Morgunblaðið - 20.01.2001, Side 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 25
YFIRLÝSING blökkumannaleið-
togans og baptistaprestsins Jesses
Jacksons um að hann hafi átt barn
utan hjónabands hefur vakið mikla
athygli í Bandaríkjunum. Jackson
hyggst taka sér frí frá kastljósi
fjölmiðlanna um hríð, og hefur
hvatt til þess að fjölskyldu hans
verði sýnd tillitssemi.
Málið þykir sérstaklega forvitni-
legt í ljósi þess að dóttir Jacksons
virðist hafa komið undir um líkt
leyti og hann kom Bill Clinton
Bandaríkjaforseta til varnar í
Lewinsky-málinu. Helgina sem
Clinton viðurkenndi opinberlega
samband sitt við Monicu Lew-
insky, í ágúst 1998, kom Jackson í
heimsókn í Hvíta húsið og baðst
fyrir ásamt forsetanum og fjöl-
skyldu hans. Dóttirin kom í heim-
inn í maí 1999.
Í yfirlýsingu Jacksons kom ekk-
ert fram um ástkonu hans eða
samband þeirra, en að sögn aðstoð-
armanna hans heitir hún Karin L.
Stanford og er 39 ára gömul. Jack-
son og Stanford munu hafa kynnst
er hún kenndi stjórnmálafræði og
afrísk fræði við Georgíu-háskóla,
en hún ritaði síðar bók um áhrif
Jacksons á bandaríska utanríkis-
stefnu, „Beyond the Boundaries:
Reverend Jesse Jackson and Int-
ernational Affairs“, sem var gefin
út árið 1997.
Jackson réð Stanford sem yfir-
mann Washington-skrifstofu
mannréttindasamtaka sinna, Rain-
bow/PUSH, sem berjast fyrir
frama fólks úr minnihlutahópum í
stjórnmálum og efnahagslífinu.
Samstarfsmenn þeirra segja að
Jackson og Stanford hafi tekið upp
ástarsamband eftir að hún hóf
störf á skrifstofunni. Hún hefur nú
látið af störfum þar og er flutt til
Kaliforníu með dóttur þeirra.
Fjölskyldan
stendur saman
Jackson kvaðst taka fulla ábyrgð
á gerðum sínum. „Ég elska dóttur
mína afar heitt, rétt eins og móðir
hennar gerir, og ég hef séð henni
fyrir tilfinningalegum
og fjárhagslegum
stuðningi frá því hún
kom í heiminn,“ sagði
hann í yfirlýsingu sinni.
Jesse Jackson, sem
er 59 ára, og eiginkona
hans, Jackie, hafa verið
gift í 38 ár og eiga þau
fimm börn. Hann mun
hafa skýrt fjölskyldu
sinni frá sambandinu
við Stanford þegar dótt-
ir þeirra fæddist. Sonur
hans, Jesse L. Jackson
yngri, sendi frá sér yf-
irlýsingu í gær, þar sem
segir að hjónaband for-
eldra hans hafi staðið af
sér ýmsa erfiðleika, og
að fjölskyldan standi
saman, nú sem endra-
nær.
Jackson hefur um
langt skeið verið í eld-
línu bandarískra stjórn-
mála. Hann var á sjö-
unda áratugnum
aðstoðarmaður Martins
Luthers King, og hefur síðan verið
meðal þekktustu talsmanna rétt-
indabaráttu blökkumanna í Banda-
ríkjunum. Jackson sóttist tvisvar
eftir útnefningu sem forsetaefni
Demókrataflokksins, árin 1984 og
1988.
Ýmsir hafa haft á orði að frétt-
irnar um framhjáhald Jacksons
dragi úr trúverðugleika hans sem
prests og stjórnmálamanns, en
margir hafa komið honum til varn-
ar.
Yfirlýsing Jesses Jacksons vekur mikla athygli
Ætlar að taka sér
hlé frá störfum
Chicago. AP.
Æsifréttablaðið National Enquirer sló
málinu upp á forsíðu á fimmtudag. Þar er
birt mynd af Jackson og Stanford í Hvíta
húsinu í desember 1998, þegar hún bar
dóttur þeirra undir belti.
Reuters
RÚSSAR aðstoða nunnu, sem
stakk sér ofan í ísholu við trúar-
lega athöfn á ísi lagðri tjörn ná-
lægt Pavlodar í gær þegar rúss-
neska rétttrúnaðarkirkjan
minntist skírnar Krists. Skírn-
ardagur Krists er einn af tólf há-
tíðisdögum rétttrúnaðarkirkj-
unnar.
Skírnar
frelsarans
minnst
Reuters
TVEIR piltar, 17 og 19 ára, eru í
haldi sænsku lögreglunnar vegna
morðsins á 16 ára menntaskóla-
nema í Stokkhólmi í fyrradag.
Ekki er að fullu ljóst hver ástæða
morðsins var en þó virðist ljóst að
um einhvers konar uppgjör hafi
verið að ræða, líklega vegna pen-
ingaskuldar.
Sænsk dagblöð hafa eftir vitnum
að tvímenningarnir hafi komið í
skólann til að ræða við piltinn um
tæplega 50.000 kr. ísl. skuld. Óljóst
er hvort hann eða bróðir hans hafi
skuldað þeim peninga en hann hef-
ur tvívegis verið dæmdur fyrir
fíkniefnabrot.
Tvímenningarnir drógu piltinn
inn á salerni þar sem þeir skutu
hann. Þetta er í fyrsta sinn sem
morð er framið í sænskum
menntaskóla.
Skólafélagar piltsins segja hann
ekki hafa verið flæktan í neitt mis-
jafnt en piltarnir sem eru í haldi
eru hins vegar góðkunningjar lög-
reglunnar. Sá yngri hefur hlotið
dóm fyrir að ráðast á mann með
hnífi, sá eldri á að baki sér dóma
fyrir ógnanir, fíkniefnabrot, brot á
lögum um vopnaburð, yfirhylm-
ingu með þjófnaði og ofbeldi. Hann
var nýverið dæmdur í tveggja
mánaða fangelsi fyrir að neyða tvo
17 ára pilta til að fremja rán.
Menntaskólinn sem morðið var
framið í er í hverfi þar sem vel
stætt fólk býr og hefur ekki komið
til neinna vandræða þar að sögn
lögreglu og kennara. Nemendur
segja þó aðra sögu, í Aftonbladet í
gær fullyrtu þeir að eftir að farið
var að flytja nemendur úr öðrum
hverfum Stokkhólms í skólann hafi
farið að koma upp vandamál á milli
nemendahópanna.
Peningaskuld
sögð ástæða
morðsins
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
UPPREISNARMENN í Lýðveld-
inu Kongó höfnuðu í gær Joseph Ka-
bila sem bráðabirgðaleiðtoga lands-
ins eftir dauða föður hans, Laurents
Kabila forseta, og sögðu að hann
hefði hafið hernaðaraðgerðir að
nýju.
Uppreisnarmennirnir sökuðu
stjórnarherinn um að hafa gert
sprengjuárásir á stöðvar þeirra í
trássi við friðarsamning, sem undir-
ritaður var á síðasta ári en hefur
margoft verið brotinn.
„Við fordæmum þessar árásir,“
sagði Kin-Kiey Mulumba, talsmaður
stærstu uppreisnarhreyfingar lands-
ins, RCD, sem nýtur stuðnings hers
Rúanda. „Þetta sýnir að ekkert hef-
ur breyst í Kinshasa. Joseph er alveg
eins og faðir hans.“
Nýjum leiðtoga í
Kinshasa hafnað
Kinshasa. Reuters.