Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 64
DAGBÓK 64 FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skipin Reykjavíkurhöfn: Arn- arfell fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Gnúpur kemur í dag. Fréttir Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Félag frímerkjasafn- ara. Opið hús laug- ardaga kl. 13.30–17. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og bók- band, kl. 9–16.30 penna- saumur og bútasaumur, kl. 9.45 morgunstund, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13 opin smíðastofa, kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opnar. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böð- un, kl. 9 leikfimi, kl. 9– 12 myndlist, kl. 9–16 handavinna og fótaað- gerð, kl. 14 dans. Þorra- blót verður haldið föstu- daginn 26. janúar kl. 17. Þóra Ágústsdóttir og Bjarni Aðalsteinsson kveðast á. Bragi Þór Valsson syngur við und- irleik Þóru Fríðu Sæ- mundsdóttur. Kvenna- kór Félagsþjónustunnar syngur undir stjórn Guðbjargar Tryggva- dóttur. Salurinn opn- aður kl. 16.30. Skráning í síma 568-5052 fyrir föstudaginn 26. janúar. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Brids kl. 13. Aðalfundur FEB verður haldinn í Ásgarði, Glæsibæ, 24. febrúar. kl. 13.30. Tillaga kjör- nefndar um formann og aðra stjórnarmenn félagsins liggur frammi á skrifstofu FEB. Til- lögur félagsmanna um einstaka menn til stjórnarkjörs skulu ber- ast skrifstofu FEB eða kjörnefnd fyrir 9. febr- úar nk. Breyting hefur orðið á viðtalstíma Silf- urlínunnar. Opið verður á mánudögum og mið- vikudögum frá kl. 10 til 12 f.h. Upplýsingar á skrifstofu FEB í síma 588-2111 frá kl. 10 til 16. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós! Félagsstarfið á Hlaðhömrum er á þriðjudögum og fimmtu- dögum, kl. 13-16.30, spil og föndur. Leikfimi er í íþróttasal á Hlaðhömr- um á þriðjudögum kl. 16. Sundtímar á Reykja- lundi kl. 16 á mið- vikudögum á vegum Rauða krossdeildar Mos. Pútttímar eru í Íþróttahúsinu að Varmá kl. 10-11 á laugar- dögum. Kóræfingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mosfellsbæ, eru á Hlaðhömrum á fimmtudögum kl. 17-19. Upplýsingar hjá Svan- hildi í síma 586-8014 kl. 13-16. Tímapöntun í fót- hand- og andlitssnyrtingu, hárgreiðslu og fóta- nudd, er í s. 566-8060 kl. 8-16. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18-20. Kl. 9 böðun, hárgreiðslu- stofan og handa- vinnustofan opnar, kl. 9.30 danskennsla, gler og postulínsmálun, kl. 13 opin handa- vinnustofan og klippi- myndir, kl. 14.30 söng- stund. Félagsstarf aldraðra Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hársnyrting, kl. 11.10 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsst. Furugerði 1. Kl. 9 aðstoð við böðun, smíðar og útskurður, leirmunagerð og gler- skurður, kl. 9.45 versl- unarferð í Austurver, boccia verður á morgun, föstudag, kl. 13.30. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Púttæfing í Bæjar- útgerðinni kl. 10-12. Brids kl. 13.30. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Spænsku- námskeiðið byrjar 25. janúar kl. 13.30 í Kirkju- lundi, tölvunámskeið byrjar 29. janúar kl. 17 í Garðaskóla, bókmennta- og leshringur í bóka- safninu 5. febrúar kl. 10.30. Spilað á þriðju- dögum í Kirkjulundi kl. 13.30. Spilað í Holtsbúð 1. febrúar kl. 13.30. Gerðuberg, félagsstarf. Sund- og leikfimiæf- ingar kl. 9.30 í Breið- holtslaug, kl. 10.30 helgistund, umsjón Lilja G. Hallgrímsdóttir, djákni, frá hádegi vinnustofur og spilasal- ur opinn. Á morgun kl. 16 verður opnuð mynd- listarsýning Ólafs Jak- obs Helgasonar, m.a. syngur Gerðubergskór- inn undir stjórn Kára Friðrikssonar, Benedikt Egilsson leikur á harm- onikku, Unnur Eyfells leikur á píanó. Mánu- daginn 29. janúar eftir hádegi koma eldri borg- ar úr Mosfellsbæ, um- sjón Svanhildur Þor- kelsdóttir. Veitingar í kaffihúsi Gerðubergs. Allar upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575-7720. Norðurbrún 1. Kl. 9 handavinnustofurnar opnar, útskurður, kl. 10 leirmunanámskeið. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnnustofan op- in, leiðbeinandi á staðn- um, kl. 9–15, gler og postulín kl. 9.30, leikfimi kl. 9.05, kl. 9.50 og kl. 10.45, kl. 13 taumálun, og klippimyndir, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21 línudans, Sigvaldi kenn- ir. Kl. 17 Söngfuglarnir taka lagið, Guðrún Guð- mundsdóttir mætir með harmonikkuna. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulíns- málun, kl. 10 jóga og ganga, kl. 13 brids, kl. 14 boccia, kl. 13–16 handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum. Gullsmárabrids. Brids- deild FEBK í Gullsmára bíður alla eldri borgara velkomna að brids- borðum í félagsheim- ilinu að Gullsmára 13 á mánudögum og fimmtu- dögum. Mæting og skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Hraunbær 105. Kl. 9– 16.30 bútasaumur, perlusaumur og korta- gerð, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 9.45 boccia, kl. 14 félagsvist. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, gler- skurður, kl. 9–17 hár- greiðsla og böðun, kl. 10 leikfimi, kl. 13.30 bóka- bíll, kl. 15.15 dans. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 opin handavinnustofa búta- og brúðusaumur, böðun, fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 10 boccia, kl. 13 handa- vinna, kl. 14 félagsvist. Vesturgata 7. Kl. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15–12 aðstoð við böðun, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 13–14 leik- fimi, kl. 13–16 kóræfing. Þorrablót verður haldið fimmtudaginn 1. febr- úar, húsið opnað kl. 17.30. Þorrahlaðborð, kaffi og konfekt. Pavel Manasek við flygilinn, veislustjóri Árni John- sen, Edda Björgvins- dóttir leikkona kemur í heimsókn, Fjölda- söngur. KKK syngja undir stjórn Pavels. Vegna forfalla getum við bætt við nemendum í glerskurð og tréút- skurð. Uppl. og skrán- ing í síma 562-7077. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan og hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður, fatasaum- ur og morgunstund, kl. 10 boccia og fótaaðgerð- ir, kl. 13 handmennt, körfugerð og frjálst spil. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11 í Digra- neskirkju. Kristniboðsfélag kvenna, Háaleitisbraut 58-60. Fundur í umsjá Vilborgar Jóhannes- dóttur í dag kl. 17. Húnvetningafélagið, félagsvist í Húnabúð, Skeifunni 11, í kvöld kl. 20. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. Kvenfélag Kópavogs. Fundur í kvöld kl. 20.30 í Hamraborg 10. Spilað verður bingó. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Í kvöld kl. 19.30 tafl. Slysavarnarkonur í Reykjavík. Myndakvöld og opið hús í Höllubúð föstudaginn 26. janúar kl. 20. Ferðafélagar úr Pragferðinni boðnar sérstaklega velkomnar, kaffiveitingar og fleira. Í dag er fimmtudagur 25. janúar, 25. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Þeir fóru og predikuðu hvarvetna, en Drottinn var í verki með þeim og staðfesti boðun þeirra með táknum, sem henni fylgdu. (Markús 16, 20.) MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. Víkverji skrifar... HINN 17. desember birtist íMorgunblaðinu Reykjavíkur- bréf, þar sem fjallað var um „frum- kvöðla samtímans“, eins og sagt var í millifyrirsögn bréfsins. Þar sagði m.a.: „Líklega er á engan hallað þótt fullyrt sé að Kári Stefánsson, for- stjóri Íslenzkrar erfðagreiningar, sé frumkvöðull okkar samtíma á Ís- landi. Um hann fjallar Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri í Garðabæ og fyrrverandi blaðamaður á Morg- unblaðinu, í bók sinni Í hlutverki leiðtogans sem út kom fyrir skömmu. Ásdís Halla hefur raunar sjálf skipað sér í ákveðna forystu- sveit á ungum aldri því að hún er ein- ungis fjórða konan sem valizt hefur til slíkra forystustarfa í sveitarfélög- unum á höfuðborgarsvæðinu. Hin fyrsta var Hulda Jakobsdóttir, sem var í nokkur ár bæjarstjóri í Kópa- vogi, síðan Auður Auðuns, sem um skeið var borgarstjóri í Reykjavík, þá Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og loks Ásdís Halla sjálf, sem tók við starfi bæjarstjóra í Garðabæ nú í októbermánuði sl.“ x x x VEGNA þessara ummæla erástæða til þess að vekja á því athygli að ónefnd er kona, sem lagði drjúgan skerf til opinberra mála í Mosfellsbæ, nágrannabyggðarlagi höfuðborgarinnar fyrir nokkrum áratugum. Það var Helga Jónína Magnúsdóttir, húsfreyja á Blika- stöðum í Mosfellssveit, sem nú heitir Mosfellsbær. Helga Jónína var kjör- in í hreppsnefnd í sveitarstjórnar- kosningum 1954 og endurkosin 1958 og varð þá varaoddviti hreppsins, en tók við oddvitastörfunum í ágúst- mánuði það ár. Hún var síðasti odd- viti sveitarinnar, sem hafði öll störf sveitarfélagsins á eigin hendi áður en hreppurinn fékk skrifstofu og sveitarstjóra. Hún var meðal fystu kvenna á Íslandi til þess að gegna ábyrgðarstörfum í sveitarfélagi hér- lendis. Helga lézt 1999 92ja ára að aldri og fór útför hennar fram frá Lágafellskirkju hinn 8. marz það ár. x x x HELGA Jónína Magnúsdóttirbeitti sér m.a. fyrir byggingu Varmárskóla í oddvitatíð sinni, en skólinn var tekinn í notkun árið 1961 og leysti úr brýnni þörf fyrir skóla- húsnæði í hreppnum, enda voru skólamál henni alla tíð mjög hugleik- in. Einnig beitti hún sér fyrir því að fjármunir fengjust til byggingar Varmárlaugar, en bygging laugar- innar hófst í oddvitatíð hennar. Þá leysti hún og jörðina Varmá úr ábúð, en á henni standa í dag skólamann- virki, sem staðsett eru í hjarta byggðarinnar í Mosfellsbæ. Eftirlifandi eiginmaður Helgu á Blikastöðum, eins og hún var jafnan nefnd, er Sigsteinn Pálsson. ÉG hef heyrt talsvert, í um- ræðunni um öryrkjamálið, að þessi viðbót sé eingöngu fyrir efnameira fólk og þar hef ég heyrt að maki hafi allt að 300.000–400.000 kr. tekjur á mánuði. Það eru aldeilis ekki allir makar ör- yrkja með svona háar tekjur. Sumir eru með rúm- ar 100.000 kr. á mánuði og aðrir minna. Allt í einu núna fara þeir sem eru í ríkis- stjórnarflokkunum að at- huga, að það þurfi að lag- færa bætur einstæðra öryrkja. Þeir hafa nú haft ansi langan tíma til þess að lagfæra þær. Hvers vegna allt í einu þessi áhugi á að lagfæra bæturnar núna? Framganga ríkisstjórnar í sambandi við dóm Hæsta- réttar er til skammar. Eng- inn veit hvenær hann getur misst heilsuna vegna slysa eða veikinda. Þetta mann- réttindamál varðar alla þjóðina. Hver kærir sig um að þurfa að verða algjörlega háður maka sínum, ef hann verður öryrki? Allir eiga rétt á því að lifa með reisn. Sigrún. Frábært fyrirtæki Í RÚMA tvo áratugi hef ég átt viðskipti við Smith og Norland með heimilistæki, sjónvörp o.fl., m.a. fjórar þvottavélar fyrir húsfélag. Allt fyrsta flokks tæki. Það sem dreif mig til þess að skrifa þessi þakkarorð var þvottavél, sem ég keypti í apríl 1999. Þá var ég svo óheppin að fá svokallað „mánudags“-eintak, sem stöðugt var að bila. Starfs- menn fyrirtækisins komu aftur og aftur, stundum gátu þeir lagað vélina á staðnum, en í önnur skipti fór hún á verkstæði þeirra. Allt var það mér að kostn- aðarlausu, einnig eftir að ábyrgðin rann út. Að lokum þraut þolinmæði mína og sendu þeir mér þá nýja vél með fullri ábyrgð í október 2000. Hún þjónar okkur dyggilega og engin vanda- mál hafa komið upp. Öll þau skipti, sem ég hef haft samband við fyrirtækið, hefur kurteisi og þjónustu- lund starfsmanna verið í fyrirrúmi. Um leið og ég þakka frábæra þjónustu fyrr og síðar óska ég fyrir- tækinu til hamingju með sitt góða starfsfólk. Það mættu margir taka ykkur sér til fyrirmyndar. Kolbrún Inga Sæmundsdóttir. Hæstiréttur útskýri dóminn VEGNA hinna ýmsu túlk- ana á dómi Hæstaréttar varðandi öryrkjamálið svo- kallaða finnst mér ekki úr vegi að Hæstiréttur útskýri nákvæmlega við hvað er átt með dómnum. Þá gætu aðr- ir sleppt því að túlka þennan dóm út frá eigin brjósti og almenningur ætti ekki að þurfa að velkjast í vafa um dóminn. Þá er annað mál sem mig langar að nefna, en það er nýyrðasmíð Íslendinga. Þegar fyrst var farið að leit- ast við að búa til íslensk orð yfir ýmsa hluti og hugtök var ekki laust við að sú til- raunastarfsemi færi í taug- arnar á ýmsum, þ. á m. mér, enda tókst ekki alltaf vel upp. Sum orð voru hins veg- ar þjál og þægileg, s.s. orðið tölva, og festust því í málinu. Nú er ég löngu hættur að láta þessa nýyrðasmíð fara í taugarnar á mér og er stolt- ur og ánægður með hversu vel hefur tekist til með ýmis orð. Erlendar þjóðir, t.d. Danir, líta til okkar öfund- araugum, því þeir hafa ekki haldið vöku sinni í þessum efnum, og enskan er að valta yfir dönskuna. Konan mín er í dönskunámi úti í Danmörku og í einhverri kennslustundinni bar þetta mál á góma. Kennarinn nefndi við bekkinn hversu vel Íslendingum hefði tekist í viðleitni sinni að halda við tunginni. Hann sagði að Danir gætu lært margt af Íslendingum í þessum efn- um, og það hversu vel hefur tekist til með íslenskuna ætti að vera Dönum hvatn- ing til að gera hið sama. Guðmundur Jónasson. Þakkir fyrir góða grein MIG langar að þakka Árna Gunnarssyni fyrir góða grein, sem birtist í Morgun- blaðinu, miðvikudaginn 24. janúar sl., og heitir: „Eigum við að selja Heklu, Gullfoss og ömmu líka?“ Sigrún Sigurþórsdóttir. Tapað/fundið Bíllykill í óskilum BÍLLYKILL fannst á Gunnarsbraut, laugardag- inn 20. janúar sl. Upplýsing- ar í síma 552-5139. Veit einhver hver konan er? SUMARIÐ 1936 gekk þýsk kona yfir Sprengisand. Hún lét ferja sig yfir Tungná og kom að Mýri í Bárðardal, líklega í ágúst og fékk að tjalda þar. Getgátur voru um að hún hefði e.t.v. verið njósnari. Ef einhver man eftir ferð konunnar eða veit um einhver skrif eða frétt um hana vinsamlega hringið í síma 566-8786 eða sendið netpóst til sesselja@strik.- is. Smellt peninga- budda tapaðist SMELLT peningabudda tapaðist laugardaginn 20. janúar sl. í Reykjavík. Í buddunni voru öll skilríki. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 553-5389. Dýrahald Kettlingar fást gefins ÞRÍR sjö vikna mjög falleg- ir kettlingar fást gefins á góð heimili. Þeir eru kassa- vanir. Upplýsingar í síma 587- 9531. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Mannleg reisn 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 kinnhestur, 8 styggjum, 9 járnkróks, 10 stúlka, 11 drekka, 13 ákveð, 15 svínakjöt, 18 dreng, 21 stefna, 22 afkomandi, 23 hefur tíma til, 24 þrot- laus. LÓÐRÉTT: 2 ósínk, 3 beiskt bragð, 4 blökkumann, 5 ótti, 6 eld- stæðis, 7 óvana, 12 blóm, 14 lengdareining, 15 flagg, 16 sjúkdómur, 17 skáld, 18 staut, 19 hlupu, 20 groms. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 björt, 4 bógur, 7 ódæði, 8 ávali, 9 náð, 11 alin, 13 miði, 14 ólæti, 15 lest, 17 skot, 20 gil, 22 sigla, 23 jag- ar, 24 afræð, 25 teiti. Lóðrétt: 1 blóta, 2 ölæði, 3 táin, 4 bráð, 5 grafi, 6 reiði, 10 ásæki, 12 nót, 13 mis, 15 lesta, 16 sigur, 18 kaggi, 19 Torfi, 20 garð, 21 ljót.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.