Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 33 VERÐHRUN Allt með 50% afslætti FISKVEIÐAR og útgerð hafa jafnan skipt miklu í búskap og at- vinnu eyþjóðanna við norðanvert Norður-Atlantshaf. Af sjálfu leið- ir, að fiskibátar hafa löngum gegnt miklu hlutverki í þessum löndum, verið eitt helsta atvinnu- og samgöngutæki íbúanna og veigamikill þáttur menningarsög- unnar. Í öllum löndum við norðanvert Norður-Atlantshaf hafa fræði- menn um langa hríð unnið að rannsóknum á sögu fiskibáta – árabáta – og hafa þær rannsóknir skilað mörgum og merkum verk- um í áranna rás. Fyrir okkur Ís- lendinga er þar nærtækast að minnast rækilegra rannsókna dr. Lúðvíks Kristjánssonar á sögu og gerðum íslenska árabátsins. Í Færeyjum eiga árabátar sér vitaskuld engu ómerkari sögu en hér á landi, þótt heimildir um sögu þeirra nái að sönnu ekki jafn langt aftur. Í bókinni, sem hér er til umfjöllunar, rekur Andras Mortensen sögu færeyska ára- bátsins svo langt aftur sem heim- ildir leyfa, og byggir frásögn jöfn- um höndum á rannsóknum á fornleifum, ritheimildum og frá- sögnum skilríkra og kunnugra heimildarmanna. Hann hefur frá- sögnina á þjóðfræðilegri umræðu um hlutverk báta í eldri sam- félögum og ræðir þar kenningar og skoðanir, sem verið hafa of- arlega á baugi í fræðilegri um- ræðu þjóðfræðinga á undanförn- um árum. Þá tekur við umfjöllun um heimildir, auk þess sem höf- undur gerir grein fyrir bátarann- sóknum í öðrum löndum. Þessu næst tekur við frásögn af færeyska árabátnum. Hún hefst á löngum og ýtarlegum kafla um bátasmíð Færeyinga á fyrri tíð, þar sem lýst er hinum ýmsu báta- gerðum og smíðaaðferðum, smíða- efni, verkfærum og öllum búnaði bátanna. Næst er svo stuttur kafli, þar sem færeyskir bátar eru bornir saman við báta á Íslandi, Hjaltlandi og í Noregi. Annar meginkafli bókarinnar ber yfirskriftina „Bátur og sjólív“. Í honum fjallar höfundur um hlut- verk færeyska árabátsins í ald- anna rás, greinir frá fjölda báta á ýmsum tímum, bátanöfnum, við- haldi á bátum, segir frá helstu gerðum veiðarfæra, lýsir því hvernig bátar voru notaðir til ým- iss konar veiða og flutninga, hvernig skipverjum var skipað o.s.frv. Loks segir frá upphafi vél- báta í Færeyjum og kappróðr- arbátum og í síðasta meginkafla eru uppdrættir og nákvæmar teikningar af fjölmörgum árabát- um af ýmsum stærðum og gerð- um. Í bókarlok eru allar nauðsyn- legar skrár og efnisútdráttur á ensku. Höfundur þessarar bókar, Andras Mortensen, hefur um ára- bil unnið að rannsóknum á fær- eyskri sögu, ekki síst miðalda- sögu, og ritað ýmislegt um rannsóknarefni sín. Þessi bók er doktorsritgerð hans og mun hann verja hana við Fróðskaparsetur Færeyja innan skamms. Öll er þessi bók einkar fróðleg, ekki aðeins um báta, heldur um marga meginþætti færeyskra sjávarhátta á árabátaöld. Hún byggist á víðfeðmri og vandaðri rannsóknarvinnu. Fræðimennska höfundar er til fyrirmyndar og efast ég ekki um að íslenskir áhugamenn um sögu bátasmíða og fiskveiða muni fýsa að lesa þetta rit. Þá mun það ekki spilla ánægj- unni, að bókin er einstaklega fal- leg að allri gerð, prentuð á góðan pappír og prýdd fjölda mynda og teikninga, sem margar segja mikla sögu. Færeyskir sjávarhættir BÆKUR S a g n f r æ ð i Sjómentir föroyinga í eldri tíð eftir Andras Mortensen. Annales Societatis Scientiarum Færoensis. Supplementum XXVI. Tórshavn 2000. 352 bls., myndir, kort, teikningar. HIN FÖROYSKI RÓÐRARBÁTURIN Jón Þ. Þór BANDARÍSKA alríkislögreglan (FBI) afhenti á dögunum gríska rík- inu með viðhöfn þessa fornmuni er hér sjást. Mununum var stolið úr grísku safni fyrir einum tíu árum, en komu aftur í leitirnar fyrir stuttu. AP Stolnir fornmunir MÖGULEIKHÚSIÐ sýnir barna- leikritið Langafi prakkari í Grindavík í dag kl. 17.15 í sal grunnskólans. Leikritið, sem er eftir Pétur Egg- erz, byggist á sögum Sigrúnar Eld- járn, Langafi drullumallar og Langafi prakkari. Langafi og Anna eru leikin af þeim Bjarna Ingvarssyni og Aino Freyju Järvelä, leikstjóri er Pétur Eggerz, búningar eru hannaðir og unnir af Katrínu Þorvaldsdóttur. Langafi prakk- ari í Grindavík LEIKFÉLAG Kópavogs tekur nú til sýninga á ný eftir áramót leikritið Líku líkt (Measure for measure) eftir William Shake- speare í kvöld kl. 20. Leikritið er í leikstjórn Þorgeirs Tryggva- sonar. Helstu leikarar eru Birg- itta Birgisdóttir, Helgi Róbert Þórisson, Hörður Sigurðarson og Skúli Rúnar Hilmarsson. Gamanleikurinn Líku líkt, gerist meðal vændiskvenna, böðla og raunar nunna, hertoga og annarra íbúa Vínarborgar. Í borginni hefur ólifnaður og sið- ferðislausung náð að blómstra í skjóli mildra yfirvalda. Næstu sýningar verða laug- ardaginn 27. janúar, fimmtu- daginn 1. og sunnudaginn 4. febrúar. Ekki eru ráðgerðar fleiri sýningar. Líku líkt aftur á fjalirnar í Kópavogi ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.