Morgunblaðið - 25.01.2001, Side 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Námstefna um einhverfu
Hvernig
lærum við?
TVEGGJA daganámstefna Um-sjónarfélags ein-
hverfra hefst í dag klukk-
an 9 í Gerðubergi. Þar
flytur Svanhildur Svavars-
dóttir, talmeinafræðingur
og einhverfuráðgafi, erindi
og leiðbeinir. Hún var
spurð hvað hún ætlaði að
fjalla um?
„Ég byrja á að spjalla
um hvernig við lærum öll
og legg síðan áherslu á
hvaða vandamál einhverfir
eiga við að stríða við að til-
einka sér mál.“
– Hvaða vandamál eru
það?
„Einhverfir eiga erfitt
með að setja orð á hlutina
og eiga erfitt með að vinna
úr heildrænum boðum eða
töluðu máli og skilja betur sjón-
rænar vísbendingar, myndir eða
skrifaðan texta.“
– Veldur þetta erfiðleikum í
félagslegum samskiptum?
„Já, einhverfir eiga líka erfitt
með að túlka svipbrigði hjá fólki,
blæbrigði í rödd fyrir utan að eiga
erfitt með að skilja talað mál
vegna þess að einhverfir hugsa
öðruvísi en aðrir, hugsa meira í
myndum en orðum.“
– Eiga einhverfir þá erfitt með
að skilja líkingar í máli, t.d.
brandara og fleira þess háttar?
„Já, því það huglægt efni og
eins konar ímyndun en einhverfir
nota litla ímyndun í sínum hugs-
unum. Barn með einhverfu skilur
t.d. ekki að aðrir hafi „innra líf“,
tilfinningar og hugsanir. Barn
með einhverfu lifir oft meira í eig-
in heimi en aðrir. Barn með
Asperger-heilkenni lifir hins veg-
ar miklu meira í okkar heimi en á
eigin forsendum. Ég var t.d. að
spjalla við lítinn dreng með
Asperger-heilkenni fyrir
skömmu. Ég var að leiðbeina hon-
um með hegðun og hann skildi
mig ekki. Ég sagði þá: „Það er
best að ég skrifi þetta á blað svo
þú getir lesið það!“ Þá sagði hann:
„Ekki skrifa það, þá verð ég að
gera það.“ Það sem skrifað er
virðist hafa miklu meiri merkingu
fyrir fólk með einhverfu. Það er
eins og þetta fólk geti ekki gert
sér grein fyrir mætti hins talaða
orðs. Við hin notum málið oft til að
róa okkur ef okkur líður illa og til
að leita lausna t.d. við skipulagn-
ingu við það sem við eigum að
gera, en þetta geta hinir ein-
hverfu ekki. Ég þekki t.d. konu
með einhverfu sem lýsir góðri líð-
an með orðunum: „sólskin og
strönd“, en segir ekki: „Mér líður
ágætlega“. Ef þessi kona er vondu
skapi segir hún frekar „I have
Thunderstorm and rain.“
(þrumur og rigning), frekar en að
segja „mér líður illa.““
– Er mikill munur á viðhorfi
Bandaríkjamanna til einhverfu og
þess sem gerist á Íslandi og ná-
grannalöndum?
„Nei, þekkingin er orðin mjög
svipuð alls staðar en var það ekki.
Í dag er einhverfa hug-
tak sem flestir þekkja
og vita vel hvað er.“
– Hvað er hægt að
gera til þess að koma
hinum einhverfu sem
best til hjálpar?
„Það þarf að byrja strax og
barn greinist með einhverfu,
kannski eins árs ef vel tekst til, að
vinna með málörvun, kenna því
leiðir til að koma skilaboðum til
annarra og eins að kenna því á
þann hátt sem það getur meðtek-
ið, þ.e. með sjónrænum vísbend-
ingum og miklu skipulagi. Það
skiptir miklu máli að skapa stöð-
ugleika í umhverfi hinna ein-
hverfu.“
– Getur einhverft barn orðið
fullgildur þátttakandi í venjulegu
lífi og starfi?
„Einhverfan hverfur aldrei en
barnið lærir að lifa með fötluninni
og takast á við hana. Þetta er gert
með réttu kennsluumhverfi. Þetta
er eins og t.d. með stam, það
hverfur ekki en hægt er að ná tök-
um á því. Ég hjálpa barninu að
búa til sjónrænar vísbendingar
sem stuðla að því að það læri að
haga sér við hinar ólíkustu að-
stæður. Þetta hefur verið kallað
félagashæfnisögur.“
– Hvernig gengur hina almenna
skólakerfi að kenna börnum sem
eiga við þessa fötlun að stríða?
„Þar er mikilvægast að kenn-
arinn fái kennslu og skilning á
hvað einhverfa sé.“
– Hvað fer fram á ráðstefnunni
á morgun auk þessa?
„Ég sé um alla fræðslu á þess-
ari tveggja daga ráðstefnu og kem
inn á marga aðra þætti sem
snerta málörvun en við höfum
þegar rætt um. Ég mun sýna
myndbönd frá kennslu einhverfra
og koma með ábendingar um
hvernig á að skipuleggja þjálfun
og kennslu í boðskiptum fyrir þá
einhverfu.“
– Hvað er mest verið að rann-
saka í málefnum einhverfra núna?
„Það er verið að skoða erfða-
þáttinn. Líkur benda til að ein-
hverfa sé arfgeng og einnig er
verið að skoða mikið efnafræði-
legt ferli í heila í þessu
sambandi. Þá er verið
að skoða fæðuóþol hjá
einhverfum, sem er
óvenjulega algengt hjá
þeim. Ég gerði rann-
sókn á frumkvæðis-
tjáningu einhverfra barna og sá í
minni rannsókn að þau hafa frum-
kvæði en oft svo óljóst að aðrir
átta sig ekki á að hinn einhverfi sé
að vekja athygli á sér. Það sem
veldur því að hinn einhverfi hefur
svona lítið frumkvæði er að hann
á erfitt með að lesa í umhverfi sitt
og skilja aðstæðurnar, en sjón-
rænt skipulag hjálpar.
Svanhildur Svavarsdóttir
Svanhildur Svavarsdóttir
fæddist í Reykjavík 1947. Hún
lauk kennaraprófi frá Kenn-
araskóla Íslands 1969 og sér-
kennaraprófi árið 1971. Hún út-
skrifaðist sem talmeina-
fræðingur frá Noregi 1977 og
tók meistarapróf í sömu grein
frá Norður-Karólínu-háskóla
1992. Hún hefur sérhæft sig sem
einhverfuráðgjafi og starfar sem
slíkur í Scottsdale í Arizona.
Svanhildur er gift Sigurði Viggó
Kristjánssyni, flugstjóra hjá US-
Airways. Þau eiga samtals sex
börn.
Einhverfir
hafa frum-
kvæði – en
oft óljóst
KJÖT af sextíu til sjötíu hrossum hef-
ur verið flutt út vikulega til Ítalíu að
undanförnu. Útflutningurinn gæti
verið miklu meiri en þetta, því 5–600
hross eru á skrá til afsláttar vegna
þessa einungis hér sunnanlands, að
sögn Ólafs Einarssonar á Torfastöð-
um í Biskupstungum en hann hefur
með þessi mál að gera á Suðurlandi
fyrir hönd Félags hrossabænda.
Ólafur sagði að markaðurinn á Ítal-
íu tæki ekki við fleiri hrossum en 60–
70 á viku en framboðið hér innanlands
væri miklu meira. Helmingurinn af
þessum hrossum kæmu héðan að
sunnan og hinn helmingurinn að
norðan en svæðið sem Ólafur hefur
með að gera nær frá Hornafirði í
austri að Hvalfjarðarbotni í vestri.
Í fyrra voru seld til Ítalíu 3.500
hross, sem var um 1.200 meira en árið
áður. Meðalverðið er um 56 kr. fyrir
kílóið, þannig að fyrir hrossið fást í
kringum 7–8 þúsund krónur.
Ólafur sagði að hrossum á Íslandi
væri að fækka. Það kæmi fram í
skýrslum fóðureftirlitsmanna og eins
væri minna um að folöld væru sett á. Í
fyrra hefði verið talað um að hross í
landinu væru um 80 þúsund talsins en
hann gæti trúað að þau væru komin
niður í 75 þúsund núna, auk þess sem
miklu færri folöld væru sett á.
Kjöt af 60–70 hrossum
vikulega til Ítalíu
FERÐA- OG risnukostnaður ráðu-
neyta og ríkisstofnana var saman-
lagt rúmir tveir milljarðar árið 1999
en samanlagt rúmir 1,8 milljarðar
árið 1998.
Ferða- og risnukostnaður þess-
ara aðila var þar með um rúmum
200 milljónum krónum hærri árið
1999 en árið þar á undan. Þetta
kemur m.a. fram í skriflegu svari
Geirs H. Haarde, fjármálaráðherra,
við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, þingmanns Samfylkingar-
innar.
Í svarinu kemur fram að ferða-
kostnaður ráðuneyta og ríkisstofn-
ana hafi verið samanlagt um 1,785
milljarðar kr. árið 1999 en sam-
anlagt um 1,613 milljarðar króna
árið 1998.
Hækkaði því ferðakostnaður um
172 milljónir króna milli þessara
ára. Þá kemur fram að risnukostn-
aður, bæði föst risna og önnur
risna, þessara sömu aðila hafi verið
um 257 milljónir króna árið 1999 en
rúmar 209 milljónir króna árið á
undan. Hækkaði risnan því um 48
milljónir króna milli ára.
Hækkar um
200 millj-
ónir króna-
milli ára
Ferða- og risnu-
kostnaður ríkisins
árið 1999