Frjáls verslun - 01.03.1998, Síða 37
MARKAÐSMÁL
nslensk erfðagreining hefur tek-
ið nokkuð annan pól í hæðina í
starfsmannamálum en mörg ís-
lensk fyrirtæki fram að þessu. Hvetj-
andi kerfi nær til allra starfsmanna.
Vinna starfsmanna er verkefnatengd.
Hver og einn vinnur að ákveðnu
markmiði í ákveðnum hópi og þótt
miðað sé við um átta stunda vinnudag,
geta menn í raun unnið eins mikið og
þeir kjósa umfram það. Viðveran fer
oft eftir því hvar það verkefni, sem
fengist er við hveiju sinni, er á vegi
statt.
Um hundrað manns unnu hjá ís-
lenskri erfðagreiningu um áramót og
stefnt er að því að starfsmenn verði
tvöfalt íleiri, eða tvö hundruð, áður en
árið er liðið.
Fyrirtækið hefur verið mikið til
umræðu vegna áræðni, genarann-
sókna og nú siðast vegna milljarða-
samnings við svissneska lyijatyrirtæk-
ið Hoffmann - La Roche.
OG ÍSLENSK ERFÐAGREINING VARÐ TIL
Islensk erfðagreining varð að veru-
leika með þeim hætti að sjö fjárfest-
ingarfyrirtæki tóku sig saman og
stofnuðu fyrirtækið, ásamt hópi Is-
lendinga, undir forystu Kára Stefáns-
sonar. Stofnijárfestarnir eru: Alta,
Advent International, Arch Venture
Partners, Atlas, Falcon Technologies,
Medical Science Partners og Polaris
Venture Partners. Öll eru þessi fyrir-
tæki sérhæfð á sviði líftækni.
Islenskri erfðagreiningu má skipta
í ólík stjórnunarsvið: Fjármála- og
þróunarsvið, upplýsingatæknisvið, töl-
fræðisvið, rannsóknarsvið og almenn-
an rekstur. Starfsmenn starfa svo inn-
an þessara sviða en þegar kemur að
vinnu á rannsóknarstofu er vinnan
skipulögð í kringum hópa.
AÐ HÆTTISILICON VALLEY
Sú leið hefur verið valin að hvetja
starfsmenn til dáða með því að gefa
þeim kost á hlutabréfaeign í fyrirtæk-
inu. A þetta jatht við um almenna
starfsmenn og stjórnendur. Þessi að-
ferð er þekkt hjá ungum fyrirtækjum
TEXTI:
Ólöf Rún Skúladóttir
►
►
►
►
►
é,
Lykilatriöi hvatakerfa aö
hætti Silicon Vailey
Markmið: Að stilla saman hags-
muni fyrirtækis og starfsmanns
með því að gera starfsmanni
kleift að gerast hluthafi í við-
komandi fyrirtæki og þar af leið-
andi njóta góðs af þeim verð-
mætum sem verða til.
Gera starfsmenn meðvitaða um
að þeirra vinna sé mikilvæg.
Með öðrum orðum, þeir sem
eigendur fyrirtækisins beri
ábyrgð á velgengni þess.
Kynna sér vel hvaða aðferðum
önnur fyrirtæki hafa beitt til að
koma á hvatakerfi.
Sníða lausnir að aðstæðum
hvers fyrirtækis.
Hefjast handa.
#
#
✓
J
í
í
LAUN OG HLUTABRÉFAEIGN
Starfsfólk er ráðið upp á laun og
hlutabréfaeign. Fyrirkomulag sem þetta
hvetur starfsfólkið til að leggja sig fram
því hagur fyrirtækisins verður hagur
starfsmannsins með óyggjandi hætti.
Hann fær ekki aðeins klapp á bakið.
ÁHUGIOG METNAÐUR SKIPTA MESTU
Fyrst og fremst er leitað að
starfsmönnum sem hafa gaman af því
sem þeir eru að gera. „Við leitum að
fólki, sem fyrir utan að hafa menntun á
ákveðnu sviði, vill ná árangri.”
STÉTTARFÉLAG EKKISKYLDA
Hjá íslenskri erfðagreiningu er það
ákvörðun hvers og eins hvort og þá í
hvaða stéttarfélagi hann er. Vissulega
fellur þetta fyrirkomulag ekki innan
hefðbundins ramma ASÍ og VSÍ.
á hátæknisviði erlendis, ekki hvað síst
í Silicon Valley í Kaliforníu, þar sem
segja má að vagga margra hátæknifyr-
irtækja sé. Uppskriftin er sem sagt
bandarísk og þykir hafa gefist vel. Slík
fyrirtæki verða gjarnan til fyrir tilstilli
hóps fiárfesta eða stofnenda; starfs-
fólk er ráðið upp á laun og hlutabréfa-
eign. Fyrirkomulag sem þetta hvetur
starfsfólkið til að leggja sig fram því
hagur fyrirtækisins verður hagur
starfsmannsins með óyggjandi hætti.
Hann fær þvi ekki aðeins klapp á bak-
ið heldur getur einnig tekið þátt í vel-
gengni fyrirtækisins. Ahersla hefur
veríð lögð á að kynna starfsmönnum
vel þessa nýju hugsun og fyrirkomu-
lag. Forsvarsmenn íslenskrar erfða-
greiningar eru ánægðir með hvernig
til hefur tekist fram að þessu.
Skyldi sá hugsunarháttur sem fyr-
irtækið sfyðst við að einhveiju leyti
vera Islendingum framandi? Hannes
Smárason, framkvæmdastjóri fiár-
mála- og þróunarsviðs Islenskrar
erfðagreiningar, telur svo vera að
nokkru leyti. Hvers vegna? „Þetta er
nokkuð sem ekki hefur veríð stundað
á Islandi, nema í litlum mæli, þetta er
svolítið nýtt. Þegar byijað er með nýja
aðferð eða stjórnunarstíl tekur tíma að
aðlagast honum.“
Það kerfi, sem fyrirtækið hefur val-
ið í starfsmannamálum, hefur gefist
ágætlega fram að þessu. Víða, þar
sem hátækniiðnaður í upplýsinga- og
líftækni er að verða til, er þessi háttur
hafður á.
MEÐALALDURINN RÚM ÞRJÁTÍU ÁR
Meðalaldur starfsmanna íslenskr-
ar erfðagreiningar getur vart talist
hár, því nærri lætur að meðalaldur
starfsmanna sé í kringum þrítugt. Þar
þykir því vart tíðindum sæta þótt
framkvæmdastjóri fiármála- og þróun-
arsviðs sé þrítugur!
En hvernig fólki sækist íslensk
erfðagreining eftir, að menntun frátal-
inni? Hannes Smárason segir fyrst og
fremst leitað að einstaklingum sem
hafi gaman af þvi sem þeir eru að
gera. „Við leitum að fólki, sem fyrir
utan það að hafa menntun á ákveðnu
sviði, vill ná árangri í því sem það fæst
við.“ Nóg virðist af slíku fólki á íslandi
því að mati forsvarsmanna Islenskrar
erfðagreiningar mun félagið ná þeim
markmiðum sem sett hafa verið í
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
37