Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 47
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 47 Umboðs- og heildverslun Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609 Afgreiðslu- borð Komdu með hugmynd... Netverslun - www.isold.is Heildarlausnir fyrir verslanir og fyrirtæki LÖGGÆSLUMÁL eru mikilvægur mála- flokkur sem varðar verulega hagsmuni borgaranna. Lögregl- an þarf að vera örugg, traust og mikilvægt að íbúarnir finni fyrir ná- lægð hennar. Hér er auðvitað vandrataður meðalvegurinn, stutt kann að vera á milli traustrar og góðrar löggæslu sem veitir íbúunum nauðsynlegt öryggi og þess að of langt sé gengið, að lög- reglan verði ofvirk eða fari offari. Að undan- förnu hafa sveitarstjórnarmenn á höfuðborgarsvæðinu rætt um lög- gæslu á svæðinu og haft nokkrar áhyggjur af þróun mála. Grenndarlöggæsla Síðastliðið vor kynnti lögreglu- stjórinn í Reykjavík fyrir Reykja- víkurborg hugmyndir að framtíðar- útfærslu á löggæslu í umdæminu. Gengu þær hugmyndir út á að hið hefðbundna eftirlit lögreglu yrði mun hverfatengdara og skipulagð- ara en reyndin væri. Allt frá stofnun Miðgarðs í Graf- arvogi hefur verið starfandi hverf- islögregla í Grafarvogshverfum sem aðsetur hefur í Miðgarði. Sú þjónusta hefur gefið góða raun. Til- raunaverkefni um grenndarlög- gæslu fór af stað í Bústaðahverfi haustið 1998 með ágætum stuðningi Reykjavíkurborgar en það verkefni lognaðist út af vegna fjárskorts. Það voru mér mikil vonbrigði hvernig tilraunin endaði enda margoft komið fram að borgarbúar óskuðu eftir og bundu miklar vonir við hverfislöggæslu. Búið er að endurvekja hverfalög- gæslu í Bústaðahverfi en það verð- ur að segjast alveg eins og er að borgaryfirvöld eru farin að fá kvartanir og ábendingar frá íbúun- um um að lögreglan sé þar ekki sýnileg. Miðað við þá reynslu sem fengist hefur af grenndarlöggæslu er ekki vafi á að hér er um skyn- samlega leið að ræða. Lögreglan verður sýnilegri og í betri tengslum við borgarana. Lögreglan hefur hins vegar borið við fjárskorti en nokkru dýrara mun vera að halda úti slíkri löggæslu en hinni hefð- bundnu. Það er eindreginn vilji borgarinnar að frekari skref verði stigin í átt að grenndarlöggæslu í fleiri hverfum borgar- innar. Löggæsla í miðborginni Sú neikvæða mynd, sem oft er dregin upp af ástandi í miðborg- inni um kvöld og helg- ar, er borgaryfirvöld- um mikið áhyggjuefni. Í því skyni að auka ör- yggi þeirra sem leið eiga um miðborgina eða eiga þar fasteignir hafa verið settar upp öryggismyndavélar. Fullyrða má að reynslan af rekstri myndavélanna er góð og hafa þær vissulega auð- veldað lögreglu að upplýsa brot auk þess sem ætla má að tilvist þeirra hafi varnaðaráhrif. Hitt er svo annað mál að lög- gæslu verður ekki haldið uppi með öryggismyndavélum einum og sér. Borgaryfirvöld hafa ítrekað kallað eftir því að löggæsla í miðborginni verði sýnilegri og aukinn nauðsyn- legur sveigjanleiki í störfum lög- reglunnar þannig að hún geti m.a. brugðist við breyttum afgreiðslu- tíma vínveitingahúsa. Ég efast í sjálfu sér ekki um góðan vilja lög- reglunnar í Reykjavík til að standa vel að löggæslu í borginni en því miður virðist sem skortur sé á skilningi og nauðsynlegum fjárveit- ingum frá þar til bærum yfirvöld- um. Kann það að skýra að áætlanir lögreglunnar um sýnilega löggæslu í miðborginni hafa lítið gengið eftir. Umferðareftirlit í Reykjavík Ekki þarf mikla skoðun til að komast að þeirri niðurstöðu að um- ferðareftirlit í Reykjavík er engan veginn nægjanlegt. Rétt er að skoða umferðareftirlit og fyrir- byggjandi starf, þ.e. umferðar- fræðsluna í samhengi. Staðreyndin er sú að umferðarfræðslan hefur ekki verið nægjanlega markviss, enda hefur hún verið á höndum margra aðila: Lögreglunnar í Reykjavík í samvinnu við Fræðslu- miðstöð, Leikskóla Reykjavíkur, gatnadeildar og umferðardeildar borgarverkfræðings og fleiri aðila innan borgarkerfisins. Þá veitir Reykjavíkurborg árlega fé til Um- ferðarráðs vegna umferðarfræðslu. Sé litið til mikilvægis þessa fyrir- byggjandi starfs svo og þess, að umferðarmenning á Íslandi er ekki á hærra stigi en raun ber vitni, er hér um sérstaklega mikilvægan málaflokk að ræða. Spyrja má hvort þáttur umferðardeildar borgarinn- ar ætti ekki að vera meiri hvað varðar umferðarfræðslu t.d. þegar horft er til gerðar umferðarmann- virkja annars vegar og notkunar þeirra hins vegar. Það er t.d. til lít- ils að verja hundruðum milljóna í aðreinar inn á stofnbrautir ef stór hluti manna veit ekki til hvers þær eru og kann ekki að nota þær, eins og raun ber vitni. Spyrja má hvort það fjármagn sem veitt er til starf- semi Umferðarráðs, sem er um 103,7 milljónir króna á fjárlögum þessa árs, nýtist sem skyldi. E.t.v. væri umferðarfræðslan í Reykjavík best komin í höndum lögreglu, um- ferðardeildar borgarverkfræðings og tryggingafélaganna. Ljóst er, að fyrir utan þær hörmungar sem leiða af umferðarslysum vegna dauðsfalla og tímabundinnar eða varanlegrar örorku eru það trygg- ingafélögin sem bera mestar fjár- hagslegar byrðar vegna umferðar- slysa. Sterk aðkoma þeirra að umferðarfræðslunni ætti því að vera mikið hagsmunamál þeirra. Löggæsla í höndum sveitarfélaga? Víða erlendis er staðbundin lög- gæsla í höndum sveitarfélaga en rannsóknarlögregla og fíkniefna- lögregla á valdi ríkis. Mín skoðun er sú að staðbundin löggæsla geti ver- ið betur komin í höndum sveitar- félaga en ríkis, eins og reyndar var hér á árum áður eða til ársins 1972. Hér er um ákveðna nærþjónustu að ræða sem eðlilegt er að sveitarfélög annist og þannig er hægt að gera lögregluna að eðlilegri þætti borg- arsamfélagsins. Tryggja þarf nauðsynlegt fjár- magn til að slíkur flutningur eigi sér stað og eins og staðan er í dag í ýmsum samskiptum ríkis og sveit- arfélaga varðandi flutning verkefna má alveg ætla að sveitarstjórnir geti verið mjög tvístígandi varðandi flutning löggæslunnar. Engu að síð- ur er ég í prinsippinu þeirrar skoð- unar að umferðarlöggæsla í þéttbýli og það að halda uppi lögum og reglu á almannafæri sé dæmigert stað- bundið þjónustuverkefni sem sé betur komið hjá sveitarfélögum. Ljóst er að fjármagnsskortur hefur háð starfsemi lögreglunnar í Reykjavík og sér þess merki víða í borginni. Glíma lögreglunnar við fjárveitingavaldið hefur dregið úr metnaði lögreglunnar og frum- kvæði. Hér þarf að verða breyting á, veita þarf löggæslumálum aukið brautargengi og hefja þau á þann stall sem löggæslumálin eiga skilið. Hvar er lögreglan? Steinunn V. Óskarsdóttir Löggæsla Umferðarlöggæsla í þéttbýli og löggæsla á almannafæri á, að mati Steinunnar V. Óskarsdóttur, að vera staðbundið þjónustu- verkefni hjá sveit- arfélögum. Höfundur er borgarfulltrúi. www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.