Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1998, Page 48

Frjáls verslun - 01.03.1998, Page 48
Fyrirtækið hefur unnið til fjölda verð- launa fyrir ffamleiðslu sina og markaðs- setningu, þar meðtalin „Euro Beacon Award” verðlaunin fyrir besta hópvinnu- kerfi Evrópu en það eru verðlaun sem IBM/Lotus veitir. Hjá Hugviti og dótturfyrirtækjum þess starfa í dag um 50 manns. Framkvæmda- stjóri Hugvits er Olafur Daðason. TÖLVUMIÐLUN www.tm.is Tölvumiðlun er meðal elstu fyrirtækja í íslenskum tölvuheimi, stofnað 1985. Það hefur einkum starfað á fyrirtækja- markaði og þekktasti hugbúnaður þess er launakerfið H-Laun sem er í notkun hjá yfir500 stórum og smáum launagreiðend- um í dag. 91 sveitarfélag og skólar nota SFS bókhaldskerfi og tengd kerfi, en SFS kerfið var fyrsta kerfið sem Tölvumiðlun þróaði og er því 13 ára gamalt. Unnið er að nýju SFS kerfi hjá Tölvumiðlun. Tölvumiðlun hefur átt gott samstarf við sjúkrahúsin í landinu, þróað mörg kerfi fyrir þau og má nefna röntgendeildarkerfi, legudeildarkerfi og upplýsingakerfi fyrir starfsmenn ásamt fleiri kerfum. Tölvumiðlun hefúr einnig átt gott sam- starf við Fasteignamat ríkisins og fleiri rík- isstofnanir, s.s. dómsmálaráðuneytið. Samstarfs- og systurfyrirtæki Tölvumiðlunar er Tölvuþekking sem hefur þróað og selt sérhæfðan hugbúnað til röntgendeilda sjúkra- húsa um allan heim undir nafninu KODAK RIS 2010. Sá útflutningur er í samstarfi við Kodak. Samstarfið hefur gengið vel og firek- ari þróunar að vænta á næstunni. Starfsmenn fyrirtækjanna tveggja eru samtals 20 og framkvæmdastjóri er Ágúst Guðmundsson. NETVERK www. netverk.is Netverk býður m.a. upp á samskipta- lausnir, sem gera notendum kleift að senda og móttaka upplýsingar í gegnum gervi- hnetti á hagkvæman, öruggan og þægileg- an hátt. Helstu notendur eru skip og skipa- félög. Helsta tekjulind fyrirtækisins er út- flutningur. Velta ársins 1998 stefnir í 400 milljónir króna. Starfsmenn Netverks eru 26, en ætlað er að þeir verði 50 - 60 í árslok. Fram- kvæmdastjóri og aðaleigandi er Holberg Másson, en Þróunarfélagið á 10,5% hlut. Lokað hlutafjárútboð meðal erlendra og innlendra tjárfesta stendur yfir. VKS www.vks.is VKS hefur allt frá stofnun árið 1979 ver- ið í hópi stærstu hugbúnaðarfyrirtækja landsins og var fyrsta hugbúnaðarfyrirtæk- ið á Islandi til að fá vottun á gæðakerfi sitt samkvæmt hinum alþjóðlega gæðastaðli, ISO 9001. Gæðavottun tryggir viðskiptavin- um fyrirtækisins markvissari vinnu- brögð, færri villur í hugbúnaði og ná- kvæmari verkáætlanir. Starfssvið fyrirtækisins eru einkum fjögur: Þróun hugbúnaðar fyrir fjármála- markaðinn en VKS hefur starfað á þessu sviði í rúman áratug og þróað kerfi fyrir flest fjármálafyrirtæki á landinu. Nú vinnur fyrirtækið að nýrri kynslóð ljármálakerfa. Ráðgjöf á sviði upplýsingatækni. VKS hefur greint tölvu- og upplýsingamál tuga fyrirtækja hér á landi eftir vottuðu og þaul- reyndu verklagi sem nýst hefur þeim afar vel. Þróun sérhæfðra tölvukerfa. VKS hef- ur um árabil starfað með mörgum af stærstu fyrirtækjum og stofnunum lands- ins við þróun sérhæfðra tölvukerfa. Þróun hópvinnulausna í Outlook - Exchange sem er hópvinnukerfi Microsoft sem er nýjasta starfssvið fyrir- tækisins. Lausnirnar eru þróaðar til að uppfylla þarfir fyrirtækja og stofnana varðandi hópvinnukerfi sem auðveldar þeim skráningu, geymslu, flokkun og birtingu upplýsinga í þeim tilgangi að auka hagkvæmni í rekstri. Lausnirnar hafa þegar fengið frábærar viðtökur með- al forráðamanna íslenskra fyrirtækja. Hjá VKS starfa 30 starfsmenn og fram- kvæmdastjóri er Ari Arnalds. KÖGUN ww.kogun.is Kögun hefur einkum starfað að hug- búnaðargerð fyrir bandarísk fyrirtæki og tengist það rekstri ratsjárstöðva NATO hérlendis. Stærsta verkefni Kögunar er að vinna úr merkjum frá slíkum stöðvum hér og erlendis. Kögun hefur verið í samvinnu við Hug- hes Aircraft Company, Computer Sciences Corporation, Asea Brown Bowery og fleiri fyrirtæki. Nýlega varð fyrirtækið umboðs- aðili Navision á íslandi. Starfsmenn Kögunar eru 40 og fram- kvæmdastjóri er Gunnlaugur Sigmunds- son. þú nærB rorystu í samkeppni með NAVÍs-Landsteinar sími 533 5400 www.navis.is Finan 48

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.