Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 53
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 53 Þegar ég fékk að vita að amma væri dáin fannst mér það ekki geta verið satt. Þessi hressa og glaðlynda kona sem öllum þótti vænt um. En þetta var satt og skilur þessi ein- staka kona eftir sig stórt skarð í hjörtum þeirra sem til hennar þekktu. Hún var duleg og gerði allt vel sem hún tók sér fyrir hendur og voru hún og maður hennar alltaf tilbúin að hjálpa fjölskyldu og vinum ef á þurfti að halda, hvort sem það var dagur eða nótt. Enn er það mér samt minnistæðast þegar ég og eldri systir mín bjuggum hjá þeim hjónum þegar við vorum litlar. Við fórum á sunnudagsrúnt að Seltjörn og léku amma og afi þar við okkur allan dag- inn. Við borðuðum nesti við bekk sem þar stóð meðan afi sagði okkur BÁRA ÞÓRÐARDÓTTIR ✝ Bára Þórðardótt-ir fæddist í Vest- mannaeyjum 23. febrúar 1924. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Víðihlíð í Grindavík 12. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskapellu 22. janúar. sögur. Þetta er einn yndislegasti dagur sem ég upplifði með ömmu og afa þótt þeir hafi all- ir verið yndislegir. Amma var dugnaðar- kona og ég gæti skrifað endalaust um hana og það sem hún gerði, en minningin verður ávallt geymd í hjarta mínu. Amma vann jafnan bæði innan heimilis og utan auk þess sem hún hugsaði um okkur syst- ur og eiginmann sinn og gerði hún það vel. En nú síðustu ár höfðu veikindi ömmu versnað og loks eftir langa þraut fékk hún að sofna svefninum langa. Elsku amma mín, guð geymi þig og veri þér góður eins og þú varst öll- um á meðan þú lifðir. Góða nótt, amma mín, og langar mig að kveðja þig með þessum orð- um: Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um huga minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Inga Rut Jósefsdóttir. Amma er gömul kona sem allir þurfa að eiga. Hún er góð kona, nei hún er best. Hún kann margt sem aðrir kunna ekki til dæmis: Hún huggar þig þegar þú grætur, hjálpar þér þegar þú átt bágt og setur plást- ur á sárið þegar þú dettur. Hún pass- ar þig þegar mamma er ekki heima. Hún segir þér sögur fyrir svefninn og fer með bænirnar með þér. Hún vekur þig á morgnana og klæðir þig, gefur þér morgunmat, réttir þér nestið og fylgir þér í skólann. Hún prjónar peysu á þig í einum grænum hvelli svo að þú getir farið út að leika í snjónum. Það sem skiptir öllu máli er það að þú elskir hana og virðir. Amma mín gerði allt þetta fyrir mig og miklu meira en það. Takk fyrir allt og takk fyrir að gefa mér þessa yndislegu konu sem er búin að ala mig upp. Megi Guð geyma þig. Ég elska þig. Eva Dís Jósefsdóttir. Elsku langafi. Ekki fengum við langan tíma saman en mamma mun hjálpa mér að muna eftir þér. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Þinn langafastrákur, Hilmar Hafsteinn. PÉTUR ÞORGILSSON ✝ Pétur Þorgilssonfæddist í Reykja- vík 27. apríl 1926. Hann lést á líknar- deild Landspítalans 14. janúar síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Fossvogs- kirkju 24. janúar. Elsku afi. Það er svo margt sem kemur upp í hugann þegar við hugs- um um þig. Við vorum alltaf svo montnar af því hvað afi okkar átti alltaf stóra og flotta bíla, en bílar voru mesta áhugamál þitt. Mikið fannst þér gam- an að sækja okkur um helgar og keyra okkur upp í Hamragil á skíði, þú og amma með öll barnabörnin í bílnum. Og oft lagði maður nú mikið á þig þegar við keyptum bílgarm og þú varst allt- af tilbúinn að laga og gera við hann þannig að það var eins og maður væri á nýjum bíl. Elsku afi okkar, við viljum einnig þakka þér fyrir að vera alltaf til stað- ar fyrir okkur í blíðu og stríðu, t.d. þegar við bjuggum hjá ykkur ömmu í tæpt ár þegar mamma fór á spítala. Afi, það er eitthvað svo skrítið að koma upp í Álftamýri núna því þú ert ekki lengur þar en við huggum okk- ur við að nú sért þú laus úr viðjum veikindanna og líði vel hjá Guði. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Guð geymi þig, elsku afi okkar. Helga, Magnea og fjölskyldur. Hér sit ég með penna í hönd og er að skrifa minningargrein um Sig- urð litla bróður minn og rifja upp allar yndislegu stundirnar sem hann gaf mér. Ég var duglegur að skrifa Sigurði bréf þegar ég var búsettur er- lendis. En fréttin um að Sigurður væri farinn varpaði skugga yfir hjarta mitt. Ég fann þá hvað litli bró var stór partur af lífi mínu. Allar þær stundir sem við áttum saman, takk, elsku Bró, fyrir að hafa verið bróðir minn. Ég mun sakna ráða þinna, nærveru þinnar og samtalanna. Það var alltaf svo gaman að tala við þig í símann og þú varst alltaf að láta mig vita af þér. Það var margt sem ég fékk að upplifa með Bró. Við unnum saman á tveimur stöðum, fyrst í Endurvinnslunni og SIGURÐUR PÁLL JÓRUNNARSON ✝ Sigurður PállJórunnarson fæddist í Reykjavík 18. febrúar 1982. Hann lést af slysför- um 13. janúar síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Graf- arvogskirkju 22. janúar. síðan í Sandgerði. Það var oft gaman þegar Bró var að vaxa og þroskast. Hann hafði svo gott og samvisku- samlegt hjarta. Ég mun ávallt þakka fyrir að hafa fengið að hitta þig og sjá fyrir síð- ustu jól. Ég veit að frænkurnar þínar litlu hafa misst af miklu að hafa ekki fengið að kynnast þér betur, en ég mun skýra fyrir þeim hvað þú varst góður drengur. Ég veit að þú ert ásamt stóra bró á himnum, því þótt það séu tvö ár á milli ykkar þá eru allir jafnir á himnum. En ég mun ávallt minnast þín og sakna. Þinn bró, Guðni Þorberg. Elsku Siggi. Ég mun sakna þess þegar þú spaugaðir stanslaust í skúrnum og varst síbrosandi. Eitt grínið okkar var um borðið þitt, að þegar ég mætti fara að beita aftur eft- ir veikindin mín þá mætti ég fá borðið þitt ef ég mætti í vinnuna á undan þér og líka af því að ég er orðin svo gömul, en það sorglega við þennan brandara er það að okkur gafst ekki tækifæri á því að keppast um borðið og fullgera þennan brandara okkar. En elsku Siggi minn, ég er bara samt á borðinu þínu og þar líður mér vel. Ég á eftir að sakna þess að sjá þig ekki meira, en ég þakka þér fyrir þetta yndislega ár sem við höfðum til að kynnast hvort öðru. Þín verður sárt saknað, elsku Siggi minn. Elsku Jórunn, Kjartan, Maja, Sólný, Sigurborg, Guðni, Theodór Páll, Theodór Helgi og aðrir aðstand- endur. Ég sendi ykkur mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Birna Guðríður Þorleifsdóttir. ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minn- ingargreina ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður í samráði við aðstandendur Sími 581 3300 allan sólarhringinn — utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Kistur Krossar Duftker Legsteinar Sálmaskrá Blóm Fáni Erfidrykkja Tilk. í fjölmiðla Prestur Kirkja Kistulagning Tónlistarfólk Val á sálmum Legstaður Flutn. á kistu milli landa Sjáum um útfararþjónustu á allri landsbyggðinni. Áratuga reynsla.                     !                  !  "# $   %&''  "! #$%&$""%  %'()&&* '+ %,% ',()&&*  % -. &$""% /  ',()&&* 0) -. +$""% 1%% ',()&&* '" 2"&$""% $ -3"' ',()&$""% 0  % &$""% "%' ',()&$""% * (() (            #      4  #5645 '+ ($% . !,'+2  '+        )   "# $   %'*' +   ,      -    . )    /'' )       0   0            12 11    &"7 0 $&$""%  %&$""% ',("'  1) %&&* 8%' ',+'&&* 8 ',+'&$""% ',2 ',+'&$""% % $&&* ',$ ',+'&&* $! 8%&$""% #$ ',+'&$""% ' 8 5&* & ',+'&$""% ',$ 9"&&* 0  ',+'&$""% ',+'' ',+'&&* (() * ((() (     #  :65      3  %2     4  5. " 1   1   1  # 1   %2 0'&$""%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.