Frjáls verslun - 01.03.1998, Qupperneq 42
MARKAÐSMÁL
sölumannstextinn við sem gerði þessa
tilgangslausu hluti algjörlega ómiss-
andi. Þegar síðan var farið með hug-
myndina í sjónvarpið bættist kraftur
myndmálsins við.“
HÓPUR MÓTAR HUGMYND
Það var auglýsingastofan
Gott fólk sem vann um-
ræddar auglýsingar og að
sögn Jóns var frábær sam-
vinna allra aðila sem að verk-
inu komu sem tryggði góða
útkomu.
„Sá, sem á mestar þakkir
skildar, er viðskiptavinurinn, í
þessu tilviki ríkissjóður og
fúlltrúar hans þeir Pétur Krist-
insson og Einar Sigurjónsson.
Þetta er klassískt dæmi um
góða auglýsingamennsku. Góð
vara, ákveðið markmið, góð
hugmynd, góð útfærsla og
samstilltur hópur sem fylgir
settu marki. Því miður gerist
það allt of oft að einhver af þessum lið-
um þynnist út með alls konar mála-
miðlunum.
Margir starfsmenn Góðs fólks
komu að undirbúningi verksins sem
fékk rúman tíma en það var, að mati
Jóns, það sem þurfti. Helgi Helgason,
framkvæmdastjóri Góðs fólks, hefur
haft umsjón með auglýsingum Lána-
sýslunnar og samstarf hans, Péturs
og
Einars lagði grunninn.
Dóra ísleifsdóttir, grafískur hönnuður
hjá Góðu fólki, hannaði grafískt útíit
sjónvarpsauglýsinganna og einnig sá
hún um að hanna pakkningar og um-
búðir utan um vörurnar í samvinnu
við Börk Árnason hjá Góðu fólki en
hann hafði yfirumsjón með sjónvarps-
auglýsingunum auk þess að vera höf-
undur tveggja þátta. Það var svo
Styrmir Sigurðsson sem leikstýrði
auglýsingunum sem Nýja Bíó
framleiddi.
Þetta er ekki í lýrsta sinn
sem hann kemur að gerð aug-
lýsinga sem vekja athygli iyrir
fyndna útfærslu því hann og
Jón Árnason unnu saman
auglýsingar fyrir Leitz bréfa-
bindi sem vöktu mikla at-
hygli í árslok 1996 en þar var
snúið skemmtilega út úr
dömubindaauglýsingum.
Þær fengu verðlaun sem
besta sjónvarpsauglýsingin
1996.
Þar kom Sigurjón Kjart-
ansson ekki fram heldur
Sindri, bróðir hans. Sfyrm-
ir hefur einnig leikstýrt og
unnið að skemmtiþáttun-
um um Fóstbræður sem
hafa kætt áhorfendur Stöðvar 2.
Þar er einmitt Siguijón Kjartansson í
fremstu víglínu ásamt fóstbróður sín-
um, Jóni Gnarr.
HEPPILEG BLANDA
Af þessu má draga þá áfyktun að
þegar Jón og Styrmir leggja saman á
ráðin og fá síðan Siguijón til að leika
verður útkoman meinfyndin. Nýjastí
afrakstur þessa sameykis í auglýs-
ingagerð eru fyrir Elko í Kópavogi.
Jón Árnason og Gary Wake hjá Góðu
fólki vinna hugmynda og textavinnu,
Styrmir leikstýrir og Jón Gnarr leikur.
„Það sem stendur kannski upp úr
við gerð Lánasýsluauglýsinganna er
nákvæmnin í útfærslu smáatriða. Það
að hanna sérstaklega umbúðir fyrir
vörurnar, nostra við leikmyndina og
vanda leikstjórn niður í minnstu svip-
brigði og handahreyfingar," sagði Jón
og tók sem dæmi að leitað hefði verið
lengi að réttu peysunum handa Sig-
uijóni Kjartanssyni til að íklæðast í
gervi sölumannsins en engar tvær
eru eins.
„Það, sem vakti fyrir okkur, var að
gera virkilega góðar auglýsingar þó
það tæki svolítinn tíma. Við lögðum
ekki af stað með nein áforrn önnur en
þau að gera áhrifaríkar auglýsingar
fyrir Spariskirteini ríkissjóðs í þeim
umbúðum að maður eigi ekki að láta
plata sig.“ S5
Þeir fiska sem róa
O Eldsneyti á skip og báta O Þurrkupappír og skammtarar
O Rafgeymar og hleðslutæki O lce clean háþrýstiþvottakerfi
O Smurolíur fyrir allar vélar O Vinnugallar, vinnuskór og vettlingar
O Hreinsiefni og sápur O Rekstrarvörur f/ útgerð og fiskvinnslu
Grænt númer
.„..y
□335100
Pantanir í fax: 5151110
Pantanasími: 515 1100
olís
léttir þér lífið
Þjónusta viö
sjávarútveginn
42