Fregnir - 01.03.2007, Síða 11
Fregnir. FréttabréfUpplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Ingibjörg skipuð háskóla-
bókavörður
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra hefur skipað Ingibjörgu
Steinunni Sverrisdóttur í embætti lands-
bókavarðar til fimm ára, frá 1. apríl
næstkomandi. Menntamálaráðuneyti bár-
ust alls sex umsóknir um embættið.
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir
Ingibjörg Steinunn útskrifaðist með
meistaragráðu í opinberri stjómsýslu
(MPA) árið 2006 frá Háskóla íslands og
meistaragráðu í bókasafns- og upplýsinga-
fræði frá sama skóla árið 1996. Hún
stundaði nám í uppeldis- og kennslufræði
við Háskóla íslands 1988-1989 og nam
sagnfræði við Háskólann í Lundi árið
1989-1990. Ingibjörg Steinunn hlaut BA-
gráðu í bókasafnsfræði og bókmenntasögu
fráHÍ árið 1978.
Ingibjörg Steinunn var frá árinu 1980-
1995 bókasafnsfræðingur bókasafns Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti og frá 1994-
1999 veitti hún bókasöfnum menntamála-
ráðuneytis, fjármálaráðuneytis og fleiri
ráðuneyta forstöðu. Árin 1999-2005 var
hún skjalastjóri fjármálaráðuneytis. I dag
starfar hún sem sviðsstjóri á varðveislu-
sviði Landsbókasafns íslands.
Morgunblaðið
fimmtudaginn 11. janúar 2007
LANDSBÓKASAFN ÍS-
LANDS - HÁSKÓLA-
BÓKASAFN
Fréttatilkynning Nr. 2 / 2007
Efni: Nýr landsbókavörður hefur störf
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir hóf störf
sem landsbókavörður þann 1. apríl síðast-
liðinn. Hún starfaði áður sem sviðsstjóri
varðveislusviðs Landsbókasafns íslands -
Háskólabókasafns og skjalastjóri í fjár-
málaráðuneytinu. Hún er með MA-próf í
bókasafns- og upplýsingafræði og MPA-
próf í stjómsýslufræði.
Stjóm Landsbókasafns hélt Dr. Sig-
ninu Klöm Hannesdóttur fráfarandi lands-
bókaverði kveðjuhóf þann 30. mars síð-
astliðinn en hún fer nú á eftirlaun. Flutt
voru ávörp og Sigrúnu Klöru þökkuð störf
í þágu safnsins, þágu kennslu í bókasafns-
og upplýsingafræði við Háskóla íslands
og sem frumkvöðuls á sviði fræðanna hér
á landi og erlendis. Við þetta tækifæri af-
henti hún eftirmanni sínum lykilinn að
safninu.
Frá vinstri: Sigrún Klara Hannesdóttir
og Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir
Formaður Upplýsingar flutti ávarp í kveðju-
hófí Sigrúnar Klöm og færði henni blóm frá
félaginu sem þakklætisvott fyrir kennslu-,
fræða- og félagsstörf með þeim óskum að leið
hennar í framtíðinni, hvar sem hún liggur,
megi vera blómum stráð.
Stjóm Upplýsingar óskar nýjum lands-
bókaverði gæfú og gengis í starfi og þakkar
jafnframt fyrri landsbókavörðum fyrir gott
samstarf og velvild í garð Upplýsingar í gegn-
um árin. Félagið hefur allt frá stofnun þess átt
einstakan Hauk í homi þar sem Landsbóka-
safn Islands - Háskólabókasafn er.
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 11