Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 16
AKUREYRI
16 FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HELDUR færri farþegar fóru um
Akureyrarflugvöll á síðasta ári en
árið 1999. Samkvæmt bráðabirgða-
tölum fóru rúmlega 190.700 farþeg-
ar um völlinn í fyrra en rúmlega
194.000 árið áður. Heildarfækkun
farþega milli ára er um 2% en
fækkun farþega á milli Akureyrar
og Reykjavíkur er hins vegar innan
við 1%. Fækkun farþega í flugi út
frá Akureyri til Vopnafjarðar nam
hins vegar um 23% milli ára og til
Grímseyjar um 20%.
Sigurður Hermannsson, umdæm-
isstjóri Norðurlandsumdæmis Flug-
málastjórnar, sagði að flug með
ferðafólk væri jafnan nokkuð
sveiflukennt og fækkun farþega til
Vopnafjarðar og Grímseyjar skýrði
fækkunina yfir árið að töluverðum
hluta. „Við vorum með nærri 10%
aukningu á fyrri hluta síðasta árs
en sú aukning hvarf á síðari á hluta
ársins. Stærsti einstaki mánuður
ársins í fyrra var apríl en þá fóru
um 20.500 farþegar um Akureyr-
arflugvöll og er aukningin í mán-
uðinum frá árinu á undan um 33%.
Þar af voru farþegar á flugleiðinni
Akureyri-Reykavík rúmlega 19.500
í mánuðinum.
Samkeppni
úr sögunni
Nokkuð hefur verið um breyt-
ingar í flugrekstri á svæðinu und-
anfarin misseri. Flug frá Akureyri
til Kópaskers lagðist af í janúar ár-
ið 1999 og þegar leið á árið var flug
Raufarhafnar einnig lagt af. Flugi
milli Húsavíkur og Reykjavíkur var
hætt í september sl. en í fyrra voru
farþegar á flugleiðinni tæplega
7.400 á móti tæplega 13.000 árið
1999 og er fækkunin á milli ára um
43%. Sigurður sagði að vegna þess-
ara breytinga hefði Akureyri átt að
standa betur, þar sem eitthvað væri
um að farþegar frá Húsavík færu í
gegnum Akureyri. Einnig væri líka
eitthvað um að farþegar sem hefðu
flogið frá Húsavík, keyrðu nú alla
leið til Reykjavíkur, í stað þess að
fljúgja frá Akureyri.
Samkeppni á flugleiðinni Akur-
eyri-Reykjavík lagðist af í lok apríl
í fyrra og í kjölfarið minnkaði
ferðatíðnin. Sigurður sagði að eftir
að Íslandsflug hætti að fljúga á
þessari leið hafi skapast vandræði,
þar sem Flugfélag Íslands hafi ekki
verið tilbúið að flytja allan þann
fjölda sem var að leita eftir flugi
milli Akureyrar og Reykjavíkur.
„Það var mikið um fullbókaðar vél-
ar og þegar menn ekki komast á
milli þegar þeim hentar, missir
maður eitthvað í keyrslu. Það er
aldrei hægt að bóka 100% í þessar
vélar því þá eru menn farnir að
missa farþega í burtu eftir öðrum
leiðum.“
Flugið verið rekið
með tapi
Sigurður sagði að fyrst á eftir að
Íslandsflug hætti að fljúga hafi
Flugfélag Íslands ekki haft nægan
flugvélakost til að geta sett upp
nægan fjölda ferða á flugleiðinni.
Hann sagði það sína skoðun að við
það hafi einhverjir farþegar tapast.
Sigurður sagði að Íslandsflug hafi
flogið fjórar ferðir á dag en gróft
áætlað hafi Flugfélag Íslands bætt
við sig tveimur af þeim ferðum við
breytinguna.
Nokkur verðhækkun hefur átt
sér stað á flugmiðum en Sigurður
sagði það sína skoðun að aukin
rekstrarkostnaður og verðhækkun
á eldsneyti hafi haft þar mest að
segja. Hann sagði að bæði Flug-
félag Íslands og Íslandsflug hafi
verið að tapa á þessum rekstri og
því væri ekkert óeðlilegt að FÍ hafi
eitthvað gert til að snúa þeirri þró-
un við. Það virðist þó ekki hafa
dugað til þótt félagið hafi verið að
bæta sætanýtinguna.
Morgunblaðið/Kristján
Gengið frá borði á Akureyrarflugvelli. Heldur færri farþegar fóru um völlinn á síðasta ári en árið á undan.
Farþegum um Akureyrar-
flugvöll fækkaði milli ára
FJÁRHAGSÁÆTLUN Dalvíkur-
byggðar fyrir árið 2001 hefur verið
samþykkt í bæjarstjórn en sam-
kvæmt henni verða tekjur bæjar-
sjóðs rétt um 448 milljónir króna á
árinu. Rekstur málaflokka kostar
385,7 milljónir króna þannig að rétt
um 86% tekna fara í rekstur.
Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson
bæjarstjóri sagði að í áætluninni nú
væri gert ráð fyrir að laun hækkuðu
um 6,5% á árinu en það þýðir 17
milljóna króna útgjaldaauka fyrir
Dalvíkurbyggð. Sagði hann að verið
væri að áætla fyrir hækkunum sem
engin leið væri að sjá fyrir. Leitað
hefði verið upplýsinga hjá ýmsum
sveitarfélögum vegna þessa óvissu-
þáttar og væru viðbrögð þeirra mis-
munandi, allt frá því að gera ekki ráð
fyrir neinum hækkunum á launum
og upp í þau 6,5% sem stjórnendur
Dalvíkurbyggðar hefðu afráðið að
setja inn í sína áætlun.
Engar stórar
fjárfestingar á næstunni
Til fjárfestinga á vegum bæjar-
stjóðs er gert ráð fyrir að verja 44,2
milljónum króna, en að meðtöldum
fyrirtækjum bæjarins verður 78,7
milljónum króna varið til fjárfest-
inga. Rögnvaldur Skíði sagði engar
stórar framkvæmdir á döfinni á veg-
um bæjarins á næstunni.
Stærstu framlögin færu til gatna-
gerðar, um 8 milljónir króna og þá
væri ráðgert að hefja endurbætur á
húsnæði leikfélagins, Ungó, en til
þeirra færu 5 milljónir á þessu ári.
Hann sagði aftur á móti að framund-
an á næstu árum væru miklar fram-
kvæmdir, m.a. vegna fráveitukerfis
en það væri metið á um 200 milljónir
og þá hefðu menn nefnt að eftir ætti
að byggja íþróttahús í byggðalaginu.
Mest útgjöld eru að venju vegna
fræðslumála en til þess málaflokks
fara tæpar 192 milljónir króna. Þá
verður tæplega 80 milljónum króna
varið til félagsþjónustu og 46,3 millj-
ónir króna fara til félags- og menn-
ingarmála.
Þá má nefna að yfirstjórn bæjar-
ins kostar 37,6 milljónir, 17,4 millj-
ónir fara í útivistar- og opin svæði og
16,4 milljónir í götur, holræsi og um-
ferðarmál.
Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir
að tekið verði nýtt langtímalán að
upphæð 70 milljónir króna.
Aðhald í rekstri
og fjárfestingum
Bæjarstjóri sagði að helstu ein-
kenni fjárhagsáætlunar Dalvíkur-
byggðar nú væru aðhald í rekstri og
fjárfestingum til að skapa svigrúm
fyrir niðurgreiðslu skulda. Kapp-
kostað væri að halda sama þjónustu-
stigi og áður og í einhverjum tilvik-
um betra en áður. Hann sagði miklar
fjárfestingar á liðnum árum vegna
einsetningar grunnskóla og lántökur
í kjölfar þeirra hefðu leitt til vaxandi
greiðslubyrða.
Þá nefndi Rögnvaldur Skíði að
sveitarfélög á landsbyggðinni hefðu
mátt horfa upp á fækkun íbúa á síð-
ustu árum sem til lengri tíma leiddi
af sér minni tekjur, en þörf fyrir
aukna þjónustu við borgarana væri
enn til staðar. Þetta leiddi af sér sí-
fellt vaxandi hlutfall rekstrar miðað
við tekjur sveitarfélagsins.
Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir 2001 samþykkt
Aðhald skapar
svigrúm til að
greiða niður lán
RÚNAR Andrason sálfræðingur
flytur fyrirlestur um börn og missi í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
fimmtudagskvöldið 25. janúar og
hefst hann kl. 20.
Eftir fyrirlesturinn verða fyrir-
spurnir og umræður. Samhygð,
samtök um sorg og sorgarviðbrögð
á Akureyri, efnir til þessa fyrir-
lestrar og vilja forsvarsmenn þeirra
hvetja syrgjendur og aðra þá sem
málið snertir að koma á fyrirlest-
urinn.
Fyrirlestur um
börn og missi
Samtök um sorg og
sorgarviðbrögð
FÉLAGSMÁLARÁÐ hefur lagt til
að skipaður verði starfshópur til
að móta stefnu Akureyrarbæjar í
málum nýbúa á Akureyri.
Hlutverk starfshópsins verði að
fara yfir stöðu nýbúa í dag og gera
tillögur um stefnumótun og fram-
kvæmdir í þeirra málum. Hér er
fyrst og fremst átt við félagslega
stöðu/einangrun nýbúa og ís-
lenskukunnáttu.
Starfshópnum er jafnframt ætl-
að að kynna sér hvernig málefni
nýbúa hafa þróast hjá öðrum sveit-
arfélögum og hafa samráð við
ýmsa aðila, menntamálaráðuneyt-
ið, félagsmálaráðuneytið, svæðis-
vinnumiðlun, atvinnurekendur og
fleiri.
Markhópurinn er fyrst og
fremst 16 ára og eldri en einnig
þykir rétt að kanna hvernig leik-
og grunnskólar bæjarins taka á
móti ungum nýbúum. Stefnt er að
því að starfshópurinn skili af sér
innan þriggja mánaða.
Félagsmálaráð
Akureyrar
Mótuð
verði stefna
í málum
nýbúa
KAUPFÉLAG Eyfirðinga og dótt-
urfélög hafa gert samstarfssamn-
inga við mörg íþróttafélög á
félagssvæði sínu þar sem öflugt
félagsstarf íþróttafélaganna nýtist
fyrirtækjunum við margvísleg
kynningarmál gegn ákveðnu fjár-
framlagi þeirra. Í samningunum er
jafnframt kveðið á um árangurs-
greiðslur til íþróttafélaganna nái
þau tilteknum markmiðum.
Á dögunum var gengið frá end-
urnýjun á samningi við Íþrótta-
félagið Þór á Akureyri og jafn-
framt fékk félagið afhenta
peningaupphæð í kjölfar þess
glæsilega árangurs sem meist-
araflokkur karla náði á Íslands-
mótinu í innanhússknattspyrnu á
dögunum. Þar stóð félagið sem
kunnugt er uppi sem sigurvegari
og er þetta í annað sinn sem Þór
nær þessum eftirsótta titli.
Að sögn Ragnheiðar Bjarkar
Guðmundsdóttur markaðsstjóra
KEA er þetta þriðja árið í röð sem
KEA gengur frá samningi í núver-
andi formi, þar sem deildir íþrótta-
félaganna njóta þess í formi árang-
ursgreiðslu ef þær ná settum
markmiðum. Hún sagði það einmitt
tilganginn með þessum ákvæðum
samningsins að hvetja félögin til
enn frekari dáða.
Kristján Guðmundsson þjálfari
Þórs sagðist líta á þennan titil sem
gott veganesti fyrir sumarið. Einn-
ig væri það vissulega hvatning
þegar góður árangur á vellinum
skilaði sér í beinhörðum peningum.
Kristján sagðist vera með gott lið í
höndunum og að Þórsarar hefðu
sett stefnuna á toppbaráttu 1.
deildar á komandi keppnistímabili.
Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir, markaðsstjóri KEA, afhendir
Kristjáni Guðmundssyni, þjálfara Þórs, peningaupphæð sem viðurkenn-
ingu fyrir Íslandsmeistaratitil félagsins í innanhússknattspyrnu.
KEA verðlaunar Þór
♦ ♦ ♦