Fregnir - 01.03.2007, Qupperneq 21
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Nýir heiðursfélagar Upp-
lýsingar
Avarp formanns Upplýsingarflutt á há-
tíðark\>öldverði á Hótel Sögu í tilefni af
50 ára afmœli kennslu í bókasafns og
upplýsingafrœði
Agœtu hátíðargestir,
Fyrst af öllu vil ég óska Bókasafns- og
upplýsingafræðiskor til hamingju með
áfangann en eins og kunnugt er hófst
kennsla í bókasafns- og upplýsingafræði
við Háskóla íslands árið 1956.
Það er umhugsunarefni að Bókavarða-
félag Islands var ekki stofnað fyrr en fjór-
um árum síðar - árið 1960 - eða um 50
árum síðar en samsvarandi félög á hinum
Norðurlöndunum. Stofnfélagar voru þá
alls 37 og þar af höfðu aðeins örfáir notið
formlegrar kennslu í bókasafnsfræði. Það
er líka athyglisvert að hér á landi var
stofnað félag bókavarða en í öðrum lönd-
um eru félögin samtök bókasafna.
Mér finnst það sýna glöggt hversu
Bjöm Sigfússon, faðir bókasafnsfræði-
kennslu hér á landi, var í raun framsækinn
maður og forsjáll að hann tók sig fram um
að stofna til sérstakrar námsgreinar fyrir
aðstoðannenn sína á háskólabókasafni.
Flest okkar hér inni búum að þeirri for-
sjálni.
Ég ætla ekki að rekja sögu fræðanna
hér. Það gerðu háskólarektor og Sigrún
Klara af mikilli prýði fyrr í dag.
Stjóm Upplýsingar ákvað á stjórnar-
fundi fyrr í vetur að útnefna Sigrúnu
Klöru Hannesdóttur heiðursfélaga Upp-
lýsingar á þessum tímamótum en hún bar
uppi lcennslu í bókasafns- og upplýsinga-
fræði árum saman. Vinkona mín og starfs-
systir lýsti því þannig þegar Sigrún Klara
hóf störf við deildina að hún hefði komið
sem „hvítur stormsveipur inn í kennsl-
una“. Ég hygg að flestir þeirra sem hér
eru hafi notið kennslu Sigrúnar Klöru og
þekki áhuga hennar og atorku.
Sigrún Klara er margfaldur brautryðj-
andi á sviði bókasafns- og upplýsinga-
fræða, hún var fyrsti lektorinn í fræðunum
við Háskóla íslands, fyrsti dósentinn og
fyrsti prófessorinn. Hún var fyrsti Islend-
ingurinn til að ljúka doktorsprófi í bóka-
safns- og upplýsingafræði fyrir réttum 20
ámm og varð svo fyrsta konan ti! að
gegna prófessorsstöðu í félagsvísindum
við Háskóla Islands. Einnig var hún fyrsta
konan til að gegna stöðu landsbókavarðar.
Svo mætti lengi telja. Já, að maður tali nú
ekki um öll ritstörfín og þátttöku í alþjóð-
legu samstarfi.
Sigrún Klara hefur líka verið virk í
félagsmálum stéttarinnar. Það væri of
langt mál að telja það allt upp, en þess má
geta að hún var formaður þriggja fyrir-
rennara Upplýsingar, Bókavarðafélags Is-
lands, Félags bókasafnsfræðinga og
Skólavörðunnar. Nú síðast var hún drif-
krafturinn í starfí stefnumótunarnefndar
Upplýsingar sem skilaði af sér á dögun-
um. Stjóm félagsins samdi í samvinnu við
hana spurningar um bókasafns- og upp-
lýsingamál sem sendar voru formönnum
stjórnmálaflokka sem spurði voru um
stefnu flokkanna í málaflokknum og
verða svörin birt í næstu Fregnum.
Þegar Sigrún Klara lauk doktorsprófí
sameinuðust Félag bókasafnsfræðinga og
Bókavarðafélag íslands um að halda
henni samsæti í Skólabæ þann 19. febrúar
1987. Á næsta stjórnarfundi á eftir í
Félagi bókasafnsfræðinga er bókað fund-
argerðabók undir liðnum afgreidd mál:
„Hóf sem haldið var í tilefni doktorsprófs
Sigrúnar Klöm tókst mjög vel. Fjölmenni
var í veislunni ýmsar ræður voru haldnar
og stemmingin góð.“ Ég held að stemm-
ingin hér í kvöld sé ekki síður góð - enda
tek ég heils hugar undir að mikilvægt er
að gera sér glaðan dag saman. Mér er það
minnisstætt að ég sagði þá í stuttu ávarpi
sem ég hélt Sigrúnu til heiðurs sem for-
maður Félags bókasafnsfræðinga að hún
væri „sómi stéttarinnar, sverð og skjöld-
ur“. Ég vil ítreka þau orð mín hér í kvöld.
Sigrún Klara hefur vissulega verið flagg-
skip og stolt stéttarinnar.
Enginn væri skólinn ef ekki væru
nemendur og segja má að nemendur bóka-
safns- og upplýsingafræðinnar hafí ekki
gert það endasleppt við skólann sinn. Þeir
hafa borið uppi ljölbreytta fyrirlestraröð
hér í vetur. Góðir nemendur eru aðall
hvers skóla. í tilefni af afmælinu ákvað
stjóm Upplýsingar að útnefna einnig
fyrsta nemandann sem lauk BA-prófí í
bókasafns- og upplýsingafræði sem heið-
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 21