Fregnir - 01.03.2007, Qupperneq 5
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Þjónusta og fræðsla
Þegar nýnemar mæta í skólann á haustin
bíður þeirra nokkra daga kynningardag-
skrá á skólanum og ýmsum þáttum skóla-
starfsins. Hluti af þessari dagskrá er að
bjóða þá velkomna á bókasafnið þar sem
helstu þættir starfseminnar og reglur
safnsins eru kynntar. Nýnemunum eru
sýndir staðhættir en þeir eru þá þegar
orðnir skráðir lánþegar.
Á haustönn eru einnig haldin nám-
skeið í heimildaleitum á Netinu fyrir
bekki nýnema. Kennslan fer fram í tölvu-
stofu í lífsleiknitímum og er einn bekkur
tekinn á viku. í tímunum er farið yfir
gæðamat á netefni og leitaraðferðir, ásamt
því að kynna Gegni, Gagnasafn Mbl.,
ProQuest á Hvar.is og tenglasafn skólans
svo nokkuð sé nefnt. Haustið 2006 voru
bekkir nýnemana tíu talsins svo það tókst
að ljúka þessari kennslu í góðum tíma
áður en desemberprófin hófust.
Tímarita- og dagblaðahom safnsins
Vinsælasti hluti bókasafnsins em sófarnir
í tímarita- og dagblaðahominu en hjá
þeim em einnig staðsettar nokkrar tölvur.
Helsti útlánatíminn er sept.-nóv. á haustin
og jan.-mars á vorin en samkvæmt síðustu
ársskýrslu safnsins voru þau tæp 15 þús.
talsins.
Innanhússlán, það er lán á námsbókum
og öðm kennslutengdu efni í stofur, vom
61% af lánum á meðan nemendur og
kennarar fóru heim með aðeins 39% af út-
lánum. I febrúar 2007 eru skráðir 665
nemendur við skólann.
Vel yfir helmingur af utanhússlánum
eru á sviði tungumála og em þá orða-
bækur ekki meðtaldar, þá saga, síðan
koma samfélagsfræðigreinamar og þar á
eftir náttúruvísindin, helst jarðfræði og líf-
fræði.
Utanhússlán í % frá 01.01.06
Léttlestrarbækur á erlendum málum (428)
og erlendar skáldsögur (823) em hér
teknar saman en þær fara í yfir helming
útlána. Sömuleiðis er 500 og 600 flokkun-
um slegið saman.
Dewey flokkar %
000-299 3,2
300-399 7,2
400 og 800 58,4
500/600 7,1
700 5,4
900 18,7
Eldri safnkostur og geymsla
Fyrirrennari bókasafns skólans var bóka-
safnið Skinfaxi sem var stofnað veturinn
1893-94. Það óx og dafnaði vel fyrstu
árin. Kennsla hófst í Flensborgarskóla
árið 1882 en fyrsta kennaranám landsins
var í skólanum á ámnum 1892-1907. Þeg-
ar Kennaraskóli íslands var stofnaður árið
1908 vom þær bækur, sem nýttust í upp-
eldis- og kennslufræðum þess tírna,
fluttar, samkvæmt stjómvaldsákvörðun, í
nýja kennaraskólann.
I dag er töluvert magn af eldri safn-
kosti í óvirkri geymslu safnsins, bæði ís-
lenskar og erlendar bækur auk eldri tíma-
rita.
Menntunarhlutverk bókasafns skólans
hefur forgang og það liggur fyrst og
fremst í að vera lifandi upplýsinga- og
fræðslumiðstöð og safnið hefur því
takmarkað bolmagn í að sinna varðveislu-
hlutverki fyrir eldri safnkost. Núna á
þessu vori stendur þó yfir átak á því sviði.
Það er margt um fágæti í þessum alveg
sérstaka eldri safnkosti sem skólinn mun
halda áfram að varðveita, með sérstakri
áherslu þó á íslenskt efni og námsbækur.
Gamlar erlendar bækur, þ.á.m. nor-
rænar kennslubækur eru hinsvegar óleyst
mál sem ekki er búið að finna endanlega
lausn á.
Markmiðið er að ljúka þeirri hand-
virku yfirfærslu sem eftir er árið 2009 en
það verkefni verður þó að haldast í hendur
við flutning eldri safnskosts úr kössum úr
núverandi geymsluaðstöðu í hillur í end-
urbættri aðstöðu.
Bergljót Gunnlaugsdóttir
safnstjóri
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 5