Morgunblaðið - 25.01.2001, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 9
Útsala mkm
v i ð Ó ð i n s t o r g
1 0 1 R e y k j a v í k
s í m i 5 5 2 5 1 7 7
20-70%
afsláttur
ÚTSALAN
Í FULLUM GANGI
Síðustu dagar
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473.
Mikið úrval af
glæsilegum
síðkjólum
20-40% afsláttur
Nýtt kortatímabil
Á
R
SH
Á
TÍ
Ð
A
R
K
JÓ
LA
R
Laugavegi 54,
sími 552 5201.
Ljósakrónur Bókahillur
Borðstofustólar Íkonar
Borðstofusett í úrvali
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
ÚTSALA
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík , sími 562 2862
Úrval af drögtum og
samkvæmisfatnaði í stærstu
stærðunum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
20%
aukaafsláttur af öllum kjólum
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
CAMERON Smith, sem gerði mis-
heppnaða tilraun til að ganga yfir
Vatnajökul í upphafi mánaðarins,
hefur fullan hug á að gera aðra til-
raun. Í viðtali við Morgunblaðið
sagðist hann þó ánægður með að
hafa komist klakklaust til byggða og
hann hefði því ávallt tækifæri til að
gera aðra tilraun. „Ég er líka feginn
því að það þurfti ekki að bjarga
mér,“ sagði Smith.
Hann segir mikinn vind, lítinn
lausan snjó á jöklinum en þeim mun
meiri rigningu hafa komið honum í
opna skjöldu og orðið til þess að
hann varð að hætta við ferðalagið.
„Ég bjóst við köldu, þurru veðri en
fékk blautt og hlýtt veður,“ sagði
Smith.
Vindur skemmdi tjaldið
Upphaflega hugðist Smith ganga
yfir jökulinn frá austri til vesturs.
Hann hóf gönguna við Lamba-
tungnajökul í Austur-Skaftafells-
sýslu. „Ég þurfti að selflytja farang-
ur minn yfir fjallshrygg til að komast
að jöklinum,“ sagði Smith. Á meðan
hann var að bera farangurinn bætti
mjög í vind en Smith segir að í hörð-
ustu hviðunum hafi vindstyrkur farið
vel yfir 33 m/s. „Þar sem snjórinn
var svo lítill þurfti ég að dvelja í
tjaldinu en upphaflega hafði ég gert
ráð fyrir að byggja snjóhús ef það
hvessti mikið,“ sagði Smith. Tjaldið
skemmdist í fárviðrinu auk þess sem
hluti af matarbirgðum og búnaði
hans fauk út í veður og vind.
Eftir þriggja daga dvöl í tjaldinu
taldi Smith að fullreynt væri með
göngu yfir jökulinn og ákvað að end-
urskoða áætlun sína. „Fyrst ákvað
ég bara að fara aftur til Bandaríkj-
anna, ég gæti ekki gert þetta,“ sagði
Smith. Hann skipti síðar um skoðun
og ákvað að reyna að ganga upp
Skeiðarárjökul og stefna á Gríms-
vötn og þaðan í Jökulheima.
Langar að reyna aftur
Frá því ferðalagi var greint í
Morgunblaðinu sl. föstudag. Í stuttu
máli sagt gekk ferðin afar illa. Smith
þurfti að kljást við rok og mikla rign-
ingu. Tjald hans fraus m.a. fast við
jökulinn og Smith neyddist til að
snúa við eftir um 10 daga göngu.
Hann segist þó hafa verið vel búinn
og búnaður hans hafi reynst vel.
Smith segir að sér finnist mikilvægt
að ekki hafi þurft að gera út leit-
arflokka honum til aðstoðar.
Hann segist lengi hafa stefnt að
göngu yfir Vatnajökul. „Ég hef und-
irbúið ferðina í fimm ár en á hverju
ári hefur eitthvað komið upp þannig
að ég hef orðið að hættta við,“ segir
Smith. Hann vinnur nú að doktors-
ritgerð og kennir jafnframt við há-
skóla í Kanada. Vegna vinnu sinnar
kemst hann aðeins frá um jól og ára-
mót og að sumarlagi. „Ef ég geri
aðra tilraun verður það einnig að
vetri til,“ segir Smith. „Kannski ger-
ist nákvæmlega það sama aftur en
það verður þá bara að hafa það.“
Langar að reyna aftur að ganga yfir Vatnajökul
Lítill snjór, rigning og rok
komu honum í opna skjöldu
Morgunblaðið/Kristinn
Cameron Smith hefur fullan hug á að reyna aftur að ganga yfir Vatna-
jökul þó hann hafi orðið frá að hverfa að þessu sinni.
Mörkinni 3, sími 588 0640G
læ
si
le
ga
r
gj
af
av
ör
ur
Kaffi-
bollar
Nýtt - nýtt
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14