Morgunblaðið - 25.01.2001, Síða 14

Morgunblaðið - 25.01.2001, Síða 14
FRÉTTIR 14 FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í SÉRSTAKRI greinargerð Evr- ópunefndar Framsóknarflokksins er m.a. fjallað um horfur um áhrif af aðild að Evrópusambandinu (ESB), og segir að áhrif hugsanlegrar að- ildar Íslands að ESB verði mismun- andi og mismikil á einstakar at- vinnugreinar og einstök svið hag- kerfis og þjóðlífs. Hér á eftir er drepið á nokkra þætti greinargerðarinnar um svið sem mest hafa verið til umræðu. Þannig segir m.a. um áhrifin á land- búnað: Landbúnaður Vafalítið herðir mjög á þeirri hag- ræðingu og þeirri fækkun búa og byggðaröskun sem nú þegar stend- ur yfir. Talið er að búvöruverð lækki og innlent framleiðslumagn minnki. Væntanlega verður röskun í afkomu mjólkur- og kjötframleiðenda og jafnvel miklir erfiðleikar í svína- og alifuglarækt og garðyrkju. Færð hafa verið rök fyrir því að aðild að ESB muni leiða af sér hrun í land- búnaðinum, en einnig að ESB muni aðeins hraða þróun sem þegar er hafin í landinu. Er erfitt að meta hvað er beinlínis tengt aðild að ESB og hvað er henni óháð í þessu. ESB býður aðstoð atvinnuþróunar-, vel- ferðar-, harðbýlis- og byggðasjóða, og vitað er að Finnar náðu t.d. samningum um bann við innflutn- ingi eggja og kjúklinga. Ljóst er að styrkjakerfi ESB er lítt framleiðslu- tengt og því erfitt að sjá hver áhrif mikil lækkun í búvöruverði til bænda, sem væntanleg er við aðild, muni hafa á kjör þeirra. Sem fyrr segir hefur verið bent á hættu á hruni í landbúnaði við aðild að ESB, en einnig hefur verið bent á með til- vísun til reynslu iðnaðarins af inn- göngu Íslands í EFTA að ný tæki- færi fyrir íslenskan landbúnað kunna einnig að felast í aðild að ESB og því ófullnægjandi að meta horfur einvörðungu út frá núverandi að- stæðum, framleiðsluháttum og framleiðslugreinum landbúnaðarins. Þá er og óljóst hver áhrif inngöngu Austur-Evrópuþjóða, ekki síst Pól- verja, kunna að verða á landbúnað- arstefnu og þróun landbúnaðarmála innan ESB. Menn hafa ekki verið samdóma í mati um framvindu land- búnaðarins í Finnlandi á síðustu ár- um og virðist það m.a. stafa af því að menn leggja ólík sjónarmið til grundvallar, sumir annars vegar fjölda bænda og býla en aðrir hins vegar tekjur í landbúnaði og al- menna hagþróun í landinu. Fram hefur komið að mjög miklu máli skiptir að reglur um heilbrigðis- varnir vegna innflutnings lifandi dýra og matvæla haldist áfram, og einnig að tækifæri geti falist í hrein- leika og ferskleika íslenskrar land- búnaðarvöru. Búvöruiðnaður Og um áhrifin á búvöruiðnaðinn segir m.a.: Vafalaust herðir mjög á þeirri hagræðingu og fækkun af- urðastöðva sem nú þegar stendur yfir. Líklega verður hrundið af stað hraðri og róttækri endurskipulagn- ingu með hættu á mikilli byggða- röskun. Flest bendir til að nokkrar greinar mjólkuriðnaðar verði illa úti við aðild að ESB. Að líkindum leiðir aðild að ESB til hruns kjötiðnaðar- ins, a.m.k. miðað við núverandi skipulag og kostnaðarstig, en vandamál kjötiðnaðarins eru reynd- ar gamalkunn og óháð ESB. Ljóst er að bein tengsl eru milli byggða- þróunar og staðsetningar afurða- stöðva, en einnig hefur verið bent á að áhrif ESB muni aðeins hraða þró- un sem þegar er hafin í landinu. Bent er á að ESB býður aðstoð at- vinnuþróunar-, velferðar-, harð- býlis- og byggðasjóða en um þau efni verður þó að semja. Fiskveiðar Þá er í ítarlegu máli fjallað um áhrifin á fiskveiðar og segir m.a.: Í samningum við ESB um málefni fiskveiða reynir jafnan bæði á samn- ingsvilja Íslendinga og einnig á skilning og vilja ESB. Bent er á að forræði yfir mikilvægustu auðlind- um er í húfi, lífsréttur og lífshags- munir. Ná verður samningum m.a. um landhelgisgæslu, deilistofna, flökkustofna, úthafsveiðar, stofna sem ekki eru kvótasettir, áður ónýtta stofna, og aðrar auðlindir hafsins. Reynsla ESB bendir til þess að virk landhelgisgæsla og veiðieft- irlit sé umfangsmikið og erfitt verk- efni innan þess en er jafnframt í þróun, einkum á síðari árum. Það er yfirlýst stefna ESB að virða og treysta efnahagslega grundvallar- hagsmuni allra aðildarþjóða og að leitast við að mæta þeim sérstaklega í hverju einstöku atviki. Fiskveiðar Íslendinga eru sjálfbær og arðbær atvinnuvegur, ólíkt því sem tíðkast í ESB, og er því ólíku saman að jafna. Dæmi eru um sérsamninga og sér- staka túlkun á sameiginlegri stefnu ESB. Samningar Norðmanna og ESB frá 1994 benda sterklega til þess að í a.m.k. mörgum mikilvæg- um atriðum hafi mátt ná viðunandi niðurstöðu, frá íslenskum sjónarhóli séð. Einnig er bent á að ýmis ákvæði í sameiginlegri stefnu ESB sam- rýmast hagsmunum Íslendinga. Þannig eru Íslandsmið sérstakt haf- svæði og mikilvægustu fiskistofnar eru kvótasettir. Semja má að ráð- gjöf íslenskra stofnana liggi til grundvallar ákvörðunum um veiði- magn, en innan ESB eru þær ákvarðanir formlega teknar í ráð- herraráðinu í Brüssel. Veiðireynsla, framseljanlegir kvótar og aðrir mik- ilvægir þættir fiskveiðistjórnunar geta haldist innan ESB, en hver að- ildarþjóð ESB hefur nú forræði um fiskveiðistjórnun á sínu hafsvæði. Veiðiheimildir og kvótaskipting geta haldist, þ.e. alger forgangur Íslend- inga að kvótasettum svæðisbundn- um stofnum í íslenskri auðlindalög- sögu. Samkvæmt reglum ESB er veiðireynsla mikilvægt grundvallar- atriði og samkvæmt þessum reglum er ekki lengur um neina veiði- reynslu annarra Evrópuþjóða að ræða innan íslenskrar auðlindalög- sögu. Veiðireynsla ræður einnig samkvæmt reglum ESB um skipt- ingu veiðiheimilda í öðrum fiskteg- undum og einnig hefur verið rætt um tillit til dreifingar stofna í haf- svæðum og mikilvægi veiða í at- vinnulífi. Beinar takmarkanir á eignaraðild að fyrirtækjum, sem beinast aðeins að þegnum annarra ríkja, verða að hverfa. En mat á stöðu útgerðarfyrirtækja hefur breytst og viðurkennd eru innan ESB efnahagsleg skilyrði m.a. fyrir þátttöku útlendinga í útgerð ein- stakra aðildarlanda. Í samningum um þessi mál verður að taka tillit til fiskvinnslu, smábátaútgerðar og byggðaþróunar. Innan ESB eru þekktar almennar takmarkanir á eignaraðild að fyrirtækjum og í út- gerðarfyrirtækjum gilda t.d. í Bret- landi reglur um lögheimili fyrirtæk- is og starfsmanna og viðskiptatengsl við fiskvinnslu og þjónustu í landi. Önnur dæmi um sérreglur eru t.d. að í Danmörku eru í gildi takmark- anir við því að útlendingar eigi sum- arbústaði og á Álandseyjum gilda takmarkanir um eignaraðild útlend- inga að fyrirtækjum yfirleitt. Meðal annars hefur komið fram það sjón- armið að mjög ótrúlegt sé að aðild- arsamningar við ESB um fiskveiði- mál geti tekist yfirleitt, en á það er einnig bent að upplýsingamiðlun um þessi efni hafi verið næsta takmörk- uð hérlendis og þau lítt verið rædd á almennum vettvangi, en þess vegna sé nokkuð um hæpnar fullyrðingar. Þá hefur og verið lýst áhyggjum vegna trygginga til handa Íslend- ingum um stefnu og stjórnun fisk- veiða til lengri framtíðar, m.a. vegna þess að til breytinga á EES-samn- ingnum þurfa öll þjóðþingin að sam- þykkja breytinguna. En bent er á að ekkert bendi til að reglan um hlut- fallslegt jafnvægi muni víkja, en hún er einn af hornsteinum í skipulagi og starfi ESB og þarf samþykki allra aðildarríkjanna til að breyta henni. Ýmsir aðrir þættir Almennt er viðurkennt að að æ fleiri samfélagsleg viðfangsefni ná yfir stærra svæði og meiri mann- fjölda en nemur þjóðríki. Má nefna mengun, náttúruvernd, vatn og loft, þróun heilsugæslu og heilbrigðis- fræða, varnar- og öryggismál, lög- gæslu og réttarfar, samgöngumál, listir og afþreyingarstarfsemi, mannréttindi, framhaldsmenntun og margt fleira. Sama gildir um þró- unarverkefni og nýsköpun í atvinnu- lífi, markaði, vísindum, tækni og menningu. Einnig er bent á að sam- eiginlegur vettvangur auki fjöl- breytni, hagræði, öryggi, skilvirkni, bæti lífskjör, og mæti þörfum nýrra kynslóða. Færð hafa verið rök fyrir því að þessi ofarnefndu atriði eigi m.a. við um mögulega aðild Íslend- inga að ESB. Við aðild lækkar verð einhverra matvörutegunda og þjón- usta sumra sameiginlegra stofnana verður ódýrari. Við aðild lækkar fjármagns- og gjaldeyriskostnaður, svo og kostnaður við banka-, fjár- mála- og tollkerfi. Við aðild lækkar almennur viðskiptakostnaður at- vinnulífsins, en viðurkennt er að örðugt er að meta slíka lækkun ná- kvæmlega fyrirfram. Bent hefur verið á áhrif Evrópusamrunans og sameiginlegs gjaldmiðils á sam- keppni og verðlag, á aðhald að ráð- andi fyrirtækjum og gagnsæi í markaðsákvörðunum, á framleiðni- þróun, hagvaxtarforsendur og þar með á almennan kaupmátt og lífs- kjör. Greiðslur Þá er vikið að greiðslum vegna að- ildar Íslands að ESB, bæði greiðslum Íslands til ESB og fram- lögum og styrkjum frá ESB. Þar segir: Lauslegar áætlanir benda til þess að beinar árlegar greiðslur Ís- lendinga til ESB muni við aðild verða nálægt 8 milljarðar króna, en aftur komi um 5 milljarðar króna í ýmsum framlögum og styrkjum. Þetta eru u.þ.b. 10.000–12.000 kr. í hreina árlega greiðslu til ESB á mann hér á landi miðað við mjög lauslegar áætlanir. Hafa ber í huga að þessar áætlanir sýna fyrst og fremst mjög grófar tölur um greiðslur ríkisins, en annars vegar taka þær ekki tillit til þess að sjóðir ESB taka á sig margvísleg útgjöld sem íslenska ríkið ber nú og hins vegar sýna þær ekki áhrif af lækk- uðum viðskiptakostnaði atvinnulífs- ins og öðrum þáttum sem getið er annars staðar. Þær taka heldur ekki tillit til þess að við aðild lækkar kostnaður Íslendinga við sameigin- leg verkefni, stjórnsýslu og þátttöku og vegur það nokkuð á móti auknum almennum rekstrarkostnaði stjórn- sýslunnar. Með fjölgun aðildarlanda er talið að framlag Íslendinga muni að öllum líkindum hækka. Rétt er að taka fram að sérfræðingar telja að hagræði vegna lækkaðs fjármagns- og viðskiptakostnaðar o.fl. nemi miklu hærri fjárhæðum en þær ár- legu beinu greiðslur sem getið er hér að ofan. Fullveldi Loks er hér gripið niður í grein- argerðinni þar sem er fjallað áhrif aðildar fyrir fullveldi landsins og segir um það: Rök hafa verið leidd að því að nú- tíðaraðstæður rekist að ýmsu leyti á hefðbundinn skilning á fullveldi og sjálfstæði þjóða. Alhliða samskipti og viðskipti séu orðin svo miklum mun meiri og fjölþættari en áður og hagsmunir þjóðanna samofnir langt umfram það sem áður var. Bent er á að við þessu eigi ekki að bregðast með því að falla frá viðurkenndum hugsjónum íslensku þjóðarinnar, heldur með því að meta stöðuna og skilgreina hvernig hugsjónirnar hæfa gerbreyttum aðstæðum og hvernig þær verði áfram leiðarvísir þjóðarinnar í breyttum heimi. Ljóst virðist að aðild að ESB felur í sér af- sal formlegra hefðbundinna fullveld- isréttinda og því hefur einnig verið haldið fram að svipað eigi við um EES og jafnvel Atlantshafsbanda- lagið. Þá hefur verið bent á að tak- markanir á möguleikum á raunveru- legri beitingu fullveldisréttar í verki skipta einnig máli. Það sjónarmið hefur komið fram að endurskilgrein- ing ESB á fullveldisrétti aðildar- þjóða sé raunhæft endurmat við gerbreyttar aðstæður. Þá er vakin athygli á því að ekki fylgjast æv- inlega að lögformlegt fullveldi og stjórnmálalegt sjálfstæði, og má jafnvel halda því fram að full aðild að ESB geti styrkt stjórnmálalegt sjálfstæði frekar en hitt, miðað við núverandi stöðu og horfur um þróun EES. Bent er á að innan ESB er m.a. rætt um möguleika á því að auka sveigjanleika, svigrúm og fjöl- breytni í samrunaþróuninni, t.d. þannig að einstök ríki geti valið sér misnáin tengsl og mismikinn sam- runa án þess að aðildarríkjum verði þá skipt í misréttháa flokka. Skipu- lagsþróun ESB að þessu leyti hefur einnig áhrif á horfur um fullveldi og sjálfstæði aðildarríkjanna.  Umfjöllun um greinargerð Evrópu- nefndarinnar er einnig að finna á Frétta- vef Morgunblaðsins, www.mbl.is/frettir, undir yfirskriftinni Helstu mál. Þaðan er hægt að tengjast á heimasíðu Framsókn- arflokksins, www.framsokn.is, þar sem skýrslan er birt í heild. Úr greinargerð Evrópunefndar Framsóknarflokksins Ýmis umdeild áhrif ESB- aðildar reifuð Morgunblaðið/Þorkell Ítarlega er fjallað um áhrif aðildar að Evrópusambandinu á fiskveiðar.  Gunnar Jónasson, barnalæknir, varði hinn 25. nóvember 2000 dokt- orsritgerð sína við læknadeild Há- skólans í Ósló. Ritgerðin byggist á 6 vísindagrein- um sem birtar hafa verið í al- þjóðlegum vís- indatímaritum sem einkum fjalla um ofnæmis- og lungnasjúkdóma. Titill ritgerðar- innar er: „Childhood asthma; hospit- al admissions and treatment. A 16 year study of hospital admissions in Oslo and the effect of low dose in- haled steroids in children with mild asthma.“ Ritgerðin fjallar að hluta um breytingar sem hafa orðið á inn- lögnum barna á sjúkrahús vegna bráðaastma í Ósló á árunum frá 1980–1995 og byggist þar á upplýs- ingum úr sjúkraskrám allra barna sem lögð voru inn vegna sjúkdóms- ins á tímabilinu. Innlagnartíðni hvers árs var reiknuð út miðað við fólksfjölda í sambærilegum aldurs- hópum og fór vaxandi fram til 1990, en eftir þetta dró nokkuð úr heild- artíðninni. Tíðni fyrstu innlagnar vegna astma fór þó vaxandi á öllu tímabilinu, einkum vegna tíðra inn- lagna yngstu barnanna (0–3 ára), sem getur endurspeglað aukna tíðni sjúkdómsins í þessum aldurshópi. Fjölda endurinnlagna vegna sjúk- dómsins fækkaði hins vegar veru- lega á tímabilinu og að sama skapi var sýnt fram á marktæka styttingu sjúkrahúsdvalar innlagðra barna á seinni hlutanum Líklegt er talið að vaxandi notkun stera við meðferð sjúkdómsins minnki líkur á sjúkra- húsinnlögn. Ritgerðin greinir einnig frá nið- urstöðum annarrar tvíblindrar rann- sóknar sem einkum fjallar um áhrif lágskammtameðferðar (0,1–0,2 mg) með innöndunarstera (budesonid) gegn vægum astma. Niðurstöður benda til þess að slík lágskammta- meðferð geti komið í veg fyrir áreynsluastma hjá börnum og valdið fækkun bólgufrumna (eosinophils) í blóði án þess að valda alvarlegum aukaverkunum. Í ritgerðinni er einnig sýnt fram á að meðferðar- heldni (compliance) minnkar veru- lega við langvarandi meðferð og var einungis um 50% í lok meðferð- artímabilsins, en foreldrar/börn virt- ust oft skýra frá mun betri meðferð- arheldni en hægt var að sannreyna með því að mæla magn (ónotaðra) lyfja sem skilað var reglulega meðan á rannsókninni stóð. Andmælendur við doktorsvörnina voru Göran Wennegren prófessor frá Háskólanum í Gautaborg, Leif Bjermer prófessor frá Háskólanum í Þrándheimi og Eirik Monn prófess- or frá Háskólanum í Ósló. Að- alleiðbeinandi Gunnars var Kai- Håkon Carlsen prófessor. Gunnar lauk stúdentsprófi frá MR 1977 og læknaprófi frá HÍ 1984. Hann starfaði sem aðstoðarlæknir við barnadeildir í Reykjavík frá 1986–1988 og við barnadeild Haukel- and-háskólasjúkrahússins í Bergen frá 1988–1991 og lauk þar sérfræði- menntun í barnasjúkdómum árið 1991. Hann starfaði sem sérfræð- ingur í barnasjúkdómun við Ullevål- háskólasjúkrahúsið í Ósló frá 1992, og sem yfirlæknir ofnæmis- og lungnadeildar barna 1998–2000. Gunnar hlaut réttindi í ofnæm- islækningum barna 1995. Hann starfar nú sem deildarlæknir á barnadeild Landspítala í Fossvogi og rekur lækningastofu. Foreldrar hans eru Ásta G. Pjétursdóttir og Jónas S. Jónasson kaupmaður, sem nú er látinn. Gunnar er kvæntur Guðbjörgu Eggertsdóttur sjúkra- þjálfara og eiga þau þrjú börn. FÓLK Doktors- ritgerð um astma

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.