Frjáls verslun - 01.03.1998, Qupperneq 65
FOLK
ompass er svissneskt
fyrirtæki stofnað árið
1946. Það er stærstí
viðskiptagagnagrunnur heims
sem nær tíl 2 milljóna fyrir-
tækja í 72 löndum um allan
heim,“ segir Steinar Viktors-
son, svæðisstjóri Kompass á
íslandi, Grænlandi og Færeyj-
um.
Kompass Internatíonal hef-
ur verið á Islandi í um 10 ár og
lengst af boðið þjónustu sína í
formi uppsláttarrita.
í dag er Kompass beinlínu-
tengt, notendavænt tölvukerfi
,sem notendur hafa við hönd-
ina á veraldarvefnum og geta
fyrirvaralaust nálgast fjölþætt-
ar og ítarlegar upplýsingar um
fyrirtæki, vöru og þjónustu og
skapað sér viðskiptatækifæri
um allan heim. Með þessu má
segja að fyrirtækið hafi stigið
Steinar Viktorsson, fyrrverandi trommuleikari og útvarpsmaður, er svæðisstjóri
Kompass á íslandi. FV-mynd: Geir Ólafsson.
STEINAR VIKTORSSON, KOMPASS
skref inn í nútímann og nálg-
ast nú verkefni sín með nýjum
hættí.
Árið 1996 var starfsemi
Kompass á Islandi endur-
skipulögð frá grunni og allur
tölvubúnaður og hugbúnaður
endurnýjaður og nýtt fólk ráð-
ið til starfa og í dag starfa þar
fimm fastráðnir starfsmenn.
Að sögn Steinars Viktors-
sonar nýta íslensk fyrirtæki
sér Kompass gagnabankann í
mjög vaxandi mæli og berast
frá þeim um 200 fyrirspurnir á
dag. Kompass safnar saman
upplýsingum um fyrirtæki,
framleiðsluvörur og þjónustu
og miðlar til annarra fyrir-
tækja. Og höfðar einkum tíl
stjórnenda fyrirtækja, mark-
aðs- sölu- og innkaupastjóra.
Kompass er því kjörið mark-
aðstorg fyrir framleiðendur,
dreifingaraðila, heildsala og
aðra þá sem stunda viðskipti.
Leit að vörum og þjónustu fer
fram eftír öflugu kerfi en leið-
beiningar eru alltaf við hend-
ina á skjánum. Ahersla er lögð
á að upplýsingar séu alltaf
ferskar og því uppfærðar um
leið og breytíngar berast til
Kompass. Fyrirtæki greiða
fast árgjald fyrir aðild að
Kompass, eða fyrir að vera í
Kompass fjölskyldunni, eins
og Steinar kallar það.
Steinar segir að um 90%
þeirra fyrirtækja, sem nýta sér
Kompass, endurnýi aðildina
árlega. I dag eru um 400 ís-
lensk fyrirtæki aðilar að
Kompass en Steinar segir það
markmið fyrirtækisins að þre-
falda þann fjölda.
„Það liggur í hlutarins eðli
að því fleiri sem nota
Kompass, því betri verður nýt-
ingin sem slík. Við teljum
markmið okkar raunhæft mið-
að við stærð íslensks markað-
ar og fjölda fyrirtækja á hon-
um. Við höfúm verið að skrá
fyrirtæki af öllum stærðum og
í öllum greinum, bæði iðnfyrir-
tæki, inn- og útflytjendur og
verslanir og stofnanir."
Steinar Viktorsson lauk
landsprófi úr Vogaskóla á sín-
um tíma og hefur alltaf síðan
verið á leiðinni í frekara nám
en ekki gefið sér tíma tíl þess.
Hann hefur unnið mikið að
dagskrárgerð í útvarpi, aðal-
lega á Sígilt FM, FM 95,7 og
Aðalstöðinni. Samhliða því
hefur hann ávallt starfað mikið
að markaðssetningu og mark-
aðsmálum, bæði fyrir einstök
verkefni, samtök eða atburði
eða fyrir stærri fyrirtæki. Má
þar nefiia meðal annars KA-
sumar á Selfossi, verslanir 11-
11 og Umferðarráð.
Steinar er tónlistarmaður,
nánar tíltekið trommuleikari,
og hefur fengist við það með
hléum frá 15 ára aldri. Hann
var í hljómsveitum á borð við
Bendix úr Hafnarfirði, sem er
þekktust fyrir að hafa haft
Björgvin Halldórsson innan-
borðs, og einnig mætti nefna
hljómsveitir eins og Rósina
o.fl. Steinar hefur í mörg ár
verið í framkvæmdanefhd Is-
lensku tónlistarverðlaunanna
þannig að tónlistín er aldrei
langt undan þótt hann spili
ekki sjálfur í dag.
Við tónlistarkaflann má
bæta því að báðir synir Stein-
ars hafa fetað í fótspor hans í
poppinu. Birgir Örn er með-
limur í hljómsveitínni Maus
og Viktor spilar með Reggae
on Ice. Steinar er kvæntur Jór-
unni Andreasdóttur sem starf-
ar hjá Vinnumiðlun Reykjavík-
urborgar.
Hann segir að þegar frí-
stundir gefist leití hann oft í
flugið og samfélag flugáhuga-
manna, en hann hefur lengi
haft einkaflugmannspróf og
hefur lengst af átt hlut í flug-
vél. 35
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSS0N
65