Fregnir - 01.03.2007, Page 35
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
bókasöfn og bókaverðir koma fyrir - oft
við kómískar aðstæður.
Ráðstefnuna sóttu 220 manns sem
komu ffá um 30 löndum. Skemmst er frá
að segja að ráðstefnan tókst í alla staði
vel, fyrirlesaramir, sem komu frá sjö
löndum, voru mjög góðir og ráðstefnu-
gestir sátu með augu og eyru galopin og
tóku mikinn þátt í umræðum.
Ráðstefnan Back to Basics - and Fly-
ing into the Future naut góðs stuðnings
sem ráðstefnuhaldaramir eru ákaflega
þakklátir fyrir. Ber þar að nefna Lands-
kerfi bókasafna, Háskólann í Reykjavík,
Borgarbókasafn Reykjavíkur og Iceland-
air.
Vefur ráðstefnunnar er: httn://www.
con gress.is/cataloguing2007/. Þar er að
finna allar upplýsingar um hana og einnig
má þar sækja glærur fyrirlesaranna.
í undirbúningsnefnd ráðstefnunnar
sátu eftirfarandi: Hildur Gunnlaugsdóttir
formaður, Fanney Sigurgeirsdóttir, Óskar
Guðjónsson, Ragna Steinarsdóttir og Þóra
Gylfadóttir. Jóhanna Gunnlaugsdóttir var
nefndinni til ráðgjafar.
Þóra Gylfadóttir
Undirbúningsnefnd frá vinstri: Ragna Stein-
arsdóttir, Óskar Guðjónsson, Fanney Sigur-
geirsdóttir, Hildur Gunnlaugsdóttir og Þóra
Gylfadóttir
UT-dagurinn 8. mars 2007
Nýtum tímann - Notum tæknina
Ráðstefna um áhrif og ávinning, framtið-
arsýn og áhugaverð verkefni stjórnvalda
í tilefni UT-dagsins 8. mars síðastliðinn
stóðu forsætis- og íjármálaráðuneyti fyrir
ráðstefnu undir yfirskriftinni Nýtum tím-
ann - Notum tœknina í Salnum, Kópa-
vogi, kl. 13:00-16:30. Kynnt vom nokkur
af stærstu verkefnum ríkis og sveitar-
félaga í rafrænni stjórnsýslu.
Eftirfarandi verkefni voru m.a. kynnt:
• Þegar þér hentar - verkefni í rafrænni
stjómsýslu
• Island.is vísar þér veginn
• Rafræn stjórnsýsla í Reykjanesbæ
• Borgin í einum smelli - sjálfsafgreiðsla
á vef Reykjavíkurborgar
• Alla leið: Lykill að rafrænu íslandi
• Rafræn skilríki í hnotskum - hagnýt
dæmi um notkun
• Innkaup án inngripa - rafrænir
reikningar og stefna ríkisins í rafrænum
innkaupum
Að ráðstefnu lokinni var ráðstefnugestum
boðið á formlega opnun sýningarinnar
Tœkni og vit 2007 í Fífunni, Kópavogi.
í tengslum við UT-daginn var gefið út
UT-blaðið sem fylgdi Morgunblaðinu
laugardaginn 3. mars. í blaðinu var Qallað
um meginumræðuefni UT-dagsins, það er
sjálfsafgreiðslu í þjónustu opinberra stofn-
ana. Meðal annars var fjallað um lausnir á
borð við rafrænar þjónustuveitur, rafræn
skilríki og rafræn opinber innkaup auk
ýmislegs annars sem tengist þessum
málum.
í UT-blaðinu birtust eftirfarandi grein-
ar um upplýsingatækni og bókasöfn:
Hvaó gerir gegnir.is fyrir þig? Samskrá
íslenskra bókasafna (s. 32), Stærsta upp-
lýsingaveita á Islandi. Landsaðgangur að
gagnasöfnum og rafrœnum tímaritum,
hvar.is (s. 34).
Nánari upplýsingar er að finna á UT-
vefnum, sjá www.utvefur. is.
Þórdís T. Þórarinsdóttir
Fræðslufundir - Berlínar-
borg og Mannauðsstjómun
Á Leonardo styrk og hælaháum skóm í
bókasöfnum Berlínarborgar var titill
morgunverðarfundar sem fræðslu- og
skemmtinefnd Upplýsingar stóð að þann
16. nóvember 2006. Tilefnið var að sjö
flottir bókasafnsfræðingar fengu styrk frá
Leonardo áætlun Evrópusambandsins til
32. árg. - I. tbl. 2007 - bls. 35