Fregnir - 01.03.2007, Qupperneq 7
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Stefna íslenskra stjómmála-
flokka í bókasafns- og upp-
lýsingamálum
Stjórn Upplýsingar sendi í mars síðast-
liðnum bréf til formanna allra stjómmála-
flokka sem bjóða fram til Alþingis í vor
þar sem vakin var athygli á mikilvægi
málaflokksins í upplýsingasamfélaginu og
óskaði eftir svörum um stefnu flokkanna á
sviði bókasafns- og upplýsingamála taki
þeir sæti í ríkisstjóm.
Til þeirra sem ekki höfðu svarað var
bréfíð svo ítrekað 11. apríl síðastliðinn í
tölvupósti til formanna og framkvæmda-
stjóra flokkanna.
Fjómm spumingum var beint til formanna
flokkanna og þess getið að svörin yrðu
birt í næsta tölublaði Fregna:
1. A hvem hátt mun flokkur þinn beita sér
fyrir auknum beinum stuðningi við
Landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum
og tímaritum en erfítt hefur verið að
halda verkefninu úti með núverandi fyrir-
komulagi vegna naumra ijárframlaga?
2. Mun flokkur þinn beita sér fyrir setningu
heildarlaga um bókasöfn, sem svo lengi
hefur verið beðið eftir? Ef svo er, hvenær
má vænta slíkrar lagasetningar?
3. Hver er afstaða þíns flokks varðandi þær
hugmyndir laganefndar að stofnað verði
Bókasafnaráð sem hafi m.a. það hlutverk
að gangast fyrir stefnumótun á sviði
bókasafna- og upplýsingamála á lands-
vísu og hafa forgöngu um framfaramál á
því sviði.
4. Mun þinn flokkur gangast fyrir því að
stofnaður verði Þróunarsjóður bókasafna
sem styrki rannsóknir og þróunar- og
samstarfsverkefni á sviði bókasafna og
upplýsingamála.
Þessir stjórnmálaflokkar fengu sendar
spumingar:
Baráttusamtök eldri borgara og öryrkja
Framsóknarflokkurinn
Frjálslyndi flokkurinn
íslandshreyfingin - lifandi land
Samfylkingin
Sjálfstæðisflokkurinn
Vinstrihreyfmgin — grænt framboð
Eftirfarandi svör bárust:
Framsóknarflokkurinn
1. Ljóst er að með þjónustusamningi milli
menntamálaráðuneytis og Landsbókasafns
íslands - Háskólabókasafns er stígið skref
í átt til þess að verkefnið fái áframhald-
andi lífdaga. Nauðsynlegt er að gera lang-
tímasamninga við fyrirtæki og stofnanir
til þess að tryggja rekstur Landsaðgangs-
ins. Það er vilji Framsóknarflokksins að
verkefnið haldi áfram þar sem að það
tryggir jafnræði til upplýsingaöflunar,
óháð búsetu. Einnig hefur það sýnt sig að
notkun aðgangsins hefur aukist. Aðgangur
að slíkum gagnasöfnum og tímaritum eflir
menntun, símenntun, atvinnulíf svo og
vísinda- og þróunarstarfsemi.
2. Markmið Framsóknarflokksins er að
safnamál landsins verði í fremstu röð
sambærilegra safna í Evrópu hvort sem
litið er til söfnunar, varðveislu, miðlunar
eða rannsókna. Flokkurinn er því reiðubú-
inn til að beita sér fyrir setningu slíkra
laga og ætti að vera unnt að afgreiða þau á
fyrri hluta komandi kjörtímabils.
3. Afstaðan er jákvæð. Slíkur samráðs-
vettvangur [þ.e. Bókasafnaráð] ætti að
vera til framfara og hagsbóta fyrir starf-
semi safnanna.
4. Framsóknarflokkurinn hefur ekki fjall-
að sérstaklega um þá hugmynd [þ.e. um
Þróunarsjóð bókasafna] en lýsir sig reiðu-
búinn til skoða þau mál með jákvæðum
hætti í ljósi þeirra markmiða sem fram
koma í svari við spumingu 2 og í tengsl-
um við þá lagasetningu sem þar er nefnd.
Sjálfstæðisflokkurinn
Gríðarlegar framfarir hafa orðið á sviði
bókasafns- og upplýsingamála undir for-
ystu Sjálfstæðisflokksins sem stýrt hefur
menntamálaráðuneytinu og stefnumótun
og framkvæmd stefnunnar um upplýs-
ingasamfélagið síðustu kjörtímabil.
Ráðist hefur verið i metnaðarfull verk-
efni sem tryggt hafa íslandi stöðu í hópi
fremstu þjóða heims á sviði bókasafns- og
upplýsingamála. Má þar nefna verkefni
eins og bókasafnskerfið Gegni, og lands-
aðgang að rafrænum gagnasöfnum og
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 1