Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. Síðan 1972 múrvörur Traustar íslenskar Leitið tilboða! ELGO ÖRYRKJAR sem eiga rétt á greiðslum vegna dóms Hæstaréttar fá greitt í samræmi við breytingar á almannatryggingalögum um næstu mánaðamót en forseti Íslands stað- festi lögin í gær sem samþykkt voru á Alþingi í fyrrinótt. Þá verður einnig innt af hendi greiðsla vegna janúar- mánaðar. Tryggingastofnun stefnir að því að ljúka greiðslum aftur í tím- ann 1. apríl nk. Ekki er hins vegar ljóst hvenær gengið verður frá greiðslum vaxta vegna vangreiddrar tekjutryggingar. Sæmundur Stefánsson, upplýs- ingafulltrúi Tryggingastofnunar, sagði að ekki lægi ljóst fyrir hvað margir ættu rétt á tekjutryggingu vegna breytinga Alþingis á almanna- tryggingalögunum. Eins lægi ekki fyrir um hvað háa upphæð væri að ræða. Hann sagði að unnið væri að því að keyra greiðsluseðla í gegnum tölvukerfi Tryggingastofnunar. Ekki hafa allir öryrkjar sótt um tekjutryggingu, m.a. vegna þess að þeir hafa fengið þær upplýsingar að þeir ættu ekki rétt á henni vegna þess að makinn hefði of háar tekjur. Ágúst Þór Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar, sagði að við út- keyrslu greiðsluseðla um þessi mán- aðamót yrði reiknuð út tekjutrygging fyrir alla öryrkja sem fengið hefðu örorkulífeyri. Hann sagði að þetta þýddi ekki endilega að allir öryrkjar í sambúð kæmu til með að fá tekju- tryggingu. Ef eigin tekjur öryrkjans færu upp fyrir tiltekin mörk fengi hann enga tekjutryggingu. Raunar gilti það sama um örorkulífeyrinn. Hann gæti fallið alveg niður ef tekjur öryrkjans færu upp fyrir tiltekin mörk. Örorkulífeyririnn skertist hins vegar ekki af tekjum maka eins og tekjutryggingin gerði samkvæmt eldri lögum. Ágúst sagði að öryrki sem aflaði þetta mikilla eigin tekna væri með örorkukort og nyti afsláttar sem það gæfi þó að hann nyti engra greiðsla frá lífeyristryggingum. Gæta verður ýtrustu varkárni Í yfirlýsingu frá forseta Íslands í gær í tilefni af því að hann staðfesti lögin um breytingar á almannatrygg- ingalögum segir að samkvæmt stjórnskipun Íslands gildi sú ótví- ræða regla að það séu dómstólar landsins sem kveði á um hvort lög samrýmist stjórnarskrá, sbr. nýfall- inn dóm Hæstaréttar frá 19. des. 2000. Forseti Íslands fari ekki með úrskurðarvald um það hvort lög fari í bága við stjórnarskrána né heldur feli þjóðaratkvæðagreiðsla í sér nið- urstöðu í þeim efnum. „Þótt forseti Íslands hafi sam- kvæmt stjórnarskrá heimild til að vísa lögum til þjóðaratkvæðagreiðslu verður að gæta ýtrustu varkárni og rök vera ótvíræð þegar því valdi er beitt. Með tilliti til alls þessa hef ég ákveðið að staðfesta lög um breyt- ingu á almannatryggingalögum sem Alþingi samþykkti 24. janúar 2001 en ítreka um leið mikilvægi þess að kappkostað sé að ná sáttum í deilum um réttindi öryrkja,“ segir í yfirlýs- ingu forseta Íslands. Forseti Íslands staðfesti lögin um almannatryggingar í gær Bætur greiddar til ör- yrkja um mánaðamót  Krafist verður/38–39 ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleik lagði það portúgalska, 22:19, í riðlakeppni heimsmeist- aramótsins í handknattleik í Montpellier í Frakklandi í gær. Portúgal var einu marki yfir í hálfleik, 11:10. Leikurinn var í járnum allt þar til á síðustu mínútunum er Íslend- ingum tókst að ná frumkvæðinu og tryggja mikilvægan sigur eftir þriggja marka tap fyrir Svíum í fyrstu umferð á þriðjudaginn. Mikil gleði var í herbúðum ís- lenska landsliðsins í leikslok í gær og hér gleðjast Guðmundur Hrafnkelsson, Patrekur Jóhann- esson, Dagur Sigurðsson, Brynj- ólfur Jónsson, Ólafur Stefánsson, Róbert Sighvatsson, Róbert Juli- an Duranona og Heiðmar Fel- ixson. Morgunblaðið/Golli Íslensk- ur sigur á HM  Sigur Íslands/B1–B8 LANDSSÍMI Íslands á nú eignar- hluti í 34 íslenskum fyrirtækjum auk hluta í 6 erlendum fjarskiptafyrir- tækjum. Af íslensku fyrirtækjunum eru tíu sem starfa við netþjónustu og fjarskipti, ellefu sölu- og þjónustufyr- irtæki, ellefu hugbúnaðarfyrirtæki og tvö rekstrar- og fjárfestingafélög. Fjárfestingar Landssíma í öðrum félögum eru upp á 1,3 milljarða króna. Í erlendum fjarskiptafyrirtækjum á Síminn 75% hlut í eignarhaldsfélag- inu IP fjarskipti en félagið var stofnað um 20% eignarhlut Símans, Opinna kerfa og FBA í fjarskiptafyrirtækinu Cascadent, áður @IPBell. Síminn fjárfestir fyrir 1,3 milljarða króna Á hlut í 34 íslenskum fyr- irtækum og 6 erlendum  Síminn/C10–11 LÖGREGLUNNI í Borgarnesi tóku að berast tilkynningar á tíunda tím- anum í gærkvöld um að yfirlag þjóð- vegarins frá Borgarnesi og allt norð- ur í Staðarskála væri farið að flettast af veginum og hann væri orðinn ill- ökufær. Vegagerðin hefur kannað aðstæð- ur og sagði Halldór Bjarnason, starfsmaður Vegagerðarinnar, að vegurinn væri mjög slæmur á um 100 km kafla þar sem malbikið hefur flest af veginum. Malbikið hefur safnast í þykku lagi utan á hjólbarða bifreiða og undir aurbretti og stórir flekkir svo þeyst undan bílum á ferð og valdið tjóni. Halldór sagði þetta ekki einstakt tilfelli en fáar skýring- ar væri að finna aðrar en að svona gerðist einstaka sinnum þegar mikil vetrarhlýindi kæmu en vegurinn væri enn frosinn undir. Lögreglan í Borgarnesi sagði sím- ann hafa hringt látlaust allt kvöldið þar sem ökumenn tilkynntu um tjón á bílum sínum. Plastbretti á flutn- ingabílum og -vögnum hafa brotnað þegar yfirlagið slettist á bílana og hliðarrúða í fólksbíl brotnaði þegar bíll úr mótstæðri átt jós aurnum yfir hann. Lögreglan kvaðst eiga von á fleiri tjónstilkynningum í dag. Malbik flettist af á löngum vegarkafla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.