reistu sér
afar veglegt einbýlishús að Ægis-
götu 3 í Stykkishólmi. Húsið stend-
ur alveg í flæðarmálinu og sjórínn
sleikir stofugluggann á jarðhæð-
inni. Þar er hægt að sitja og njóta óviðjafnanlegrar náttúrufeg-
urðar Breiðafjarðar og horfast í augu við æðarfuglinn utan við
gluggann. Að sögn kunnugra hafa Jjölmiðlar oft falast eftír að
fá að heimsækja Rakel á heimavelli en til þessa dags hefur
engum verið leyft að taka myndir inni í húsinu.
Hún vinnur mikið og tekur ekki mikinn þátt í félagslífi í
Stykkishólmi. Þó er hún félagi í Emblunum sem er merkileg-
ur félagsskapur kvenna í Hólminum. Emblurnar hafa starfað í
15-16 ár og hafa það m.a. að markmiði að auðga menningar- og
sögulega vitund félagskvenna. Félagafjöldi er takmarkaður við
30 og rætur sínar rekur félagið til starfsemi Málffeyja eða ITC
í Sfykkishólmi fyrr á árum. Félagið heldur reglulega fundi, fer
einu sinni á ári í makalausar menningarferðir til ýmissa staða
á landinu og heldur árlega vorvöku með menningarlegu ívafi
fyrir bæjarbúa. Fyrr á árum stóðu Rakel og Ágúst að öflugu
skátastarfi í Hólminum en í dag eru það Ingibjörg og Einar
Strand sem halda uppi merkinu á þeim vettvangi. Öll börnin
voru reyndar alin upp við skátastarf og dæturnar dvöldu mörg
VANN í TEHÚSINU
Veitingastaðurinn hét Tehúsiö og þótti ekki lítil
nýlunda aö því. Þar var hægt að fá tebolla en líka
kaffi, hamborgara og sælgæti. Fyrstu árin eftir aö
Rakel flutti vestur starfaði hún, ásamt Ágústi við
þennan rekstur, seldi miða í bíóið og reif af og af-
greiddi í Tehúsinu.
16