Fregnir - 01.03.2007, Side 8
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
tímaritum. í þessum verkefnum og öðrum
verkefnum á þessu sviði endurspeglast
framsýni og vilji Sjálfstæðisflokksins til
þess að vinna að framgangi verkefna á
sviði bókasafns- og upplýsingamála.
Mikilvægi bókasafns- og upplýsinga-
mála í upplýsingasamfélaginu hefur einn-
ig komið fram með skýrum hætti í stefnu
síðustu ríkisstjórna undir forystu Sjálf-
stæðisflokksins. Hér á eftir eru tekin
dæmi úr tveimur stefnumótunarritum en
unnið hefur verið ötullega að því að
hrinda þessum stefnumálum í fram-
kvæmd.
Úr ritinu Framtiðarsýn ríkisstjórnar Is-
lands um upplýsingasamfélagið, frá 1996:
„Upplýsingar verði gerðar fólki aðgengilegar,
án tillits til efnahags eða búsetu, og því
tryggðir möguleikar til að menntast alla ævi
og læra ný störf eftir þörfum.“
„Bókasöfn þróist í alhliða upplýsingamið-
stöðvar sem tryggi öllum viðskiptavinum sín-
um greiðan aðgang að upplýsingum á tölvu-
tæku formi, m.a. með tengslum við innlendar
og alþjóðlegar fræðslumiðstöðvar og upplýs-
ingaveitur. Jafhframt fái viðskiptavinimir veg-
sögn um nýjustu tækni við leit og notkun upp-
lýsinga. Áhersla verði lögð á að bóka- og
tímaritaskrár bókasafna landsins verði öllum
aðgengilegar í rafrænu formi.“
Úr ritinu Auðlindir í allra þágu - Stefna
ríkisstjórnarinnar um upplýsingasam-
félagið 2004-2007:
„Vísindasamfélaginu, atvinnulífi og almenn-
ingi verði kynnt og tryggt áframhaldandi að-
gegni að alþjóðlegum gagnabönkum sem
nálgast má gegn um Netið (sbr. hvar.is).“
„Tryggt verði gott aðgengi að upplýsinga- og
þekkingarbrunnum. Það verði m.a. gert með
góðu aðgengi að tölvum og Netinu í skólum
og á bókasöfnum landsins og með því að
styrkja enn frekar þjónustu við einstaklinga
þar. Stuðlað verði að uppsetningu þráðlausra
neta á öllum helstu bókasöfnum landsins sem
viðskiptavinir þeirra geti tengst."
Vinstrihreyfmgin - grænt
framboð
1. Vinstrihreyfmgin grænt framboð telur
Landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum
og tímaritum afar mikilvægan og jafn-
framt að svo sé um hnútana búið varðandi
íjármögnun hans að allir geti nýtt sér hann
til fulls út frá sínum þörfum.
Við viljum því beita okkur fyrir aukn-
um beinum stuðningi við hann. Við erum
ekki tilbúin á þessari stundu til að segja á
hvern hátt við mundum gera það, en við
munum leita þeirra leiða sem væru árang-
ursríkastar og erum tilbúin til að hafa
samráð við samtök bókasafnafólks um
það.
2. VG vill beita sér fyrir því að frumvarp
að bókasafnalögum verði lagt sem allra
fyrst fyrir Alþingi þegar það kemur saman
aftur.
3. VG styður hugmyndir laganefndar um
að stofnað verði Bókasafnaráð, enda er
það, eftir því sem næst verður komist,
skýr vilji þeirra sem best þekkja til, þ.e.
forstöðumanna og starfsmanna bókasafna.
4. Á sama hátt styður VG hugmyndir um
að stofnaður verði þróunarsjóður bóka-
safna.
Riddarakross hinnar íslensku
fálkaorðu
Þann 1. janúar síðastliðinn sæmdi forseti
íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, Ein-
ar Sigurðsson, fv. landsbókavörð, riddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir
framlag á vettvangi upplýsinga- og safna-
mála.
Stjórn Upplýsingar óskar Einari til
hamingju með þennan heiður sem
honum er sýndur.
Nýr doktor í bókasafns- og
upplýsingafræði
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, lektor í bóka-
safns- og upplýsingafræði við Háskóla ís-
lands, varði þann 25. nóvember síðastlið-
inn doktorsritgerð sína í upplýsinga- og
skjalastjóm við upplýsingafræðideild Há-
skólans í Tampere í Finnlandi.
Ritgerðin ber titilinn: The Implementa-
tion and Use of ERMS: A Study in Ice-
landic Organizations.
Stjórn Upplýsingar óskar Jóhönnu
til hamingju með áfangann.
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 8